Bændablaðið - 24.04.2013, Qupperneq 32

Bændablaðið - 24.04.2013, Qupperneq 32
32 Bændablaðið | Miðvikudagur 24. apríl 2013 1. Hver er afstaða framboðsins til tolla og innflutningsgjalda á innfluttar landbúnaðarvörur sem eru í samkeppni við innlenda búvöru? Björt framtíð telur að til þess að land- búnaður á Íslandi geti vaxið þurfi hann að hafa tækifæri til að flytja út landbúnaðar- vörur í meiri mæli en nú er. Það kallar á tvíhliða samninga, sem munu þá óhjákvæmilega leiða til þess að það dregur úr tollaverndinni eins og hún er í dag. Björt framtíð telur að íslenskur markaður með landbúnaðarvörur njóti ákveðinnar verndar í dag í formi smæðar og fjarlægðar frá öðrum löndum. Þegar dregið verður úr tollvernd er jafnframt hægt að grípa til annarra ráðstafana sem þekktar eru og koma í stað tollverndar. Má þar t.d. nefna kröfu um að merkingar á umbúðum séu á íslensku, strangar reglur um síðasta söludag og fleira. 2. Hver er afstaða framboðsins gagnvart hugsanlegum innflutningi á lifandi dýrum og/eða hráum, ómeðhöndluðum dýraafurðum? Björt framtíð telur íslenska bústofna einstaka og grípa verði til allra þeirra ráðstafana sem nauðsynlegar eru til að vernda íslenskt búfé og viðhalda sérstöðu stofnanna. Telji færustu sérfræðingar að það verði best gert með banni á innflutningi lifandi dýra eða á hráum ómeðhöndluðum dýraafurðum styður Björt framtíð slíkt bann. 3. Telur framboðið nauðsynlegt að tryggja fæðu- og matvælaöryggi landsins? Ef svo, með hvaða hætti verður það best gert? Spurningin snýst líklega um að tryggja framboð fæðu og matvæla á Íslandi. Björt framtíð telur mikilvægt að á Íslandi sé öflug matvælaframleiðsla og það er skylda okkar á hverjum tíma að nýta landið og það sem það gefur af sér. Öruggt framboð matvæla verður best tryggt með því að tryggja nýliðun í bændastétt og að bændur geti framfleytt sér og sínum af sinni framleiðslu. Jafnframt verður að tryggja öruggar samgöngur og milliríkjaviðskipti vegna þeirra matvæla sem ekki eru framleidd á Íslandi og ekki síður vegna nauðsynlegra aðfanga til matvælaframleiðslu innanlands. 4. Hvaða leið vill framboðið fara varðandi aðildarviðræður Íslands við Evrópu- sambandið? Er framboðið fylgjandi eða andvígt aðild að sambandinu? Björt framtíð telur mikilvægt að ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið og bera síðan væntanlegan samning undir þjóðina í þjóðarakvæðagreiðslu að undangenginni vandaðri kynningu á kostum og göllum aðildar. Björt framtíð telur að ef vel sé spöðunum haldið í aðildarviðræðunum eigi vel að vera hægt að ná fram samningi sem verði til hagsbóta fyrir íslenskt samfélag og tryggi að hlutur einstakra atvinnugreina og einstaklinga verði ekki fyrir borð borinn. Björt framtíð 1. Hver er afstaða framboðsins til tolla og innflutningsgjalda á innfluttar landbúnaðarvörur sem eru í samkeppni við innlenda búvöru? Sjálfstæðisflokkurinn mun ekkert gera til að raska samkeppnisstöðu íslensks landbúnaðar. Lækkun tolla á erlendar landbúnaðar afurðir sem eru í beinni samkeppni við innlenda framleiðslu, kemur því aðeins til greina að erlendir markaðir opnist að fullu fyrir íslenskar afurðir. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á heilbrigða samkeppni með landbúnaðar- afurðir. Framtíð íslensks landbúnaðar er björt ekki síst í ljósi sívaxandi eftirspurnar eftir matvælum og vatni í heiminum. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að stjórnvöld tryggi að íslenskur landbúnaður geti nýtt tækifæri til útflutnings í framtíðinni. Sjálfstæðisflokkurinn vill efla íslenskan landbúnaðog ætlar að stuðla að því að verð á neysluvörum lækki að raungildi á komandi árum. Sjálfstæðisflokkurinn telur nauðsynlegt að haga opinberum álögum í samræmi við það. Þessu er hægt að ná fram samhliða því að byggja upp fjölbreyttan, öflugan landbúnað og tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar. 2. Hver er afstaða framboðsins gagnvart hugsanlegum innflutningi á lifandi dýrum og/eða hráum, ómeðhöndluðum dýraafurðum? Sjálfstæðisflokkurinn er eindreginn í andstöðu sinni við innflutning á lifandi dýrum enda getur slíkt stefnt íslenskum bústofnum í stórkostlega hættu. Sjálfstæðisflokkurinn varar við innflutningi á hráum, ómeðhöndluðum dýraafurðum. 3. Telur framboðið nauðsynlegt að tryggja fæðu- og matvælaöryggi landsins? Ef svo, með hvaða hætti verður það best gert? Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt áherslu á þrennt: Að íslenskur landbúnaður sé öryggismál fyrir íslensku þjóðina. Að á Íslandi sé stundaður fjöl- breyttur landbúnaður á grundvelli einkaframtaks og frelsis. Að lagður sé grunnur að sókn land búnaðar og þau tækifæri sem felast í sérstöðu Íslands sem matvælaframleiðslulands séu nýtt. Sjálfstæðisflokkurinn ítrekar mikil- vægi heilbrigðrar samkeppni með landbúnaðarvörur. Þar fari hags- munir bænda og neytenda saman. Í landsfundarályktun er hins vegar lýst áhyggjum af vaxandi eftirlitsiðnaði í landbúnaði og matvælaframleiðslu með tilheyrandi skrifræði og kostnaði. 4. Hvaða leið vill framboðið fara varðandi aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið? Er framboðið fylgj- andi eða andvígt aðild að sambandinu? Hagsmunum Íslands er best borgið utan Evrópusambandsins. Samstarfinu við ESB er best viðhaldið og það eflt á grundvelli EES-samningsins. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á eftirfarandi: Aðildarviðræðum við Evrópu- sambandið verði hætt og þær ekki hafnar að nýju nema fyrir liggi sam þykki meirihluta landsmanna í þjóðaratkvæðagreiðslu. Frjáls viðskipti við önnur lönd verði tryggð með þátttöku Íslands í Evrópska efnahagssvæðinu og með gerð fríverslunar samninga við önnur ríki. Komandi kosningar snúast ekki um aðild að Evrópusambandinu heldur uppbyggingu atvinnulífsins, lækkun skatta og um hag heimilanna. Evrópusambandið mun ekki leysa þessi verkefni fyrir okkur. Við þurfum að gera það sjálf. Sjálfstæðisflokkurinn 1. Hver er afstaða framboðsins til tolla og innflutningsgjalda á innfluttar landbúnaðarvörur sem eru í samkeppni við innlenda búvöru? Tollar verði notaðir til að vernda innlenda búvöruframleiðslu með sambærilegum hætti og undanfarin ár. Standa þarf vörð um raungildi tollanna þannig að í þeim felist nauðsynleg vernd fyrir innlenda framleiðslu. Tollar eru mikilvægur hlekkur í að tryggja starfsskilyrði íslensks landbúnaðar. 2. Hver er afstaða framboðsins gagnvart hugsanlegum innflutningi á lifandi dýrum og/eða hráum, ómeðhöndluðum dýraafurðum? Regnboginn vill standa vörð um gildandi bann við innflutningi á lifandi búfé og hráu kjöti og/eða öðrum hráum og ómeð höndluðum dýraafurðum og standa þannig vörð um heilbrigði íslensks búfjár. Íslensku búfjárkynin eru einstök erfðaauðlind. Mikil verð mæti eru fólgin í sérstöðu þeirra bæði erfðafræði lega og heilbrigði þeirra. Verndun lýð heilsu er einnig hluti af þessu viðfangsefni. Mörg hættuleg smitefni sem berast með matvælum eru óþekkt hér á landi. Sýklalyfja notkun í íslenskum landbúnaði er einnig með því minnsta sem þekkist í Evrópu og eflaust þótt víðar væri leitað. Mikil verðmæti eru fólgin í þessari sérstöðu, þar með talinn sparnaður fyrir heilbrigðiskerfi okkar, fyrirtæki og heimili. 3. Telur framboðið nauðsynlegt að tryggja fæðu- og matvælaöryggi landsins? Ef svo, með hvaða hætti verður það best gert? Já, fæðu- og matvælaöryggi er einn af hornsteinum fullveldis þjóðarinnar. Íslendingar ráða yfir miklum auðlindum til matvælaframleiðslu og gæði íslenskara búvara eru með því besta sem þekkist. Fæðu-og matvælaöryggi verður best tryggt með styðja og efla innlenda matvælaframleiðslu. Tollvernd, beinar greiðslur til bænda og stuðningur við rannsóknir, nýsköpun og leiðbeiningar til bænda verði m.a. notuð til að ná þessu markmiði fram. Einnig þarf að skoða hvort skipuleggja þurfi birgðahald á tilteknum vörum eins og korni til fóðurs og matar. 4. Hvaða leið vill framboðið fara varðandi aðildarviðræður Íslands við Evrópu- sambandið? Er framboðið fylgjandi eða andvígt aðild að sambandinu? Sem alþjóðasinnar höfnum við aðild Íslands að Evrópusambandinu og viljum tafarlaus viðræðuslit og stöðvun á því aðlögunarferli sem nú á sér stað. Við teljum að Ísland eigi í samvinnu við Norðmenn að hefja endurskoðun á EES- samningnum. Við teljum viðskiptafrelsi þjóða mikilvægt og viljum stuðla að auknum viðskiptum Íslands við aðrar þjóðir óháð viðskiptablokkum. Regnboginn Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300 1. Hver er afstaða framboðsins til tolla og innflutningsgjalda á innfluttar land- búnaðarvörur sem eru í samkeppni við innlenda búvöru? XG Hægri grænir, flokkur fólksins er andsnúinn aðild Íslands að ESB og vill endurskoða EES-samninginn og helst segja okkur frá honum. Í staðinn vill flokkurinn að gerðir verði tvíhliða viðskiptasamningar við viðskiptalönd okkar. Í slíkum samningum yrði unnt að stilla betur þarfir okkar og óskir í þessum málum og að allar illa passandi tilskipanir utanlandsfrá verði úr sögunni. Á meðan er farsælast að halda öllu óbreyttu. 2. Hver er afstaða framboðsins gagn- vart hugsanlegum innflutningi á lifandi dýrum og/eða hráum, ómeðhöndluðum dýraafurðum? Flokkurinn vill banna allt það sem getur sett viðkvæma og sérstaka dýrastofna okkar í hættu. 3. Telur framboðið nauðsynlegt að tryggja fæðu- og matvælaöryggi landsins? Ef svo, með hvaða hætti verður það best gert? Við teljum það afar mikilvægt að trygga Ísland í þessum efnum komi t.d. til ófriðar. Þetta er eitt af aðalöryggismálum landsins samhliða öðrum mikilvægum öryggis- og landvarnarmálum. Með tvíhliða viðskiptasamningum við viðskiptaþjóðir okkar er þetta einmitt lykilsamningsatriði fyrir eyþjóð langt úti í hafi, sem væntanlega myndi fá mikinn skilning. 4 Hvaða leið vill framboðið fara varðandi aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið? Er framboðið fylgjandi eða andvígt aðild að sambandinu? Úr því sem komið er væri rétt að setja það í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort kjósendur vilji áframhald viðræðanna. Svarið við síðari hluta spurningarinnar hefur þegar komið fram. Hægri grænir 1. Hver er afstaða framboðsins til tolla og innflutningsgjalda á innfluttar land- búnaðarvörur sem eru í samkeppni við innlenda búvöru? Píratar greiddu atkvæði um stefnu sem gekk út á að afnema tolla á innflutt matvæli sem eru í samkeppni við innlenda búvöru. Tillagan var felld og flokkurinn hefur því ekki mótað sér stefnu í málinu. 2. Hver er afstaða framboðsins gagn- vart hugsanlegum innflutningi á lifandi dýrum og/eða hráum, ómeðhöndluðum dýraafurðum? Píratar vilja að tekin séu upp gæludýra- vegabréf að erlendri fyrirmynd svo auðveldara sé að flytja inn dýr af velferðarástæðum, t.d. blindrahunda. Tryggja þarf þó að smithætta sé eins lítil og unnt er. Píratar vilja einnig auka frelsi þegar kemur að innflutningi á dýrum sem öruggt er að lifi ekki af íslenskt veðurfar. Þá þarf að tryggja að eigendur sýni ábyrgð og setja þarf sérstakar reglur utan um þennann málaflokk. 3. Telur framboðið nauðsynlegt að tryggja fæðu- og matvælaöryggi landsins? Ef svo, með hvaða hætti verður það best gert? Með eflingu landbúnaðar og frjálsum línuveiðum. Sumir flokksmeðlimir hafa rætt það að skoða möguleikana á stóriðju í ræktun á grænmeti og ávöxtum með notkun jarðvarma. Ekkert hefur þó verið samþykkt eða ályktað í þeim efnum. 4. Hvaða leið vill framboðið fara varðandi aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið? Er framboðið fylgj- andi eða andvígt aðild að sambandinu? Píratar telja að ljúka eigi aðildarviðræðum og leggja samninginn til atkvæðagreiðslu hjá þjóðinni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.