Bændablaðið - 24.04.2013, Side 6
Bændablaðið | Miðvikudagur 24. apríl 20136
Málgagn bænda og landsbyggðar
LOKAORÐIN
Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjöl margra annarra er tengjast land búnaði.
Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu.
Árgangurinn kostar kr. 6.900 en sjötugir og eldri og lífeyrisþegar greiða kr. 3.450.
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands.
Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300– Fax: 562 3058 – Kt: 631294-2279
Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 Blaðamenn: Erla H. Gunnarsdóttir ehg@bondi.is
Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Freyr Rögnvaldsson fr@bondi.is – Sigurður M. Harðarson smh@bondi.is
Auglýsingastjóri: Eiríkur Helgason eh@bondi.is – Sími: 563 0303 – Myndvinnsla og frágangur: Prentsnið ehf.
Netfang blaðsins (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Netfang auglýsinga er augl@bondi.is Vefsíða blaðsins er www.bbl.is
Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Landsprent og Íslandspóstur annast dreifingu blaðsins. ISSN 1025-5621
Öll él birtir upp um síðir
LEIÐARINN
Á laugardaginn mun ráðast hvaða
fólki verður falið að fara með
valdataumana næstu fjögur árin.
Valdið er sannarlega í höndum
fólksins en spurningin er hvort þeir
sem veljast til ábyrgðar komi til
með að fara að vilja fólksins hvað
varðar úrlausn þeirra mála sem
brenna heitast á þjóðinni.
Um síðustu helgi var lagður á
borð fyrir landsmenn sannleikur
allra framboðanna um hvað sé
rétt varðandi kaup vogunarsjóða
á kröfum á íslensku þjóðina.
Fulltrúar stjórnarflokkanna og fleiri
viðurkenndu í ljósvakamiðlum
frammi fyrir alþjóð að vogunarsjóðir
hefðu í raun keypt kröfur föllnu
bankana á sem nemur um 5%
af uppgefnu verðmæti. Þar með
afskrifuðu fyrri kröfuhafar um 95%
af kröfunum. Það er því alrangt
sem forsætisráðherra, hagfræðingar
ríkisstjórnarinnar og fleiri hafa allan
tímann haldið fram, að ekki væri
hægt að bakreikna stökkbreyttu lánin.
Ekki væri hægt að gera meira fyrir
heimilin í landinu. Samt átti ekki að
vera mikið mál fyrir þetta sama fólk
að greiða nokkur hundruð milljarða
Icesave-reikning. Maður spyr sig, er
hægt að bjóða fólki endalaust upp á
svona speki?
Nú viðurkennir sama fólkið
loksins eftir fjögur ár að það hafi
allan tímann verið hægt að semja
við vogunarsjóðina, eins og reyndar
Hagsmunasamtök heimilanna,
Lilja Mósesdóttir, forystumenn
Framsóknarflokksins og fjölmargir
aðrir héldu fram, en uppskáru lítið
annað en hæðnistón og útúrsnúninga
fyrir. Nú vilja hins vegar flestir Lilju
kveðið hafa.
Það eru þó ekki bara mál er varða
vogunarsjóðina sem reynt hefur verið
að skjóta í kaf sem tóma fjarstæðu. Þar
má nefna verðtryggingarvitfirringuna.
Ein meginorsök hrunsins á heimsvísu
var myndun loftbóluhagnaðar sem
byggði á innistæðulausum vaxta-
hagnaði. Á Íslandi var þessi loftbóla
mögnuð upp með verðtryggingu lána
til almennings. Samt eru enn harðir
varðhundar víða í flokka kerfinu
að berjast fyrir óbreyttu loftbólu-
vaxtakerfi.
Einhverjir eru þó að sjá að sér,
eins og Árni Þór Sigurðsson sem
játaði fyrir alþjóð að það hefðu verið
mistök ríkisstjórnarinnar að taka
ekki verðtrygginguna úr sambandi
strax eftir hrun. Mér þykir það
virðingarvert hjá Árna Þór að taka
þannig af skarið fyrir félaga sína í
ríkisstjórninni, enda segir máltækið
að batnandi manni er best að lifa.
/HKr.
Samkvæmt almanakinu kveður nú
vetur og sumarið gengur formlega
í garð á sumardaginn fyrsta. Að því
tilefni eru lesendum Bændablaðsins
sendar óskir um gleðilegt sumar.
Vorinu fylgja ný og spennandi
viðfangsefni í búskapnum og eru
bændur oft orðnir óþreyjufullir að
komast til vorverka. Sauðburður er
nú víða að hefjast og jarðvinnsla,
skítkeyrsla, sáning, áburðardreifing
og girðingavinna eru dæmi um hin
fjölmörgu vorverk hjá bændum landsins.
Meðan sunnlenskir bændur sá í akra
sína er staðan hins vegar allt önnur hjá
bændum á Norður- og Austurlandi; þar
er fátt sem minnir á vorið.
Mörgum er í fersku minni óveðrið
sem gekk yfir norðanvert landið í
september síðastliðnum. Snjóinn sem
kom í því veðri hefur á sumum svæðum
aldrei tekið upp. Víða um norðanvert
og austanvert landið er enn gríðarlegt fannfergi
og girðingar sums staðar alveg á kafi í snjó.
Þegar snjór liggur yfir túnum í svo langan tíma
og samhliða gerir umhleypingar getur svellað
verulega. Yfirleitt er miðað við að mikil hætta sé
á kali þegar svell hefur legið á túni í þrjá mánuði
eða meira. Bændur á þessum svæðum hafa miklar
áhyggjur af kali ef fram fer sem horfir.
Það er ótrúlegt hversu mikill munur er á
veðurfari á þessu litla landi okkar. Í síðustu viku
voru bændur í Mýrdalnum að sá í gulrófuakra
og víða í Landeyjum og undir Eyjafjöllum voru
bændur í jarðvinnslu. Enda hefur verið nánast
snjólaust á Suður- og Vesturlandi í allan vetur.
Á sama tíma funda bændur í Fljótum með
landbúnaðarnefnd og sveitarstjórnarmönnum í
Skagafirði ásamt fulltrúum almannavarna út af
erfiðu ástandi. Þar er slíkt fannfergi að bændur
komast illa að útihúsum og heystæðum, auk
þess sem ógerlegt hefur verið að losa haughús.
Allt kemur þetta í kjölfar þurrkasumars þar sem
heyfengur var mun minni en í meðalári. Ljóst er
að á þeim svæðum þar sem staðan er verst verður
erfitt að koma lambfé frá húsi og líkur á að féð
verði mun lengur á gjöf fyrir vikið.
Ástæða er til að fylgjast mjög vel með stöðu
þessara mála næstu vikurnar. Bændasamtökin
hafa óskað eftir því við Atvinnuvegaráðuneytið
að settur verði á fót viðbragðshópur ráðuneytisins,
Bjargráðasjóðs, RML og BÍ. Mikilvægt er að
kanna með skipulögðum hætti hver staðan er í
hverju sveitarfélagi og gera áætlanir í samráði
við sveitarstjórnir um hvernig brugðist verði við.
Mikilvægt er að tryggja skepnunum nægt fóður
og huga að velferð þeirra. Víða hafa bændur brugðið
á það ráð að gefa kjarnfóður til þess að spara hey.
Þeir bændur sem kunna að vera aflögufærir með
hey ættu að setja sig í samband við ráðunauta á
sínu svæði svo tryggja megi miðlun á fóðri eftir
því sem þurfa þykir.
Það fylgir því mikið vinnuálag að stunda
sinn búskap við þær aðstæður sem bændur
hafa þurft að búa við í vetur á Norður- og
Austurlandi. Það er því mjög mikilvægt
að bændur hugsi vel um eigið heilsufar
og gangi ekki fram af sér við sauðburð
og önnur vorverk. Nauðsynlegt er að huga
vel að andlegu hliðinni og hika ekki við að
hafa samband við heilbrigðisstarfsfólk og
leita sér aðstoðar. Enn fremur er mikilvægt
að biðja um aðstoð við bústörfin ef þörf
er á.
Íslenskir bændur eru ýmsu vanir og
hafa sýnt það í gengum tíðina að þeir
takast á við hin ýmsu viðfangsefni af
jafnaðargeði. Oft hafa menn upplifað kalár
og hafa mikla reynslu til að takast á við
það. Miklar tækninýjungar hafa orðið í
landbúnaði og endurræktun túna er nú mun
auðveldari en áður var. Það er því engin
ástæða til annars en að bera höfuðið hátt
og ganga til verka sinna af þeim krafti
sem sannarlega býr í íslenskri bændastétt. Vonandi
heilsar vorið okkur bráðlega með sólríku veðri og
hlýjum andvara. „Alltaf birtir upp um síðir, aftur
kemur vor í dal.“
Alþingiskosningar
Eitt af vorverkunum þetta vorið verður að ganga
að kjörborðinu og kjósa til Alþingis. Bændablaðið
sendi spurningalista á þá stjórnmálaflokka sem
bjóða fram til Alþingis nú í vor. Þar voru framboðin
spurð um afstöðu til ýmissa mála er varða íslenskan
landbúnað. Margt athyglisvert kemur fram í
svörum þeirra og eru lesendur hvattir til að kynna
sér það vel hér í blaðinu. Mikilvægt er að nýta
kosningaréttinn og taka afstöðu í kosningunum.
Þeir sem láta sig hagsmuni landbúnaðarins og
landsbyggðanna varða ættu að skoða vel hvað
flokkarnir hafa fram að færa í þeim efnum.
/SSS
Þetta var hægt
Þjóðleikhúsið frumsýndi nýlega
verkið Engla alheimsins eftir
Einar Má Guðmundsson í leik-
stjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar.
Skömmu fyrir sýningu heimsóttu
aðalleikararnir Bændahöllina
heim og tylltu sér á Grillinu.
Tilefnið var að rifja upp eftir-
minnilegt atriði úr kvikmyndinni þar
sem nokkrir vistmenn á Kleppi gerðu
sér glaðan dag á kostnað hússins.
Búast má við því að verkið verði
vinsælt á fjölum Þjóðleikhússins þar
sem eftirminnilegar persónur Engla
alheimsins stíga á stokk.
Á myndinni eru leikararnir Atli Rafn
Sigurðsson, Snorri Engilbertsson,
Jóhannes Haukur Jóhannesson og
Ólafur Egill Egilsson.
Góðkunningjar á Grillinu í Bændahöllinni
Leitað að heyrúllum á bænum Hnjúki í Skíðadal á dögunum.
Mynd / Jón Þórisson