Bændablaðið - 24.04.2013, Page 1
8. tölublað 2013 Miðvikudagur 24. apríl Blað nr. 393 19. árg. Upplag 28.000
Fyrstu
viðbrögð
lofa góðu
Gleðilegt sumar!
Þessi mynd var tekin af bænum Steindyrum í Svarfaðardal 18. apríl síðastliðinn. Þó að sól skíni í heiði er greinilega nokkuð í land að hún náí að bræða
formlega í garð samkvæmt almanakinu. - Sjá meira af fannfergi og raunum norðlenskra bænda á bls. 8 og 10.
Fannfergi
nyrðra
Mikið fannfergi er víða norðan
heiða og litlar líkur á að hann
taki upp í bráð, en veðurspá fyrir
næstu daga gerir ráð fyrir að
áfram verði kalt í veðri.
Liðið ár hefur ekki verið sérlega
hagstætt, en eins og menn rekur
eflaust minni til voru miklir þurrkar
allt síðastliðið sumar og drógu þeir
mjög úr uppskeru á mörgum bæjum.
Þá þurfti að taka fé óvenju snemma
á hús síðastliðið haust, enda skall
fyrsta vetrarveðrið á með fyrra fall-
inu, í byrjun september.
Veturinn hefur verið langur og
harður, svell legið á túnum víða
allt frá því í nóvember þannig að
allt bendir til þess að slæmt kalvor
sé fram undan. Þá er heyforði með
minnsta móti víða. Algengt er að
bændur eigi rétt nóg fyrir sig, ef
vorið verður ekki hart og hægt að
hleypa fé út á beit nokkuð snemma,
en fáir bændur fyrir norðan eru
aflögufærir. /MÞÞ
Illugastaðir 19. apríl.
Almenn andstaða er meðal
stjórnmálaflokkanna sem bjóða
fram til Alþingis við að hingað til
lands verði leyft að flytja lifandi
dýr. Þá varar meirihluti þeirra
einnig við því að leyft verði að
flytja til landsins hrátt kjöt eða
aðrar ómeðhöndlaðar dýraafurðir.
Flokkarnir eru jafnframt sammála
um mikilvægi þess að tryggja
fæðuöryggi þjóðarinnar, þó að
mismundi útfærslur séu kynntar
í þeim efnum.
Píratar vilja gæludýravegabréf
Píratar skera sig nokkuð úr hópi
framboðanna þegar kemur að
afstöðu til innflutnings lifandi dýra
samkvæmt fyrirspurn Bændablaðsins
til flokkanna. Framboðið vill að
tekin verði upp gæludýravegabréf
svo auðveldara sé að flytja inn dýr af
velferðarástæðum, t.d. blindrahunda.
Þá vill framboðið auka frelsi til að
flytja inn dýr sem öruggt sé að lifi
ekki af íslenskt veðurfar. Ekki er
skýrt frekar hvaða dýr þar er um rætt.
Alþýðufylkingin, Björt framtíð
og Lýðræðisvaktin tiltaka að
hlýða skuli ráðum sérfræðinga
og tiltaka að verja þurfi íslenska
búfjár stofna. Lýðræðisvaktin tekur
reyndar sérstaklega fram að í mati
sérfræðinga geti falist að heimilt
yrði að flytja inn t.d. gæludýr með
heilbrigðisvottorðum.
Hægri grænir vilja banna allt sem
getur sett innlenda dýrastofna í hættu.
Dögun hefur ekki mótaða stefnu í
málinu en vill fara varlega í öllum
breytingum á lífríkinu. Aðrir flokkar
eru fortakslaust andvígir innflutningi.
Sömu sögu má segja um inn-
flutning á hráum, ómeðhöndluðum
dýraafurðum, í þeim tilfellum þar
sem flokkarnir svara þeirri spurningu
sérstaklega. Ýmist eru flokkarnir
alfarið mótfallnir slíkum innflutningi
eða vara við honum.
Samfylkingin styður
áframhaldandi beinan stuðning
Hvað varðar fæðuöryggi þjóðarinnar
leggja allir flokkar áherslu á að það
verði tryggt. Í flestum tilfellum
nefna flokkarnir mikilvægi þess að
styrkja innlendan landbúnað. Þannig
styður Samfylkingin eindregið
áframhaldandi beinan stuðning
við landbúnaðarframleiðslu og vill
útvíkka þann stuðning svo hann nái
til fleiri búgreina.
Framsóknarflokkurinn telur
að auka þurfi matvælaframleiðslu
enda sé innanlandsframleiðsla undir
þjóðaröryggis stöðlum.
Flest framboðin nefna
að auðvelda þurfi nýliðun
í bændastétt
Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á
að einkaframtak og frelsi séu grund-
völlur fjölbreytts landbúnaðar.
Píratar nefna frjálsar línuveiðar í
sínu svari og Dögun vill leggja áherslu
á að réttur bænda á til sjósóknar verði
virtur. Dögun vill jafnframt hverfa frá
framleiðslutengdu styrkjakerfi og taka
upp landnytja- og búsetustyrki.
Alþýðufylkingin tiltekur að styðja
þurfi og vernda íslenskan landbúnað,
ekki bara fyrir samkeppni að utan,
heldur fyrir ásælni fjármálaaflanna.
Flokkur heimilanna nefnir að
stöðva þurfi yfirtöku fjármálastofnana
og afborganir á lánum uns fyrir liggi
dómsniðurstaða um lögmæti þeirra.
Hægri grænir telja mikilvægast
að tryggja fæðuöryggi í viðskipta-
samningum við önnur ríki og Björt
framtíð tekur í sama streng. Þá
benda Vinstri græn á að kraftmikill
landbúnaðar stuðli ekki einungis að
auknu fæðuöryggi heldur sé mikilsvert
umhverfismál í anda sjálfbærrar
þróunar. /fr
Íslenskur landbúnaður virðist eiga sér bandamenn víða fyrir þessar kosningar:
Flokkarnir vilja tryggja fæðuöryggi
Kindur fundust í Þorgeirsfirði eftir útigöngu í allan vetur:
Merkilega vel á sig komnar,
sallarólegar og sprækar
– segir Þórarinn Ingi Pétursson bóndi á Grýtubakka
„Þær eru ótrúlega vel á sig komnar,
sallarólegar og sprækar og byrjuðu
bara á því að fá sér að éta,“ segir
Þórarinn Ingi Pétursson, bóndi í
Grýtubakka í Höfðahverfi og for-
maður Landssambands sauðfjár-
bænda, en þrjár kindur, ær með
tvö lömb, gimbur og hrút, fundust
á lífi í Þorgeirsfirði í Fjörðum á
sunnudag.
Kindurnar eru frá Grýtubakka
og voru það félagar úr Björgunar-
sveitinni Ægi frá Grenivík sem
komu auga á þær þar sem þeir voru
á ferðinni á svæðinu. Þeir voru á vél-
sleðum og kipptu kindunum með sér
heim á hlað í Grýtubakka.
Ágætis fjörubeit
Kindunum var sleppt á fjall í byrjun
júní í fyrrasumar, heimamenn fóru
í göngur 5. september á liðnu haust
en þá heimtust þær ekki. Þórarinn
Ingi segir að margoft sé búið að fara
um svæðið í vetur að leita að fénu
en þessar þrjár hafi greinilega farið
framhjá leitarmönnum í öll skiptin.
Eins hafi nú eftir áramót verið mikil
umferð sleðamanna á svæðinu, en
reyndar ekki alveg niðri við sjó. Þar
hefur verið snjólaust í allan vetur
og skýrir að sögn Þórarins eflaust
hversu vel kindurnar eru á sig komn-
ar eftir alla þessa útigöngu.
„Þær hafa komist í ágætis
fjörubeit og eru merkilega vel á
sig komnar, sprækar og sællegar
kringum augun,“ segir hann og til
marks um gott ástand nefnir hann
að heilmikil hornhlaup eru á báðum
lömbunum, einkum á hrútnum. Bæði
gimbrin sem fannst og ærin eru með
lömbum. /MÞÞ
Kindurnar voru ótrúlega sprækar
þegar þær komu í hús á Grýtubakka
„Ég er
sáttur
og skila
góðu búi“
Margir kostir við að
reisa gasgerðarstöð
26-27 2820