Bændablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 14

Bændablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 14
Bændablaðið | Miðvikudagur 24. apríl 201314 Í tilefni af 85 ára afmæli S a m b a n d s sunnlenskra kvenna (SSK) á árinu ætla 1.200 konur úr 26 kvenfélögum á sambands- svæðinu að ganga saman og prjóna um leið. Markmiðið er að minnast stofnunar SSK ásamt því að hugsa til formæðranna, sem gengu í árdaga prjón- andi um grundir og móa. Ætlunin er að hvert kvenfélag safni áheitum og myndi gönguhópa, sem sameinast um að ganga a.m.k. 85 kílómetra í nokkrum lotum og prjóna búta í leiðinni. Bútarnir eiga síðan að mynda táknrænt veggteppi sem mun heita, „Frá fjalli til fjöru – fjöru til fjalls austan og vestan Þjórsár“. 85 ára afmælinu verður fagnað við Þjórsártún á Jónsmessunni í sumar, hinn 23. júní, þar sem prjóna- b ú t u n u m verður safnað saman. Þeir verða síðan saumaðir í f y r r g r e i n t veggteppi. Nýtt fæðingarúm á Selfoss Hugmyndin er að þeir peningar sem safnast saman vegna áheita verði notaðir í kaup á nýju fæðingarúmi fyrir fæðingadeild Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi. Hver prjónabútur í teppinu verður 5x5 cm á stærð en teppið verður 2,5 metrar á breidd og 1,20 metrar á hæð. Þá má geta þess að Nettó á Selfossi gefur allt garn í verkefnið en um íslenskt kambgarn frá Ístex er að ræða. /MHH 85 ára afmæli Sambands sunnlenskra kvenna: Um1.200 konur ætla að ganga prjónandi næstu vikurnar „Við sem stöndum að Búðardalur. is menningarmiðju Dalanna höfum undanfarið verið að ræða það okkar á milli hvað sé menning og hvað ekki. Þessi umræða okkar hefur orðið til af því að síðustu tvö ár hefur umsóknum okkar til Menningarráðs Vesturlands verið hafnað. Ekki verður hægt að tíunda það hér hvers vegna umsóknum okkar hefur verið hafnað þar sem Menningarráð rökstyður ekki né svarar fyrirspurnum vegna úthlutunar úr sjóðnum,“ sagði í frétt á vefsíðunni 15. apríl. Markmið vefsíðunnar í dag er að stuðla að varðveislu menningartengdra heimilda úr Dalabyggð í víðustu merkingu, virkja Dalamenn sem og brottflutta til þess að safna saman á einn stað menningargildum tengdum Dölum í hvaða formi sem er, s.s. ljósmyndum, kvikmyndum, sögum, ljóðum, frásögnum og jafnvel ýkjusögum. Einnig að birta fréttir úr héraðinu af því sem er að gerast á líðandi stundu sem og að safna saman upplýsingum um aðra miðla sem fjalla um málefni tengd Dölum. Vefnum er ætlað að efla og styrkja ferðaþjónustu á svæðinu og skapa nýjan vettvang fyrir heimamenn til að koma hugmyndum sínum, verkefnum eða hugðar efnum á framfæri með einföldum hætti. Stofnuð 2010 til að mótmæla samdrætti í löggæslu Tillgangur vefsíðunnar í upphafi var þó ekki eins víðtækur og í dag. Það var síðla árs árið 2010 að Sigurður Sigurbjörnsson keypti lénið budardalur.is í þeim tilgangi að safna undirskriftum á netinu til að mótmæla niðurlagningu eina stöðugildis lögreglumanns í Dölum. Alls söfnuðust um 1.400 undirskriftir á netinu og var þeim komið í hendur Ögmundar Jónassonar dómsmálaráðherra. Útvarpsmaðurinn Þorgeir Ástvaldsson gerðist liðsmaður Eftir þessa vinnu kviknaði sú hugmynd hjá Sigurði að halda léninu og nota það áfram Dölunum til heilla. Það var svo fljótlega eftir að þessi hugmynd kviknaði að Þorgeir Ástvaldsson, Fellsstrendingur og útvarpsmaður með meiru, kom inn í verkefnið með Sigurði og hefur Þorgeir séð um viðtöl sem tekin hafa verið fyrir vefinn ásamt vinnu við efnisöflun. Helgi Þór Guðmundsson kerfis- fræðingur hefur séð um forritun á vefnum, en hann starfar sem kerfis- stjóri hjá prentsmiðjunni Prentmet ehf. sem er ein stærsta prentsmiðja landsins. Þar hefur hann sinnt margvíslegum hlutverkum þ.m.t. vefhönnun, vefumsjón og markaðs- setningu á netinu. Þá var Helgi líka hvatamaður og hugmyndasmiður á bakvið DFS.is sem er sunnlenskur fréttavefur rekinn samhliða Dagskránni Fréttablaði Suðurlands. „Stefna okkar hefur verið frá byrjun að safna saman efni sem hefur menningarlegt gildi fyrir sögu Dalasýslu í nútíð og þátíð, halda utan um söguna í máli, myndum, riti og ræðu. Gera svo efnið aðgengilegt fyrir þá sem áhuga hafa. Og hvar er best að geyma efnið til að það sé sem aðgengilegast fyrir almenning árið 2013? Jú, á veraldarvefnum þar sem þorri þjóðarinnar vafrar daglega í menningar og afþreyingarþorsta sínum,“ segir Þorgeir í umfjöllun sinni á budardalur.is /HKr. Búðardalur.is hlýtur ekki náð fyrir augum menningarráðs Vesturlands – forsvarsmenn menningarsíðu Dalanna ekki sáttir við höfnun Stóðhestadagur á Selfossi laugardaginn 27. apríl: Flottustu stóðhestar landsins koma saman Í tengslum við útgáfu stóðhestablaðs Eiðfaxa mun Eiðfaxi ásamt Hestamannafélaginu Sleipni á Selfossi standa fyrir stóðhestadegi að Brávöllum á Selfossi laugardaginn 27. apríl. Í fyrra var dagurinn haldinn í fyrsta sinn og talið er að um eitt þúsund áhorfendur hafi verið á Brávöllum í blíðskaparveðri. Nú í ár verður dagurinn enn glæsilegri, margir af þekktustu stóðhestum hafa boðað komu sína og afkvæmahóparnir verða þó nokkuð fleiri en í fyrra. Jakob Sigurðsson verður með sýnikennslu í hléi og nokkrir þekktir stóðhestar verða til sýnis í stýjum inni í reiðhöllinni. Allir þeir hestar sem eru með í stóðhestablaði Eiðfaxa eiga rétt á þátttöku á hátíðinni en þar mun fara fram kynning á ungum sem eldri stóðhestum á beinni braut, í anda sýninga stóðhestastöðvarinnar Gunnarsholts forðum. Það var fyrsta sýning vorsins utandyra og það muna margir eftir þeirri vorstemmningu sem þar var enda kom fólk alls staðar að af landinu til að sjá marga af fremstu stóðhesta þess tíma. Aðgangur verður ókeypis. Allar nánari upplýsingar veitir Óðinn Örn í póstfanginu odinn@eidfaxi.is /MHH Skjámynd af vefsíðunni budardalur.is Dalabyggð Vindill frá Ytri-Tjörnum og Birtingur frá Birtingaholti valdir bestu nautin Á ársfundi Fagráðs í nautgriparækt sem haldinn var að Gauksmýri í Húnaþingi fimmtudaginn 18. apríl síðastliðinn voru afhent verðlaun fyrir besta nautið fætt árið 2005. Að þessu sinni hlutu tvö naut þessa nafnbót og er það í fyrsta sinn sem það gerist frá það að þessi verðlaun voru fyrst veitt. Þau naut sem nafnbótina hlutu eru Vindill 05028 frá Ytri-Tjörnum í Eyjafirði og Birtingur 05043 frá Birtingaholti 1 í Hrunamannahreppi. Guðmundur Jóhannesson, ábyrgðarmaður í nautgriparækt hjá RML, afhenti verðlaunin og fór um leið nokkrum orðum um þessi afbragðsnaut. Bæði eru þau synir Stígs 97010 frá Oddgeirshólum og móðurfaðir beggja er Kaðall 94017 frá Miklagarði. Þau gefa miklar mjólkurkýr með ákaflega sterka og góða júgur- og spenagerð auk þess sem mjaltir eru með ágætum. Notkun þeirra hefur verið mikil í vetur enda um afbragðsgripi að ræða. Benjamín Baldursson, bóndi á Ytri-Tjörnum og ræktandi Vindils, tók við verðlaunum fyrir Vindil á fundinum en Ragnar Magnússon, bóndi í Birtingaholti 1 og ræktandi Birtings, átti ekki heimangengt. Honum voru því færð verðlaunin. Hann er með ríflega 100 mjólkandi kýr og í heildina um 270 nautgripi. /GJ Ragnar Magnússon, ræktandi Birtings, við móttöku verðlaunanna ásamt dóttur sinni Evu Maríu. Með þeim á myndinni er Hvítkolla 1458, systir og sammæðra Birtingi og dóttir Skurðs 02012. Guðmundur Jóhannesson, ábyrgðar- maður í nautgriparækt hjá RML, og Benjamín Baldursson, bóndi á Ytri- Tjörnum og ræktandi Vindils. Um 1.000 manns mættu á Stóðhestadaginn á Selfossi á síðasta ári en stóðhesturinn Þóroddur frá Þóroddsstöðum í Grímsnesi tekin til kostanna á deginum í fyrra. Knapi er Daníel Jónsson. Mynd / MHH Afmælisnefnd SSK, sem hefur unnið ötullega að prjónaverkefninu og skipulagt Einingu í Holtum. Rosemarie Þorleifsdóttir, formaður SSK átti hugmyndina að prjóna og gönguverke- fninu. 1200 bútar verða í veggteppinu, af bútum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.