Læknablaðið - 01.06.1962, Síða 69
LÆKNABLAÐIÐ
91
er augljóslega tilgangslaus. Af
þeim 40—45%, sem teknir eru
til aðgerðar, reynist að
minnsta kosti helmingur hafa
óskurðtæk æxli. Þessar tölur
eru þó auðvitað mismunandi
frá hinum ýmsu stöðum. Sums
staðar eru gerðar aðgerðir lijá
hærri hundraðshluta en hér er
nefnt, en því fleiri reynast þá
óskurðtækir.
Skurðdauði eftir þessar að-
gerðir er mjög misjafn, hjá
flestum 10—15%, og fer fyrst
og fremst eftir því, hvers kon-
ar tilfelli menn taka til skurð-
aðgerða. Þeir, sem ekki snerta
við þeiin sjúklingum, sem eru
líklegir að hafa æxli á mörk-
unum að vera óskurðtæk, fá
eðlilega lægri dánartölu. En
við þessa sjúklinga má ekki
láta ófreistað að framkvæma
skurðaðgerð, því að það er
eina hatavonin.
Iielztu og alvarlegustu fylgi-
kvillar eftir aðgerðir eru fistill
frá berkju og út í lunga og
fleiðruliolsígerð, og er hælt-
ara við þeim, ef æxlið liggur
mjög ofarlega, en einkum þó
ef æxlisvefur finnst, þar sem
berkjan var tekin i sundur.
Fróunaraðgerðir koma auð-
vitað til greina við krabba-
mein í lungum eins og annars
staðar, og geta þær bætt líðan
sjúklinga verulega með því að
koma í veg fyrir hlóðhósta og
endurteknar lungnabólgur, og
einnig geta þær linað verki um
skeið.
Mjög skiptar skoðanir eru
um röntgengeisla til fróunar,
og sama gildir um frumueitr-
andi lvf, svo sem nitrogen
mustard og Endoxan. Mjög há-
spennt geislun, 1—2 millj. volt,
eða cohalt-geislun, hefur ver-
ið reynd sem lækning við
lungnakrabba, en hrein und-
antekning, að það liafi liorið
árangur.
Þar sem eftirrannsóknir
hafa verið gerðar, kemur í
ljós, að 5 árum eftir aðgerð
eru aðeins 5—10% sjúklinga
lifandi og án einkenna um aft-
urlcast (recidiv), og eru þá
taldir með þeir, sem ekki voru
teknir til aðgerðar. Ef um vel
afmörkuð æxli er að ræða, eru
allt að 35% lifandi eftir 5 ár,
ef ekki hefur fundizt útbreiðsla
í sogæðum eða blóðæðum.
Hjá Burford og samverka-
mönnum(3) voru 9% lifandi
eftir 5 ár af 1008 sjúklingum
með lungnakrabba. 22%
Jieirra, sem unnt var að gera
skurðaðgerð á,voru lifandi efl-
ir 5 ár. Hjá 60% sjúklinganna
var brjóstholið opnað í til-
raunaskyni, en aðeins reynd-
ist unnt að skera meinsemdina
brott hjá 35% þeirra. Brott-
nám lungans var framkvæmt
hjá 80% og lungnablaðs hjá
20%.
Boj'd (Lahey clinic) (4) held-
ur því fram, að árangur sé eins