Bændablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 27

Bændablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 27
27Bændablaðið | Miðvikudagur 24. apríl 2013 Snæfríður með knippi af fullþroskuðum puntstráum. að setja. Snæfríður segir að Umhverfis stofnun hafi reyndar spurt hvort þau væru nokkuð að nýta afurð sem gæti verið í útrýmingarhættu, en svo sé alls ekki þar sem nóg sé af puntstráum í landinu. Þá var einnig unnið við gerð heimasíðu sem nú hefur litið dagsins ljós og er slóðin www.tannstra.is. Hafa margt fram yfir innflutta tannstöngla Tannstrá hafa að sögn þeirra margt umfram venjulega tannstöngla, m.a. að um algjörlega náttúrulega afurð er að ræða sem jörðin tekur við að notkun lokinni. Þá eru íslensku stráin passlega stíf til að stanga úr tönnum, þau eru hol að innan og leggjast því saman þannig að hægt er að stinga þeim á milli tannanna og virka því einnig sem tannþráður. Að auki og sem nokkurs konar bónus fær notandinn keim af íslensku sumri beint í æð. Þá nefna þau að stráin gætu líka nýst þeim sem eru að hætta að reykja, grípa má til þeirra í stað sígarettunnar líkt og hinn geðþekki Lukku-Láki gerði. Pakki af íslenskum tannstráum hentar líka sem gjöf til vina og vandamanna erlendis, enda um að ræða alíslenska og handunnan náttúruafurð. Bjartsýn á framhaldið Snæfríður og Ingi segja það gleðilegt að nú þegar gamall draumur sé orðinn að veruleika og sala hafin gefi góð viðbrögð byr undir báða vængi. „Við munum halda ótrauð áfram og höfum ekki ástæðu til annars en vera bjartsýn á framhaldið,“ segja þau og hlakka til að nýta komandi sumardaga úti í guðsgrænni náttúrunni við að afla sér efniviðar til áframhaldandi framleiðslu tannstráa. /MÞÞ Mesta vinnan er við hreinsun stráanna. Sunnlenski sveitadagurinn 2013 laugardaginn 4. maí Austurvegi 69, 800 Selfossi Sunnlenski sveitadagurinn hefur fest sig í sessi sem einn stærsti viðburðurinn á Suðurlandi. Nú gefst sunnlenskum fyrirtækjum tækifæri til að kynna fyrir gestum framleiðslu sína og þjónustu, en rúmlega 10.000 manns hafa sótt sýninguna undanfarin ár. Sunnlenski sveitadagurinn verður nú haldinn í fi mmta sinn. Jötunn Vélar og Vélaverkstæði Þóris standa saman að Sunnlenska sveitadeginum Áhugasamir hafi samband við Auði Ottesen í síma 578 4800 eða á netfangið audur@rit.is fyrir 1. maí. Sölu- og þjónustuaðilar athugið Beint frá bónda, heilsteikt naut, handverk, garðyrkjuvörur, landbúnaðarvélar, glímusýning, baggakast, þrautabrautir, landnámshænur, dúfur, hestar, geitur, kindur, kálfar, hundar og grísir Tilbúnum tannstráum komið fyrir í pakkningu. Íslensku stráin eru passlega stíf til að stanga úr tönnum, þau eru hol að inn- an og leggjast því saman þannig að hægt er að stinga þeim á milli tann- anna og virka því einnig sem tann- þráður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.