Bændablaðið - 24.04.2013, Side 18
18 Bændablaðið | Miðvikudagur 24. apríl 2013
Landshús er nýtt vörumerki á
íslenskum markaði og að sögn
Magnúsar Jens Hjaltested, höf-
undar þess, er hugmyndin að mæta
aukinni þörf í ferða þjónustunni
á Íslandi. Hann segir þessa hug-
mynd ekki bara snúast um hús,
heldur ekki síður um ákveðna hug-
myndafræði í ferðaþjónusturekstri
á lands byggðinni.
„Það sem við erum að koma með
á markaðinn er nokkuð sem enginn
annar er beinlínis að gera en hefur
þó verið til í yfir 100 ár hér á Íslandi
og er nú orðið eftirsótt af ferða-
mönnum. Þetta eru hús byggð með
gamla íslenska byggingarstílnum.
Þessi hús nefnum við „Stofur“ og
er draumsýn okkar sú að nokkrar
þyrpingar af slíkum húsum verði vítt
og breitt um landið með mögulega
innbyrðis tengingu sín á milli,“ segir
Magnús, sem sjálfur er viðskipta-
fræðingur að mennt.
Ekki þörf á að binda sig við stóra
rekstrareiningu
Hann segir að um ákveðna hug-
myndafræði sé að ræða fyrir þá sem
vilji hefja rekstur í ferðaþjónustu eða
séu þegar komnir í greinina og vilji
bæta við sig. Með þyrpingu húsa af
ýmsum stærðum muni rekstrarað-
ilar á landsbyggðinni ekki þurfa að
byggja upp eina stóra samhangandi
byggingu með tilheyrandi fjár-
festingu og áhættu sem henni fylgi.
Þess í stað sé möguleiki á því að fara
hægar í sakirnar og sníða sér stakk
eftir vexti.
„Við erum búin að útfæra
rekstrar einingar sem eru heppilegar
fyrir ferðaþjónustu þar sem nokkrum
húsum í mismunandi stærðum er
stillt upp og mynda lítil þorp. Það
eru hús frá rúmum 20 fermetrum
(Stofa 1) og allt upp í stærri þjónustu-
hús. Húsin eru öll af sömu breidd
en lengdin getur verið mismunandi.
Með staðlaðri framleiðslu náum
við stuttum byggingartíma og með
magninnkaupum á byggingarefni
náum við kostnaði enn frekar niður.
Ég hef hugsað þetta dæmi eins
og ég væri sjálfur að fara út í slíka
ferðaþjónustu. Hvernig ég gæti þá
lágmarkað áhættuna og haft rekstur-
inn sem hagkvæmastan þótt aðsóknin
væri breytileg eftir árstímum.“
Magnús segir þetta ekki bara
spurningu um hvað ferðaþjónustu-
rekendur vilji, heldur ekki síður um
hvaða upplifun innlendir og ekki síst
erlendir ferðamenn séu að sækjast
eftir. Hann undirstrikar mikilvægi
íslenskrar upplifunar og að það hafi
verið haft að leiðarljósi í hönnun
Landshúsa. Hús í hefðbundnum
íslenskum byggingarstíl geti hjálpað
til við að skapa ferðaþjónustunni
skemmtilegri umgjörð. Þá geti sam-
vinna innan ferðaþjónustunnar um
slíka hugmynd einnig skipt miklu
máli.
Baktrygging í klasahugmynd
„Okkar sýn er sú að landeigandi geti
gengið inn í okkar hugmynd og orðið
um leið aðili að félagi eða eins konar
klasa aðila sem eru að gera svipaða
hluti, eða hluti af samtengdu neti
Landshúsa. Með þessu ætti að nást
hagræðing í rekstri, markaðssetningu
og vörumerkjavitund getur orðið
meiri hjá mögulegum viðskiptavin-
um. Ef menn vilja á einhverjum tíma-
punkti hætta rekstrinum hafa skapast
endursölumöguleikar á húsunum til
annarra með sams konar rekstur og
þar með er ákveðin baktrygging eða
útgönguleið á fjárfestingunni. Þetta
getur skipt miklu máli varðandi það
hvernig bankar og aðrar fjármála-
stofnanir líta á lánafyrirgreiðslu til
slíkrar ferðaþjónustuuppbyggingar.
Umfram allt eru þetta þó hús sem
eru íslensk, skapa íslenska atvinnu
og eru prýði fyrir sveitir landsins,“
segir Magnús.
Hann telur að rekstur á þyrpingum
svona húsa ætti að vera mun hag-
kvæmari en stórra samhangandi
rekstrareininga, sérstaklega utan
háannatímans. Auðvelt sé að laga
mannahald og önnur umsvif að
þörfum hverju sinni með lágmörkun
á föstum rekstrarkostnaði. Sjá nánar
á vefsíðunni landshus.is. /HKr.
Landshús er ný hugmynd að gistihúsum fyrir ferðaþjónustuna:
Litlar þyrpingar húsa í íslenskum byggingarstíl
gætu sprottið upp víða um land
Landshús í þyrpingu eins og Magnús sér fyrir sér að risið geti víða um land.
Þyrpingin frá öðru sjónarhorni. Þessi hugmynd sýnir sameiginlega heita potta sem eru fyrir gesti á einum stað í
þyrpingunni.
Magnús Jens Hjaltested. Mynd / HKr.