Læknablaðið - 01.03.1964, Blaðsíða 57
LÆKNABLAÐIÐ
31
Þá tilkynnti formaður aðal-
nefndar alþjóðasamtakanna,
dr. Felix Worre frá Luxem-
burg, að dr. E. R. Annis, for-
maður ameríska læknafélags-
ins (AMA), hefði verið kjörinn
til þess að taka við formennsku
i World Medical Association
næsta ár. Tók hann við stjórn
fundarins og stjórnaði flestum
fundum, þar sem rætt var um
félagsmál.
Notuð voru fjögur tungu-
mál: enska, franska, spænska
og þýzka. Lætur nærri að 75%
af ræðunum hafi verið flultar
á ensku, um það hil 10% á
frönsku og álika mikið á
spænsku og um 5% á þýzku.
Allar ræður voru þýddar sam-
tímis, þannig að unnt var að
hlusta á livert þessara mála,
um leið og ræður voru fluttar.
Var til þess notað þráðlaust
samband með transistortækj-
um, og fékk hver fulltrúi slíkt
tæki til afnota, meðan á þing-
inu stóð.
Á morgnana frá kl. 9—1214
voru fundir um félagsmál
lækna, en síðdegis frá kl. 14—
17 voru erindi um fræðileg
efni. Tvo síðustu dagana var
þó einnig rætt um félagsmál
seinni hluta dags. Tvo daga
vikunnar var fulltrúum gefinn
kostur á að heimsækja ýmsar
stofnanir og sjúkrahús.
Við setningu þingsins voru
komnir fulltrúar frá 28 lönd-
um, en siðar hættist eilt land
við i hópinn, þannig að 29
lönd áttu fulltrúa á þinginu af
þeim 59, sem eru aðilar að
World Medical Association.
Eitt þeirra, Ethiopia, gekk í
sambandið á þessu þingi.
Auk fulltrúa og varafulltrúa
ásamt fastanefndum og starfs-
mönnum World Medical As-
sociation voru einnig á þing-
inu 200—300 áheyrnarfulltrú-
ar, flestir frá Bandaríkjunum,
en einnig nokkrir frá Evrópu.
Var það þó mál manna, að
þátttaka i þessu þingi væri
með minna móti.
Félagsmál.
Verður nú stultlega skýrt frá
félagsmálahluta þingsins og
þeim helztu málefnum, er þar
voru tekin til meðferðar.
Dr. J. G. Hunter skýrði frá
störfum skipulags- og fjár-
Iiagsnefndar (Planning and
Finance Commitee). Taldi
hann fjárhag WMA standa
mjög höllum fæti. Iðgjöld
hefðu ekki innheimzt nógu vel
og ekki hrokkið fyrir nauðsvn-
legum útgjöldum. Það, sem
bjargaði samtökunum í þetla
skipti, var ríflegt framlag frá
ameríska læknafélaginu
(AMA). Akveðið hefði verið
að halda 17. þing alþjóðasam-
takanna í Mexico City, en það
hefði reynzt ókleift. Kom þá
fram hið rausnarlega hoð AMA
um að halda þingið í New
York, og var það undirbúið