Bændablaðið - 24.04.2013, Síða 16
16 Bændablaðið | Miðvikudagur 24. apríl 2013
Nýtt fjárhús á Hurðarbaki
í Flóa fyrir 300 fjár
Ábúendurnir á Hurðarbaki í
Flóahreppi voru með opið hús
í nýju og glæsilegu fjárhúsi á
bænum föstudaginn 19. apríl.
Þar búa félagsbúi hjónin Kristín
Stefánsdóttir og Ólafur Einarsson,
sem hafa búið á bænum frá 1976
og Fanney, dóttir þeirra og Reynir
Þór Jónsson, maður hennar, sem
hófu búskap á bænum 2003.
Á bænum er blandað bú. Í nýja
fjárhúsinu eru 160 gemlingar, allir
af fimm bæjum í Öræfunum en
skorið var niður á Hurðarbaki 2010
vegna riðu. Aðeins tók 4 mánuði að
byggja fjárhúsið en verktakarnir voru
Fossmót ehf., frá Selfossi. Magnús
Hlynur Hreiðarsson var viðstaddur
opna húsið og tók meðfylgjandi
myndir. /MHH
Stuttmyndin Hvalfjörður valin til
þátttöku í aðalkeppni í Cannes
Formaður dómnefndar í teikni-
samkeppni grunnskólanna, Katrín
Jakobsdóttir menntamála ráðherra,
tilkynnti fyrr í vikunni úrslit í
samkeppninni sem hófst sl. haust í
tengslum við þrettánda Alþjóðlega
skólamjólkurdaginn.
Teiknisamkeppnin er opin
öllum nemendum í fjórða bekk, en
Fræðslunefnd mjólkuriðnaðarins
stendur fyrir keppninni. Alls tóku rétt
tæplega þúsund nemendur í 46 skólum
þátt í keppninni. Tíu nemendum eru
veittar viðurkenningar fyrir teikningar
sínar að loknu vali á úrtaki mynda sem
lagt var fyrir menntamálaráðherra, sem
jafnframt er formaður dómnefndar.
Tíu teikningar voru verðlaunaðar
og koma verðlaunahafarnir úr
skólum víðs vegar um landið.
Verðlaun í teiknisamkeppninni
eru 25 þúsund krónur sem fara í
bekkjarsjóð viðkomandi nemenda
og því fær allur bekkurinn að njóta.
Markmið keppninnar er að vekja
athygli á mikilvægu hlutverki
mjólkur í daglegu mataræði
barna. Vinningsteikningarnar eru
aðgengilegar á vefslóðinni www.
skolamjolk.is
Ábúendurnir á Hurðarbaki í nýja fjárhúsinu, Reynir Þór, Fanney, Ólafur og Kristín.
Það fer vel um gemlingana í nýja fjárhúsinu en það er búið að telja í þeim
lömbin og verða þau 198 í vor ef allt gengur eftir. Húsið kostaði 14,6 milljónir
í byggingu, það er þó aðeins eftir að gera meira.
Ein vinningsmyndanna eftir Maríu Mínervu Atladóttur, nemanda í Vesturbæjarskóla í Reykjavík.
Mikil þátttaka í mjólkur-
teiknimyndasamkeppni
Hvalfjörður, í leikstjórn
Guðmundar Arnars Guðmunds-
sonar, hefur verið valin til þátt-
töku í aðalkeppni kvikmynda-
hátíðarinnar í Cannes, í flokki
stuttmynda. Guðmundur er
einnig handritshöfundur og annar
framleiðenda myndarinnar ásamt
Antoni Mána Svanssyni.
Hvalfjörður sýnir sterkt samband
tveggja bræðra, sem leiknir eru af
Ágústi Erni B. Wigum og Einari
Jóhanni Valssyni. Þeir búa á litlum
sveitabæ ásamt foreldrum sínum.
Áhorfendur fá að skyggnast inn í
heim þeirra út frá sjónarhorni yngri
bróðurins og fylgja honum í gegnum
örlagaríka daga sem marka þáttaskil
í lífi bræðranna.
Hátt í fjögur þúsund stuttmyndir
frá 132 löndum voru sendar inn
með það að markmiði að komast
í aðalkeppnina. Aðeins 9 voru
að lokum valdar til keppni og er
Hvalfjörður ein þeirra. Hvalfjörður
keppir því um Gullpálmann í ár og
er þetta mikill heiður fyrir leikstjóra
og alla aðstandendur myndarinnar.
Þetta er í þriðja sinn sem íslenskri
stuttmynd hlotnast sá heiður að
vera valin til aðalkeppni í flokki
stuttmynda í Cannes. /ehg
Síðustu vikur hafa staðið yfir
æfingar hjá leikfélagi Sólheima á
verkinu Skilaboðaskjóðunni eftir
Þorvald Þorsteinsson.
Þetta er verk fyrir börn á öllum
aldri og fjallar um Putta litla sem
tekin var af Nátttröllinu og ætlar
að breyta honum í tröllabrúðu
til að geta leikið sér af honum í
þúsund ár. Þar sem sagan gerist
í ævintýraskógi koma margir við
sögu sem vilja bjarga Putta litla
fyrir Möddumömmu áður en tröllið
breytir honum. Þar á meðal eru
dvergar, Rauðhetta, Mjallhvít, Hans
og Gréta og fleiri.
Leikstjóri er Lilja Nótt
Þórarinsdóttir frá Eyvík í Grímsnesi.
Frumsýning er á sumardaginn
fyrsta, 25. apríl, kl. 15.00 og aðrar
sýningar eru á eftirfarandi dögum:
2. sýning laugardaginn 27. apríl
kl. 15.00
3. sýning sunnudaginn 28. apríl
kl. 15.00
4. sýning miðvikudaginn 1. maí
kl. 15.00
5. sýning laugardaginn 4. maí
kl. 17.00
6. sýning sunnudaginn 5. maí kl.
15.00 lokasýning.
Miðapantanir eru í síma 847-
5323. Miðaverð er 1500 fyrir
fullorðna og 750 fyrir börn 7 ára
og eldri.
/MHH
verður frumsýnt á sumardaginn fyrsta.
Skilaboðaskjóðan á Sól-
heimum í Grímsnesi
Íbúar í Eyjafjarðarsveit bjóða
heim í sveitina á sumardaginn
fyrsta, sem er á morgun, og verður
heilmikið um að vera um alla
sveit þegar ferðaþjónustuaðilar,
listamenn, bændur og búalið taka
höndum saman og bjóða gestum
og gangandi í heimsókn.
Þungamiðjan verður að
Melgerðismelum, en þar verður
ýmislegt um að vera, m.a. á
vegum Hestamannafélagsins Funa,
Hjálparsveitarinnar Dalbjargar og
hinna ýmsu félaga sem tengjast flugi,
en einnig verður heilmargt í gangi
við Íþróttamiðstöðina á Hrafnagili.
Galleríið að Teigi verður opið sem
og Jólagarðurinn, í Dyngjunni
verður opnuð sumarsýninginn
„Altarisklæðið frá Miklagarði,“
og þá verður einnig opið í Holtseli
og Skógarseli, Grundarkirkja
verður opin og á bænum Torfum
býðst gestum að kynnast kúa- og
sauðfjárbúskap og smakka á íslenskri
kúamjólk. Smámunasafnið verður
opið, að Hrísum eru sumarhús sem
gestir geta litið á og eins er opið á
Ytra-Laugalandi, hjá Lamb Inn á
Öngulsstöðum og á Kaffi Kú í Garði.
Þá verður opin vinnustofa Samúels
Jóhannssonar að Marki.
Heimboð í Eyja-
fjarðarsveit