Læknablaðið - 01.06.1962, Qupperneq 61
LÆKNABLAÐIÐ
8:;
þessa tegund eru oatcell, small
cell, round cell og spindle cell
carcinoma eftir frumubygg-
ingu, en alls konar millistig
koma þó fyrir og blönduð
æxli, þannig að fleiri frumu-
tegundir koma fyrir í einu og
sama æxlinu. Staðsetning er
yfirleitt í aðalberkjum eða
fyrstu greiningu, ]). e. þau
vaxa ofarlegar í berkjutrénu
en önnur æxli og berast þar
af leiðandi fljótar inn í mið-
mæti og einnig fljótar inn
í æðar og til annarra líffæra.
Einnig þessi tegund er algeng-
ari meðal karla en kvenna.
Margir telja þessa tegund svo
illkynjaða, að aðgerð sé alltaf
tilgangslaus, jafnvel ]>ótt ekki
finnist meinvörp, því að
reynslan sýni, að þessi æxli séu
ælíð vaxin út fyrir lungað og
lækning því vonlaus.
Ad. III: Adenocarcinoma er
heldur algengara lijá konum,
og um 50% lungnakrabba bjá
þeim eru af þessari tegund.
Staðsetningin er einkum i
smærri berkjum, þ. e. utar i
lunganu en þau, sem á undan
eru talin. Þeir sjúklingar, sem
fá þessi æxli, eru yngri en þeir,
sem fá aðrar tegundir lungna-
krabba. Þessi æxli vaxa hratt
og berast fljótt blóðleiðina i
önnur líffæri, einnig berast
þau fljótt með sogæðum. Þau
hafa mikla tilbneigingu til
þess að vaxa meðfram veggj-
um berkjukvíslanna í áttina að
lungnarótinni, og við brottnám
þeirra er því nauðsynlegt að
taka berkjugreinina í sundur
eins nálægt lungnarótinni og
unnt er (undirflokkar papil-
lare, clear cell).
Ad. IV: Bronehiolar carci-
noma, einnig kallað alveolar
cell carcinoma og adenoinato-
sis pulmonum,er svo sem nafn-
ið bendir til álitið vaxið frá
frumunum í terminal bronchi-
oli og eiga því upptök sin úl
við vfirborð lungans. Frum-
urnar eru oft slímmyndandi,
og það virðisl útiloka, að þau
geti átt upptök sín í alveoli,
eins og áður var álitið, og
einnig raða frumurnar sér oft-
asl í kringum broncbioli.
Þessi æxli vaxa bægt og ber-
ast seint í eilla. Tveim teg-
undum er lýst. Annars vegar
er æxli, sem líkist staðbund-
inni eða útbreiddri lungna-
bólgu í gráa bepatisalion-stig-
inu og getur náð yfir lungna-
blað eða jafnvel allt lungað.
Hin tegundin líkist meinvörp-
um, og álíta margir, að þau gcli
verið komin víðs vegar að i
byrjun, en aðrir álíta, að um sé
að ræða útbreiðslu eftir sog-
æðum eða að æxlisfrumurnar
dreifist eftir berkjutrénu, þ. e.
bronchogen plantation (aerial
metastases). Við sjúkdóms-
greiningu er bættast við að
villast á þessu æxli og bólgum.
Þessi tegund er álíka algeng
meðal karla og kvenna. Svip-