Fréttatíminn - 02.09.2011, Qupperneq 8
Tjúllaðar
tindaskötur!
Copyright ©
H
ergé / M
oulinsart 2009 - A
ll rights reserved – Credits – Term
s and Conditions / Privacy
Tvær nýjar Tinnabækur í safnið
Safnaðu þeim öllum
+ Bókaðu flug á www.icelandair.is
Innifalið: Flug aðra leiðina og flugvallar skattar. Þessi ferð gefur frá 1.500 til 4.500 Vildarpunkta aðra leiðina.
Noam Chomsky Maður-
inn sem New York Times
hefur kallað mikilvæg-
asta hugsuð samtímans
er að koma í fyrsta sinn
til Íslands.
AKADEMIAN EINN MERKASTI HUGSUÐUR SAMTÍMANS Á LEIÐ TIL ÍSLANDS
Chomsky með hraðari örgjörva
É g var við framhaldsnám í Banda-ríkjunum, var í Harvard og þá var það þannig að taka mátti helming
námsins í MIT [Massachusetts Institute
of Technology] og ég tók námskeið hjá
honum. Seinna, þegar ég var þar við
kennslu, hitti ég hann aftur. Mér fannst
stundum, þegar ég talaði við
Chomsky, að hann væri – ef
við notum líkingu úr tölvu-
geiranum – með hraðari
örgjörva en maður sjálfur,“
segir Höskuldur Þráinsson
prófessor.
Höskuldur er tengiliður
við dr. Noam Chomsky, sem
væntanlegur er til landsins og
heldur fyrirlestur næstkom-
andi föstudag á vegum hug-
vísindasviðs HÍ. Hann verður
öndvegisfyrirlesari á aldarafmælisári
Háskólans. Chomsky er málvísindamað-
ur, rithöfundur og virkur þátttakandi í
stjórnmálaumræðu – prófessor við MIT.
Vel er í lagt því menn spara sig hvergi
þegar mikilvægi hans er lýst. New York
Times hefur gengið svo langt að kalla
Chomsky mikilvægasta hugsuð samtím-
ans. Mikil spenna ríkir innan akademí-
unnar og víðar vegna komu Chomskys.
„Við höfum áhyggjur af því að þeir sem
vilja koma rúmist ekki í aðalsal Háskóla-
bíós,“ segir Höskuldur. Hugsuðurinn
er að koma fyrsta sinni til Íslands en
að minnsta kosti í tvígang hefur staðið
til að hann kæmi og var Höskuldur þá í
sambandi við hann. Í fyrra sinnið fékk
Chomsky í bakið og gat ekki ferðast og
fyrir tveimur árum veiktist kona hans og
dó í kjölfarið.
„Hann hlakkar mikið til en stoppar
stutt; kemur frá Noregi á fimmtudag og
fer á laugardag. Hann verður 83 ára í
desember en ferðast á fullu um heiminn
og flytur fyrirlestra opinberlega, oftast
um pólitísk efni.“ Höskuldur segir hugs-
anlegt að fara með hann til dæmis í Bláa
lónið. Helsta áhugamál hans utan fræð-
anna hefur verið seglbretta-íþróttin, en
Höskuldur gerir ekki ráð fyrir
að slíkt verði á dagskrá – hann
enda orðinn aldinn – né heldur
að gott sé að ná í hann með við-
tal í huga því hann sé stöðugt á
faraldsfæti: „Ég efast um að þú
náir í hann í gegnum farsíma.
Hann fór til Indlands fyrir um
tíu árum, hringdi þá í konu sína
og sagði henni að þeir Indverj-
ar væru komnir með skemmti-
leg tæki sem væru litlir símar
sem menn gætu borið með sér
og talað í hvar sem maður væri.“
Jakob Bjarnar Grétarsson
ritstjorn@frettatiminn.is
Höskuldur Þráins-
son prófessor.
Tengiliður Íslands
við Chomsky.
Helsta áhugamál
hans utan fræð-
anna hefur verið
seglbrettaíþrótt-
in, en Höskuldur
gerir ekki ráð
fyrir að slíkt verði
á dagskrá.
8 fréttir Helgin 2.-4. september 2011