Læknablaðið - 01.03.1964, Page 25
LÆKNABLAÐIÐ
3
greina aðalatriði frá aukaat-
riðum, bæði þar og í faglegum
efnum.
Björn sameinaði á fágætan
liátt reisn og prúðmennsku í
starfi og allri framkomu.
Hann gekk ekki margskiptur
að verki. Læknisstörfin og
heimilið áttu hann allan. Ég
hygg, að hann liafi verið sér-
lega góður heimilisfaðir og
hamingjusamur í einkalífi.
Björn var kvæntur ágætri
konu, Sólveigu Sigurhjörns-
dóttur, Þorkelssonar, og voru
þau samstúdentar úr Mennta-
skólanum. Þeim varð fjögurra
barna auðið. Þau eru: Hjördís
Gróa, nam að loknu stúdents-
prófi hókasafnsfræði í Osló;
Sigurður, cand med., vinnur i
Rannsóknarstofu Háskólans;
Elín Þórdís, nemandi í Mennta-
skólanum í Reykjavik, og Sig-
urhjörn, enn á barnaskóla-
aldri. Heimili þeirra var jafn-
an aðlaðandi og mikilsvert að
eiga þau að vinum.
Ólafur Geirsson.
Björn Júlíusson og Margrét Guðnadóttir:
IIULDUSÖTT*
(Q FEVER)
Huldusótt, Q eða Query fever
er hráður smitsjúkdómur, sem
sýkill af rickeltsia flokknum
veldur. Þessi rickettsia nefnist
Rickettsia hurneti eða Coxiella
hurneti. Sjúkdómurinn er frá-
brugðinn öðrum sjúkdómum,
er riclcettsiur valda að því leyti,
að honum fvlgja ekki úthrol
(exanthem) og Weil-Felix-
svörun er neikvæð, þ. e. a. s.
ekki myndast agglutinin gegn
X-stofnum af proteus vulgaris.
Kulda-agglutinationspróf er
neikvætt.
* Frá barnadeild Landspítalans
(Yfirlæknir: Kristbjörn Tryggva-
son) og Tiiraunastöð Háskólans i
meinafræði að Keldiun (Forstöðu-
niaður: Páll A. Pálsson).
Þessi sjúkdómur liefur ver-
ið þekktur síðan árið 1935. Þá
gaus upp hitasótt af ókunnum
uppruna meðal starfsfólks i
sláturhúsi í Queensland i
Ástralíu. Sóttin var kölluð
Query fever vegna liins ókunna
uppruna. Tveimur árum síð-
ar, árið 1937, tókst Derrik,
sem fyrstur greindi þennan
sjúkdóm kliniskt, að sýna
fram á, að rickettsia, er síðar
hlaut nafnið Rickettsia hurn-
eti, olli sjúkdómnum. Skömmu
seinna var sjúkdómurinn einn-
ig greindur í Bandaríkjunum.
Tókst að einangra þessa rick-
ettsiu frá mönnum og frá
skepnum, aðallcga nautpen-
ingi; frá ýmsum búfjárafurð-