Bændablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 48
48 Bændablaðið | Miðvikudagur 24. apríl 2013
Í síðustu blöðum hafa starfs-
menn Ráðgjafarmiðstöðvar land-
búnaðarins verið kynntir. Að þessu
sinni eru það starfsmenn á sviði
rekstrar og nýsköpunar sem eru
þjónustuhópurinn og starfsmenn
á sviði rekstrar, bútækni og hlunn-
inda. Frekari upplýsingar má finna
á heimasíðu RML, www.rml.is.
Fagsvið rekstrar og nýsköpunar
Fagsvið rekstrar saman stendur af
rekstrarráðgjöf og áætlanagerð,
hlunninda- og nýsköpunarráðgjöf
auk ráðgjafar á sviði bútækni
og orkumála. Auk þess tilheyra
sviðinu ráðunautar sem vinna þvert
á fagsvið einstakra búgreina, svo
kallaðir þjónusturáðunautar. Þá
er notendaþjónustu við dkBúbót
samkvæmt samningi við Bændasamtök
Íslands sinnt af starfsmönnum sviðsins.
Meginverkefni sviðsins er að veita
heildstæða ráðgjöf þvert á önnur
fagsvið og í samstarfi við starfsmenn
annarra sviða.
Markmið starfsins er að greina
og meta stöðu núverandi reksturs
viðkomandi rekstraraðila og benda
á styrkleika og veikleika í rekstri og
jafnframt að veita heildstæða ráðgjöf
til að ná enn betri árangri í núverandi
rekstri. Á sama hátt er markmiðið að
benda á nýja möguleika ef vilji er til
þess að takast á við nýja atvinnustarf-
semi eða þróa aðra atvinnustarfsemi
samhliða þeim rekstri sem fyrir er á
viðkomandi lögbýli.
Nafn: Runólfur Sigursveinsson.
Starfsheiti: Fagstjóri rekstrar og
nýsköpunar.
Starfsstöð: Selfoss.
Uppruni og búseta: Fæddur 1958,
ólst upp á Norður-Fossi í Mýrdal
við hefðbundin bússtörf. Foreldrar;
Sigursveinn Sveinsson og Sólveig
Ólafsdóttir sem voru bændur á
Norður-Fossi. Búsettur á Hvanneyri
frá 1981 til 1993, eftir það á Selfossi.
Menntun og fyrri störf: Rekstrar-
og viðskiptanám frá Endurmenntun
Háskóla Íslands 2005. Lauk námi
til kennsluréttinda frá HÍ 1984 og
búfræðikandídat, BSc frá Hvanneyri
1981. Starfaði við kennslu- og
stjórnunarstörf við Bændaskólann
á Hvanneyri frá árinu 1981 til 1993.
Frá þeim tíma, eða síðustu 20 ár sem
ráðunautur hjá Búnaðarsambandi
Suðurlands á Selfossi. Starfssvið hjá
Búnaðarsambandinu var til að byrja
með á sviði nautgriparæktar en seinni
árin alhliða fjármálaráðgjöf.
Þjónustuhópur
Meginverkefni þjónusturáðunauta
er að veita heildstæða ráðgjöf
þvert á önnur fagsvið og í sam-
starfi við starfsmenn annarra sviða.
Þjónusturáðunautar starfa víðs
vegar um landið og veita stað-
bundna ráðgjöf samhliða ráðgjöf í
einstökum búgreinum eftir fagsv-
iðum. Þjónusturáðunautar munu
einnig verða tengiliðir bænda innan
fyrirtækisins, hafa yfirsýn yfir vinnu
unna fyrir þá og sjá um eftirfylgni
verkefna.
Nafn: Guðfinna Harpa Árnadóttir.
Starfsheiti: Ráðunautur, ábyrgðar-
maður þjónustu.
Starfsstöð: Egilsstaðir.
Uppruni og búseta: Fædd
1982 á Egilsstöðum og uppalin
á sauðfjárbúinu Straumi á
Fljótsdalshéraði og býr þar með
sambýlismanni sínum, Helga Hauki
Haukssyni, og tveimur börnum.
Rekur sauðfjárbú með fjölskyldunni.
Menntun og fyrri störf: Lauk BSc í
búvísindum frá Landbúnaðarháskóla
Íslands 2007 og stundaði nám þar
veturinn 2007-08 við ráðunauta-
fræði á mastersstigi en því námi er
ólokið. Stúdent frá Menntaskólanum
á Egilsstöðum 2002. Stundaði fjöl-
breytt störf á námsárunum og milli
skólastiga og má þar nefna kennslu,
verslunarstörf, kjötvinnslu, rækju-
vinnslu og brauðgerð svo eitthvað sé
nefnt. Hóf störf hjá Búnaðarsambandi
Austurlands sumarið 2006 og starf-
aði þar með skóla fram að útskrift
og síðan sem héraðsráðunautur og
seinna framkvæmdastjóri (frá mars
2011).
Nafn: Anna Margrét Jónsdóttir.
Starfsheiti: Ráðunautur.
Starfsstöð: Blönduós.
Uppruni og búseta: Fædd og uppal-
in á Sölvabakka í Refasveit. Býr þar
með sauðfé og hross ásamt manni
sínum Sævari Sigurðssyni og tveimur
dætrum.
Menntun og fyrri störf: BSc. í búvís-
indum frá Landbúnaðarháskólanum
á Hvanneyri 2001. Búfræðingur frá
Bændaskólanum á Hvanneyri 1997.
Stúdent frá Menntaskólanum á
Akureyri 1996. Hefur starfað sem ráðu-
nautur á Blönduósi frá útskrift. Fyrst hjá
Búnaðarsambandi A.-Húnavatnssýslu,
þá Búnaðarsambandi Húnaþings og
Stranda og loks Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins. Starfaði auk þess hjá
Landgræðslu ríkisins sumarið 2000 og
við ýmis sumarstörf í gegnum tíðina.
Nafn: Anna Lóa Sveinsdóttir.
Starfsheiti: Ráðunautur.
Starfsstöð: Egilsstaðir.
Uppruni og búseta: Fædd í
Reykjavík en hefur búið víðs vegar
um landið frá Reykjanesi vestur og
norður um og býr núna, með sauð-
fjárbú og hross, á Arnhólsstöðum í
Skriðdal á Héraði.
Menntun og fyrri störf: MSc-
gráða í ráðunautafræðum frá
Landbúnaðarháskóla Íslands árið
2010 með ritgerðinni „Aðbúnaður og
fóðrun nautgripa til kjötframleiðslu,“
BSc-gráða frá LbhÍ árið 2007 og
búfræðingur frá Hvanneyri árið 2003.
Stúdent frá Fjölbrautaskólanum við
Ármúla árið 2000 og lauk grunnskóla
í Njarðvík í Reykjanesbæ árið 1996.
Var við nám í 25 ár en hefur á seinni
árum unnið m.a. ýmis bústörf yfir
sumartímann og með skóla. Hóf störf
hjá Búnaðarsambandi Austurlands
1. ágúst 2010 og fluttist þaðan yfir
til RML 1. janúar 2013 í um 80%
starfshlutfalli.
Nafn: Guðný Harðardóttir.
Starfsheiti: Ráðunautur.
Starfsstöð: Egilsstaðir.
Uppruni og búseta: Uppalin á
Refsmýri, Fellum, þar sem stundaður
er sauðfjárbúskapur. Bjó tímabundið á
Fljótsbakka í Eiðaþinghá og stundaði
þar kúabúskap. Er komin aftur
heim á Refsmýri og tekur þar þátt í
sauðfjárbúskapnum.
Menntun og fyrri störf: Lauk BSc-
90 námi í búvísindum frá Hvanneyri
vorið 2010 og sinnti almennum
bústörfum á Fljótsbakka samhliða síð-
asta námsárinu þar. Fyrir sameiningu
starfsmaður hjá Búnaðarsambandi
Austurlands sem nautgriparæktar-
ráðunautur frá haustinu 2010. Sinnti
því sem viðkom nautgriparækt á
Austurlandi, s.s. skýrsluhaldi, fóður-
og ræktunaráætlanagerð og fræðslu,
ásamt verkefnum innan sauðfjár-
ræktarinnar og almennum skrif-
stofustörfum. Er í fæðingarorlofi út
árið 2013.
Nafn: Kristján Óttar Eymundsson.
Starfsheiti: Ráðunautur.
Starfsstöð: Sauðárkrókur.
Uppruni og búseta: Fæddur í
Reykjavík en uppalinn í Árgerði
í Skagafirði. Býr þar nú með fé og
hross, ásamt sambýliskonu sinni,
Lindu Jónsdóttur, og tveimur dætrum.
Menntun og fyrri störf: Lauk
búvísinda námi, BSc frá Hvanneyri
árið 1999 og búfræðinámi frá
Hólum árið 1994. Stúdent frá
Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki.
Kom til RML frá Búnaðarsambandi
Húnaþings og Stranda þar sem
starfssviðið hafði verið fjölbreytt en
tengdist þó helst sauðfé, jarðrækt,
áætlanagerð og forðagæslu.
Nafn: Lena Johanna Reiher.
Starfsheiti: Ráðunautur.
Starfsstöð: Hvanneyri.
Uppruni: Fædd í Oldenburg í
Þýskalandi og uppalin í Lübeck,
Schleswig-Holstein í Norður-
Þýskalandi. Býr á Hvanneyri með
Finni Kristjánssyni og eiga þau 3
börn.
Menntun og fyrri störf: Mastersnám
í búfjárfræði í Þýskalandi árið 2006.
Lauk BSc-90 námi í búvísindum frá
Hvanneyri árið 2004. Stúdentsprófi í
Þýskalandi árið 1999. Hefur starfað
við ýmis (landbúnaðar)störf áður en
starfið hófst hjá Búnaðarsamtökum
Vesturlands sem héraðsráðunautur
árið 2007, að mestu í nautgriparækt
og hrossarækt. Er í fæðingarorlofi til
loka árs 2013.
Nafn: María Svanþrúður Jónsdóttir.
Starfsheiti: Ráðunautur.
Starfsstöð: Húsavík.
Uppruni og búseta: Er frá
Hánefsstöðum í Seyðisfirði, búsett
í Reykjahverfi.
Menntun og fyrri störf: BSc-120 frá
Hvanneyri vorið 1995 og búfræðingur
árið 1992. Stúdent frá Menntaskólanum
á Akureyri 1991. Héraðsráðunautur
í Þingeyjarsýslum og síðar einnig í
Eyjafirði frá áramótum1995/96. Fyrri
störf eru tengd búskap og afgreiðslu
í verslun.
Nafn: Sigurður Þór Guðmundsson.
Starfsheiti: Ráðunautur.
Starfsstöð: Þórshöfn.
Uppruni og búseta: Frá
Hvammstanga, núna búsettur í Holti
í Þistilfirði.
Menntun og fyrri störf: MSc frá
Landbúnaðarháskóla Íslands árið 2007.
BSc-90 frá LbhÍ 2004. Búfræðingur
frá Hvanneyri árið 2000 og sveinspróf
í húsasmíði árið 1997, sveitadrengur á
Breiðavaði frá 1987-1989. Vinnumaður
á Ytra-Bjargi 1990-1991. Brúarsmíði
með brúarflokknum á Hvammstanga
öll sumur og nokkra vetur 1992-2001.
Smíðavinna með námi áfram til 2005.
Ýmis verkefni á vegum Búgarðs og
Bændasamtaka Íslands eftir það.
Ráðunautur hjá BÍ 2007, hjá Búgarði
frá ársbyrjun 2008.
Nafn: Svanhildur Ósk Ketilsdóttir.
Starfsheiti: Ráðunautur.
Starfsstöð: Akureyri.
Uppruni og búseta: Uppalin á
Finnastöðum í Eyjafjarðarsveit.
Núverandi búseta er Hrafnagilshverfi
í Eyjafjarðarsveit.
Menntun og fyrri störf: MSc próf
árið 2010 frá Landbúnaðarháskóla
Íslands sem var að hluta til tekið í
Noregi, BSc nám í Búvísindum frá
LbhÍ árið 2007. Lauk stúdentsprófi
frá Verkmenntaskólanum á Akureyri
árið 2002. Hefur unnið við ýmis
störf í gegnum tíðina, mörg þeirra
landbúnaðartengd. Nú síðast hjá
Búnaðarsambandi Eyjafjarðar við
ýmis skrifstofustörf.
Rekstrarráðgjöf
Helstu verkefni eru söfnun rekstrar-
gagna, úrvinnsla þeirra og birting,
rekstrargreiningar og áætlanagerð.
Framsetning rekstrartalna í sam-
starfi við fagsvið og búgreinafélög
til nota við einstaklingsráðgjöf,
rekstrarviðmið og í kjarabaráttu.
Samræming áætlanagerðar og nýt-
ingu rekstrargagna við markmið-
asetningu í búrekstri. Samskipti við
fjármálastofnanir og söfnun gagna
um lánakjör og fleira er varðar
fjármál bænda. Einstaklingsmiðuð
rekstrar- og fjármálaráðgjöf til bænda
í öllum búgreinum sem byggð er á
þverfaglegum grunni.
Nafn: Jóhanna Lind Elíasdóttir.
Starfsheiti: Ráðunautur, ábyrgðar-
maður rekstrar.
Starfsstöð: Reykjavík.
Uppruni og búseta: Fædd og uppalin
í Reykjavík og búsett þar, en dvalið
tímabundið við leik og störf í ýmsum
landshlutum.
Menntun og fyrri störf: BSc í
viðskiptafræði, fjármálabraut, frá
Háskólanum á Akureyri 2006, iðn-
hönnun frá Iðnskólanum í Hafnarfirði
1996, stúdent frá MR 1988. Er í
meistaranámi í fjármálum fyrir-
tækja við Háskóla Íslands samhliða
starfi. Var rekstrarráðunautur hjá
Bændasamtökum Íslands frá 2007,
eftir að hafa starfað í landbúnaðar-
Starfsmenn RML á sviði rekstrar og nýsköpunar
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins