Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.09.2011, Blaðsíða 35

Fréttatíminn - 02.09.2011, Blaðsíða 35
03 september 2011 Hann Gunnar Smári kom að máli við mig í sumar og bað mig um að stýra þessari röð,” segir Arnar Egg-ert Thoroddsen, framkvæmda-stjóri tónleikaraðar sem verð- ur í Vonarhúsinu, Efstaleiti 7, alla þriðjudaga (nema annan þriðjudag í hverjum mánuði) í haust; „við sammæltumst strax um að herja á grasrótina, draga upp það ferskasta og merki- legasta í íslenskri tónlist í dag, en auk þess lang- aði mig til að fá að auki sigldar merkissveitir og bjóða upp á eitthvað sérstakt, eins og t.a.m. rokkabillítónleika og endurspegla þá smáu en mjög svo öflugu senu,“ segir Arnar Eggert skelli- hlæjandi því það veður á honum og okkar mað- ur er líka ánægður með þetta því Agent Fresco startar tónleikaröðinni. Skálmöld, Mugison og Jónas Sig „Það er auðvitað stórkostlegt að geta hafið þetta með tónleikum Benna Hemm Hemm og Prins Póló. Benni er í algjörum sérflokki, sýn hans á það hvernig á að gera popptónlist er einstök og hann hefur lítið spilað hér heima undanfarið, enda búsettur í Skotlandi um árabil. Prins Póló hefur þá aflað sér orðstýr sem ein allra skemmti- legasta tónleikasveit landsins,“ segir Arnar en uppákomur sveitarinnar eru með öllu óútreikn- anlegar. „Það er vel við hæfi að byrja þessa röð með slíkum fallbyssum. Hljómburðurinn í Vonar- salnum er frábær og mun gera vel við Benna, prinsinn og áhorfendur. Þann 27. September munu Agent Fresco síðan spila en það er hik- laust frambærilegasta rokkband landsins og ein öflugasta tónleikasveit sem ég hef séð. Seinna í haust munu svo sigurvegarar Músíktilrauna, Samaris, troða upp og einnig Lára, Skálm- öld og þeir Mugison og Jónas Sig. sem munu verða með sérstaka uppákomu af tilefninu. Fleiri listamenn eru þá heitir fyrir framtakinu.” Arnar segir að heiti tónleikaraðarinnar sé kerskn- islegur útúrsnúningur á vel þekktu slagorði innan rokkheima, en það sé ekki alls kostar innantómt. “Það verður nefnilega nóg af kaffi og alltaf kaka beint úr ofninum sem fólk getur gætt sér á að kostnaðarlausu. Þetta verður Kaffi ógrynni af kaffi þarna og kökur sem fólk getur gætt sér á sér að kostnaðarlausu. Kaffi, kökur og rokk & ról!“ reiði edrúmaðurinn Arnar Eggert lofar fleiri og nokk furðulegri upp- átækjum og ræðir því samhengi um að reiða edrúmanninn sem muni halda stuttan reiðilestur á undan hverju bandi. „Þá verður alltaf sami prís á tónleikana, 500 kall, sama hver er að spila. Það sem við erum að reyna með þessu, eitthvað sem ég hef persónu- legan metnað fyrir, er að búa til tónleikaröð sem snýst um tónleika, eins barnalega og það hljóm- ar,“ segir Arnar en tónleikarnir verða sem fyrr seg- ir á þriðjudagskvöldum og verður mikil keyrsla því þeir byrja kl. 20 og eru búnir 22. „Þetta á að vera eitthvað fyrir sælkerann, að hann geti komið í upphafi viku, og NOTIÐ tónlist- arinnar, án þess að eyða 5-6 tímum af dýrmætum helgartíma í það. Ég þarf þá varla að taka það fram að eina hugvíkkandi efnið sem verður liðið þarna er kaffið – og kökurnar!“ -MT Kaffi, KÖKUr OG rOKK & rÓl Göngudeild SÁÁ er í glæsilegu 1.500 fermetra húsi í Efstaleiti 7 og þar eru líka skrifstofur og alskonar. En jú, þar er líka salur sem er rómaður fyrir góðan hljómburð og á þriðjudögum í haust verður þessi salur nýttur undir bullandi sveitta rOKKTÓNlEiKa. Benni Hemm Hemm og Prinspóló ríða á vaðið næsta þriðjudag en áhugasamir ættu að fylgjast með á Facebook og á heimasíðu samtakanna www.saa.is. arNar EGGErT THOrODDSEN „ég þarf þá varla að taka það fram að eina hugvíkkandi efnið sem verður liðið þarna er kaffið – og kökurnar!“ Svavar péTUr EYSTEiNSSON forsprakki prins póló. BENNi HEMM HEMM Benni er í algjörum sérflokki. HVAÐ: Tónleikar HVAR: Von, Efstaleiti 7 FYRIR HVERN: Allir velkomnir HVENÆR: Öll þriðjudags- kvöld (nema annan þriðju- dag í hverjum mánuði) NÁNAR: www.saa.is HEIðuRSMENN ER ENgINN kARLAkLúbbuR Það eru allir velkomnir í Heiðursmenn: „Annan hvern fimmtudag hittumst við á Vogi kl. 12,“ segir Maríus Óskarsson um félagsskap sem kallast Heiðursmenn og hefur haft það fyrirkomulag að bjóða heiðursgesti í mat á Vogi á tveggja vikna fresti síðustu tíu ár. „Sko, gesturinn mætir hálf tólf og fær kynningu á starfseminni síðan er sest við borð og málin rædd í þaula,“ útskýrir Maríus en oft skapast líflegar umræður því heiðursgesturinn er yfirleitt einhver sem er í deiglunni hverju sinni. Maríus segir að ekki sé um neinn karlaklúbb að ræða þótt fyrirbærið heiti Heiðursmenn. „Konur eru líka Heiðurs- menn og það eru allir velkomnir. Stund- um heldur fólk að það þurfi boðskort til að gerast Heiðursmenn en það er mis- skilningur. Þú bara mætir og sniðugt að skrá sig á póstlistann hjá okkur: heid- ursmenn@saa.is“ Sjálfur segir Maríus að það hafi eng- inn boðið sér heldur mætti hann bara því Heiðursmenn taki þátt í að styrkja starf- semi SÁÁ. Þá eru þeir oft í samstarfi við Kjarnakonur og líta svona meira á sig sem hulduher SÁÁ en nokkuð annað. „Og auðvitað tökum við þessu há- tíðlega og tökum þennan félagsskap al- varlega,“ segir Maríus en yfirleitt er góð mæting og oft um 40 manns sem hittast í hádeginu á Vogi. HVAÐ: Heiðursmenn HVAR: Á Vogi FYRIR HVERN: Allir velkomnir HVENÆR: Annan hvern fimmtudag frá kl. 12-13 NÁNAR: www.saa.is og svo gott að skrá sig á póstilsta hjá heidursmenn@saa.is MaríUS ÓSKarSSON „Konur eru líka Heiðursmenn og það eru allir velkomnir. Stundum heldur fólk að það þurfi boðskort til að gerast Heiðursmenn en það er misskilningur.“ HEiÐUrSMENN Á vOGi aðra hvora viku, í hádeginu á fimmtudegi, hittast Heiðursmenn á vogi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.