Fréttatíminn - 02.09.2011, Side 41
„Við alkóhólistar verðum að horfast í augu við
að það er verið að fara mjög illa með unga fólk-
ið okkar. Það er verið að ýta því út á jaðarinn í
samfélaginu, loka það úti. Það er búið að hamra
á því síðan einhvern tímann í grunnskóla að
það sé mislukkað, gallað og eigi enga framtíð
— nema að það verði eins og Hin. Og Hin eru
fólk sem situr stillt í skóla fram undir þrítugt,
sleppur út með einhverja BA-gráðu og situr svo
á rassinum á einhverjum fundum daginn út og
inn. Auðvitað er ekkert að því ef einhverjir vilja
verja lífi sínu svona. En að ætla að troða öllum
inn í þetta mót — með góðu og illu, fémútum og
lyfjagjöfum — er náttúrlega galið,” segir Gunnar
Smári Egilsson, formaður SÁÁ.
Samtökin eru nú að undirbúa prógramm til
að aðstoða ungt atvinnulaust fólk með áfengis-
og vímuefnavanda, sem er með litla menntun
og takmarkaða reynslu af vinnumarkaði.
„Við eigum að viðurkenna að það er ekk-
ert að þessum krökkum. Það er kerfið sem er
arfavitlaust,” segir Gunnar Smári. „Fyrir 30-40
árum fóru kannski 20 prósent af hverjum ár-
gangi í framhaldsskóla. Nú fara um 70 prósent
þangað. Og okkur finnst það ekki nóg. Samt vita
allir að framhaldsskólinn hefur ekki þroskast til
að taka á móti 70 prósent af fólkinu í stað 20
prósenta. Unga fólkið hefur ekkert breyst. Það
er með sömu genin, sömu hæfileikana, orkuna
og athyglina og áður. Í stað þess að skólinn
teygji sig í átt til áhuga stærri hóps hefur ork-
an farið í að reyna að steypa öllum börnunum
í sama mót. Börnunum er selt að lífið sé tapað
ef þú verður ekki eins og þessi 20 prósent, for-
eldrar eru skelfdir til að beita börnin óbærileg-
um þrýstingi eða reyna að breyta börnunum
með lyfjagjöfum, sálfræðiviðtölum, námsráð-
gjöf — hverjum sem er. Fæst af þessu hjálpar
fólki til að verða heilli eða betri manneskjur.
Þetta gengur meira og minna út á að normal-
ísera fólk; breyta öllum í námsráðgjafa sem
getur setið við skrifborð eða fundarborð allan
daginn og talað og talað og talað.”
forgangsröðun leiðinlega fólksins
„Það er líka einhver furðuleg forgangsröð i
gangi,” heldur Gunnar Smári áfram. „Þetta
er forgangsröð leiðinlega fólksins. Hún er sú
að fyrst áttu að mennta þig til atvinnuöryggis
og svo áttu að rækta sjálfan þig. Það var mað-
ur sem sagði að í heiminum væri tvenns kon-
ar tegundir af fólki. Fólk sem leiddist það sem
það starfaði við; druslaðist í gegnum daginn og
hlakkaði til helgarinnar og fríanna og hins veg-
ar fólk sem elskar það sem að gerir. Hjá því geta
þrír tímar liðið eins og fimm mínútur. Hjá hin-
um geta fimm mínútur liðið eins og þrír tímar.
Samrt viljum við að krakkarnir okkar noti for-
gangsröðun leiðinlega fólksins; mennti sig til
einhverrar vinnu en þeytist síðan á milli nám-
skeiða í leit að lífsfyllingu eða reyni að lifa í
gegnum börnin sín um helgar.”
„Þú ert ekki góður blaðamaður vegna þess
að þú hafðir góða kennara,” fullyrðir Gunnar
Smári allt í einu og ég hrekk við, átta mig á að
hann er tala við mig en ekki sjálfan sig eða fólk
almennt.
Ha, ég? segi ég til að segja eitthvað.
„Já, þú. Þú hafðir reyndar frábæra kennara
en það er ekki málið. Þú ert góður blaðamaður
af því þú ert góður Mikael Torfason. Þú ert besti
Mikael Torfason sem ég hef séð. Og ef þú hefðir
ekki verið góður Mikael Torfason hefðir þú ekki
getað lært neitt af þessum ágætu kennurum.
En vegna þess að þú ert góður Mikael Torfason
hefðir þú líka orðið góður í hverju sem þú hefð-
ir tekið þér fyrir hendurl. Þú hefðir orðið frá-
bær rafvirki, ráðgjafi, læknir eða leikari.”
Ég veit það nú ekki.
„Víst veistu það.”
Þögn.
„Fólk á líka bera virðingu fyrir vali krakk-
anna sem vilja ekki vera í skóla,” byrjar Gunnar
Smári aftur. „Það eru um 30 prósent krakkanna
sem byrja í framhaldsskóla sem hætta án þess
að klára hann. Þetta er aðeins skárra hlutfall
en hjá þeim sem byrjuðu á Grámosanum eft-
ir Thor, en samt frekar lélegt. Það gengur varð-
andi Grámosann að segja að hann sé samt góð
bók. Lesendurnir sem gáfust upp séu bara lé-
legir lesendur. En það gengur ekki með krakk-
ana og framhaldsskólann. Framhaldsskólinn
segist ætla að þjónusta alla krakka en gerir það
ekki. 30 prósent finna sig ekki í náminu, leið-
ist og hætta. Og við eigum ekki að garga á eftir
þeim að þeir séu lélegir nemendur. Það er ekk-
ert að þessum krökkum. Það er hins vegar eitt-
hvað alvarlegt að skólunum.”
Jón Gnarr og Ólafur ragnar
„Sá sem hættir í framhaldsskóla er ekki lélegur
nemandi,” heldur Gunnar Smári áfram. „Ekki
frekar en sá sem heldur áfram er lélegt drop-
out. Þú ert ekki blaðamaður eða rithöfundur
vegna þess að þér tókst ekki að verða BA í fé-
lagsfræði. Er það?”
Ha, nei.
„Nei, þú tókst menntaða ákvörðun um að
þú vildir ekki verða eins og formið sem var
verið að troða þér ofan í. Þú veltir fyrir þér að
kannski ættirðu að láta þig hafa það og breyta
síðan forminu innan frá; en þú sást að það var
tóm steypa. Þess vegna tókstu töskuna þína og
labbaðir út.”
Ég veit ekki hvort ég hafi hugsað akkúrat
svona.
„Eitthvað í þessa áttina alla vega,” fullyrðir
Gunnar Smári. „Ef sýndum öllum drengjum
eins og þér mynd af Ólafi Ragnari annars vegar
og Jóni Gnarr hins vegar og spyrðum hvorum
myndir þú vilja líkast; hver heldurðu að niður-
staðan yrði? 100 prósent drengjanna myndu
velja Jón vegna þess að hann vildi ekki láta
gangast undir það þrönga form sem við erum
að reyna að troða öllum í. Það myndi enginn
velja Ólaf Ragnar með doktorsprófið, prófess-
orstöðuna, Parliamentarians for Global Action
og allt það. Stelpurnar myndu hins vegar velja
Dorrit af því hún lítur út fyrir að vera ólíkinda-
tól sem lætur engan segja sér fyrir verkum.”
„En í sjálfu sér er ekkert að því að vera Ólaf-
ur Ragnar,” segir Gunnar Smári. „Það eru í raun
fáir sem eru betri í að vera þeir sjálfir en einmitt
hann. En ég á bara við að það geta ekki allir ver-
ið eins. Það getur ekki sami mælikvarðinn gilt
yfir okkur öll. Það er ekki hollt fyrir hvert okk-
ar og það er heldur ekki hollt fyrir allan hóp-
inn. Allir hópar verða að vera samsettir úr mis-
munandi fólki til að skapa einhverja spennu og
orku. Einhver verður að vera svoldið óþekkur,
annar dáldið óvirkur og sumir bara normal. Ef
við reynum að gera alla normal verður hópur-
inn geldur og leiðinlegur. Þessi samfélagstil-
raun að gera alla eins er því ekki aðeins skaðleg
einstaklingunum heldur líka hættuleg samfé-
laginu.”
Dásamlegar lendur normalítetsins
„Þegar ég var strákur sá maður stolta menn
labba inn í sjoppur, með vinnuvetlinga upp úr
rassvasanum og kaupa sér pulsu, kók og Dag-
blaðið,” heldur Gunnar Smári áfram. „Síðan
hefur maður gengið undir manns hönd til að
sannfæra verkalýðinn um að hann sé ómögu-
legur, lélegt lið sem mistókst að verða félags-
fræðingar. Og heldurðu að þetta hafi gert fólk
hamingjusamara?”
Uhh, nei.
„Nei, auðvitað ekki,” endurtók Gunnar
þaÐ SKEMMTilEGa Er allTaf SaTT
Það er að myndast jaðarhópur í
samfélaginu, týnda kynslóðin,
sem passar ekki í skólana og fær
ekki vinnu og berst við áfengis-
og vímuefnavanda. GUNNar
SMÁri EGilSSON, formaður
SÁÁ, sagði Mikael Torfasyni frá
því hvað hann vill gera til að
hjálpa strákum og stelpum sem
eru nákvæmlega eins og hann og
allir hinir gallagripirnir sem stigu
út fyrir normið.
08 09 september 2011 september 2011
GallaGripir Til BJarGar TÝNDU KYNSlÓÐiNNi
alla þriðjudaga kl. 16.15 munu nokkrir gallagripir bjóða ungu fólki til skrafs og ráðgerðar í vonarhúsinu að Efstaleiti 7. Borgarstjórinn og
gallagripurinn Jón Gnarr ríður á vaðið þriðjudaginn 13. September og svo koma þeir koll af kolli þessir drengir allir saman. þótt strákarnir, sem eitt
sinn þóttu meingallaðir, ríði á vaðið þá eru bæði stelpur og strákar sem átt hafa í vandræðum vegna áfengis- og vímefnaneyslu hvött til að mæta.
þetta er fyrir alla og þegar talið berst að stelpunum segir Bubbi Morthens að þær séu oft ekki jafn gallaðar og strákarnir hlæja flestir en Jón Gnarr
bætir því við að þær stæri sig heldur ekki eins mikið af öllu ruglinu. Strákar eru líka oft fyrirferðamiklir og í dag er það þannig að fleiri strákar
virðast utanveltu í kerfinu og tolla illa í skóla og eru lengur atvinnulausir en stelpurnar. þetta ræddu gallagripirnir þegar þeir mættu í von til að
láta taka þessa mynd af sér. Margir voru að hittast í fyrsta sinn í lengri tíma og Stefán Máni var þarna með krakkana sína sem Bubbi heillaði upp úr
skónum og Tolli og Guðmundur Oddur (sem var að koma frá Seyðisfirði) festust á samræðum um listina. Svo sögðu menn sögur af því hvað það var
erfitt að hætta að reykja og horfðu á Einar Örn vefja sér sígarettu. En það allt skiptir ekki máli því allir þessir menn hafa reynslu af því að hafa ekki
verið eins og fólk er flest og tekist að líta á það sem kost fremur en galla.
M
YN
D
: G
U
N
N
i G
U
N
N
Smári. „Hvort heldurðu að sé betra að vera
besti gröfukarlinn á Hellu eða þriðji lélegasti
félagsfræðingur í Reykjavík?”
Ég veit það ekki. Ég slátraði kjúklingum á
Hellu og var ágætur í því. Ég vildi hins vegar
ekki gera það að æfistarfinu.
„Enda var enginn að neyða þig til þess,”
svarar Gunnar Smári. „Það voru allir hins veg-
ar allir að neyða þig til að verða BA í einhverj-
um andskotanum. Ég ræddi við konu um dag-
inn sem sagði mér frá hvernig fjölskyldan tók
því þegar sonur hennar sagðist ekki vilja fara í
háskóla. Drengurinn var beittur miklum þrýst-
ingi svo hann drattaðist í verkfræði. Eftir ár var
hann kominn með upp í kok og vildi hætta.
Fjölskyldan fór aftur í gang og aftur lét dreng-
urinn undan en skipti um fag. Eftir ár var hann
aftur búinn að fá nóg en stóð nú fast á sínu og
þvertók fyrir frekara nám. Nú mörgum árum
seinna getur hann sagt mömmu sinni frá þess-
ari reynslu; að hafa alla fjölskylduna á móti sér
vegna þess að hann vildi ekki beygja sig undir
almennar kröfur samfélagsins um hvað er vel-
lukkað líf og hvað mislukkað. Hann sagði að lík-
lega hefði fjölskyldan stutt hann ef hann hefði
viljað fara í kynskiptiaðgerð. Og það er ekkert
að kynskiptiaðgerðum. En það er heldur ekkert
að því að vilja ekki vera verkfræðingur!”
„Annars veistu þetta allt,” fullyrðir Gunnar
Smári.
Hvað?
„Að framhalsskólanum hefur ekki einu
sinni tekist að aðlaga sig breyttum tíma; hvað
þá því að fá fjórum sinnum fleira fólk og það
allt annars konar fólk,” segir Gunnar Smári.
„Og það mætti sýna því skilning ef fólk væri
ekki að reyna að finna ástæðuna hjá þeim sem
vilja ekki vera í þessum gölluðu skólum. Það
er verið að greina þessa krakka með athyglis-
brest, ofvirkni, félagsfælni, námsörðugleika,
lesblindu, óvirkni, persónuleiaröskun og Guð
má vita hvað ekki; bara vegna þess að þau falla
ekki inn í form sem var aldrei ætlað þeim. Ef
þú værir allan daginn neyddur til að gera eitt-
hvað sem þér leiddist; heldurðu að þú sýndir
ekki einhver einkenni leiða og óþols?”
Jú, örugglega.
“Gerirðu einhverntímann eitthvað sem þér
leiðist?”
Já, ég get alveg pínt mig.
“Pínt þig til hvers; að gera eitthvað sem þú
vilt gera? Klára eitthvað sem þú vilt klára?”
Já.
„En ég er ekki að tala um það. Ég er að taka
um að vera píndur til að klára eðlisfræði 103,
dönsku 203 og félagsfræði 303 án þess að sjá
nokkurn tilgang með því, hafa enga ánægju
af því og af þeim sökum leiðast kennarinn,
þola ekki námsefnið og hata skólann með
manni og mús. Heldurðu að þú kæmist
í gegnum þetta án þess að sýna einhver
einkenni einhverjar röskunar?”
Nei, líklega ekki.
„En þú veist það ekki. Veistu hvers
vegna? Vegna þess að þú hefur aldrei pruf-
að þetta. Þú gerðir það sama og allir drop-
out-krakkar með sjálfsvirðingu; þú labbaðir
út,” fullurðir Gunnar Smári. „Og hvernig bregst
samfélagið við? Það hleypur á eftir krökkunum
og reynir að sannfæra þá í hundraðasta sinn að
baki þessari dönsku 103 sé tóm sæla og gleði.
Ef þau bara klára þennan áfangann og hinn
áfangann þá muni þau sleppa inn í dásam-
legar lendur normalítetsins. Þetta er ekki bara
heimskulegt heldur líka rangt. Það er ekkert
handan við þessa áfanga sem er ekki líka hérna
meginn.”
við getum bjargað þessum krökkum
„Við hjá SÁÁ viljum snúa þessu við,” segir
Gunnar Smári. „Við viljum segja við krakk-
ana að gera það sem þau vilja gera og hætta
að troða sér inn í helminginn sem er alltaf
að gera það sem honum leiðist. Farðu í sjó-
sund, fáðu þér gítar, rífðu kjaft, stattu á hönd-
um — bara ef þér finnst það gaman. Ef þér tekst
að gera eitthvað skemmtilegt og greina á milli
þess sem reynist þér vel og illa þá ertu hólpinn.
Þess vegan verðurðu að hætta að drekka og
dópa. Það drepur þig. En ef þú finnur eitthvað
annað sem er gaman þá geturðu rakið þig eftir
því. Vertu fyrst betri í að vera þú sjálfur. Ef þér
tekst það geturðu orðið hvað sem er.”
„Það er nefnilega leiðinlega fólkið sem
er að reyna að koma því inn hjá þér að
þú eigir að gera leiðinlega hluti,” segir
Gunnar Smári. „Að það sé jafnvel merki
um góðan karakter. Það er algjörlega
rangt. Þú ert með innbyggt í þig kerfi
sem leiðir þig að skemmtilegum hlutum.
Það er skemmtilegt að svala forvitni sinni.
Ef þér tekst það geturðu lært allt sem þú kær-
ir þig um. Þú munt hins vegar aldrei læra neitt
sem þú ert ekki forvitinn fyrir. Og þetta er ekki
bara spurning um námstækni. Þetta er grund-
vallaratriði í allri þekkingu. Eins og hið ein-
falda er vanalega satt þá er líka hið skemmti-
lega satt. Ég veit ekki um neitt sem er leiðinlegt
en er líka satt.”
En hvað ætlið þið í SÁÁ að gera?
„Við ætlum að biðja sveitarfélögin, ríkið.
Vinnumálastofnun um peninga og leyfi til að
taka við því unga fólki sem hefur litla menntun
og takmarkaða starfsreynslu, og sem á einnig
við áfengis- og vímuefnavanda að stríða, og
hjálpa því að ná áttum, kynnast sjálfum sér,
sættast við sig og finna hvað þeim finnst í raun
gefandi og skemmtilegt,” svarar Gunnar Smári.
„Þetta er sambland af meðferð, skemmtun,
námi, íþróttum, leiklist, vinnu og allskonar
dóti. Við munum virkja einstaklinga til að rétta
þessu krökkum hjálparhönd, fyrirtæki til að
taka þau í þjálfun, listamenn til að vinna með
þeim, íþróttamenn til að þjálfa þá og alls kyns
fólk til að gefa þeim tíma, athygli og eyra.”
Og mun ríkið borga?
„Ég veit það ekki ennþá,” viðurkennir
Gunnar Smári. „Við erum að kynna þetta fyr-
ir hinum og þessum. Vonandi kemur eitthvað
út úr því. Ég held að við getum lagt eitthvað
á okkur fyrir þessa krakka. Ef við gerum að
ekki munum við sitja uppi með týnda kyn-
slóð sem aldrei mun líta á sig sem hluta af
þessu samfélagi. Ekki af því að þau séu ekki
hæf til þess; heldur vegna þess að þau lesa
rétt í stöðuna. Þeim hefur verið hent út úr
kerfinu. Ég lít svo á að við séum á síðustu
stoppistöð áður en við lendum inni í einhvers-
konar Tottenham. Við getum bjargað krökk-
unum út úr vagninum núna, hleypt þeim aftur
inn í samfélagið jafnvel þótt þau vilji ekki verða
BA í félagsfræði — eða við getum haldið áfram
að skilgreina þau út á jaðarinn, greint þau sem
ónýt og látið þau á bætur með lágmarksfram-
færslu til æfiloka. Hvort myndir þú gera?”
Ef ég væri ráðherra?
„Já.”
Ég myndi vilja hafa þessa krakka með í sam-
félaginu.
„Þá held ég að þeta gangi upp.”
Nú, afhverju?
„Bara, ég held að fólkið í ríkisstjórninni sé
ekki vitlausara eða verra en þú.”
Takk.
„Þetta var ekkert illa meint.”
En ef ekki?
„Ef ekki hvað?”
Ef þið fáið ekki pening?
„Ég veit það ekki,” svarar Gunnar Smári.
„Kannski reynum við að safna peningum. Það
hefur margsinnist sýnt sig að þjóðin er betri en
ríkisstjórnin. Það á við um allar þjóðir og all-
ar ríkisstjórnir. Það virðist vera einskonar nátt-
úrulögmál.”
Og hvernig ætlið þið að safna peningum?
„Ég veit það ekki. Má ég skilja eftir reikn-
ingsnúmer í þessu viðtali?”
Þú ert formaðurinn og þá líklega útgefand-
inn.
„Þú ert blaðamaðurinn. Þú ræður.”
Ætlarðu að nota viðtalið mitt til að plögga
einhverjum bankareikningi?
„Já, hví ekki? Þetta er alvörumál Mikki minn.
Við getum ekki hjálpað þessum krökkum nema
allir leggist á eitt.”
Ókei.
„Okei, hvað?”
Komdu þá með reikningsnúmerið.
„Takk. Það er banki 116, höfuðbók 26 og
reikningsnúmer 452 og kennitala SÁÁ er
521095-2459.”
Nafn: Jón Gnarr
Aldur: 44
Starf: Borgarstjóri
Fyrri störf: Verkamaður og grínisti
menntun: Prófessor í Ekkert frá Háskól-
anum í hvergi (university of Nowhere)
Nafn: Einar Örn
Aldur: 48 ára (held ég)
Starf: Borgarfulltrúi,
tónlistarmaður, frumkvöðull
Fyrri störf: Póstbifreiða-
stjóri, bardyravörður,
barþjónn, blaðamaður,
verslunarmaður
menntun: Stúdentspróf, BA í
fjölmiðlafræði
Nafn: Stefán Máni
Aldur: 41
Starf: Rithöfundur
Fyrri störf: Fiskverkun,
byggingarvinna, bókband og
sambýli fyrir geðveika
menntun: Klára samræmdu prófin
en flosna upp úr námi á fyrsta ári í
menntaskóla
Nafn: Sigurjón M.
Egilsson
Aldur: 57 ára
Starf: Blaðamaður og
útgefandi
Fyrri störf: Sjómaður
og sölumaður
menntun:
Gagnfræðingur
Nafn: Bubbi
Morthens
Aldur: 55 ára
Starf: Laga- og textasmiður, söngvari,
rithöfundur
Fyrri störf: Verkamaður og sjómaður
menntun: Hætti í skóla 15 ára
Nafn: Mikael Torfason
Aldur: 37 ára
Starf: Rithöfundur og
blaðamaður
Fyrri störf: Verkamaður og
kjúklingaslátrari
menntun: Féll á samræmdu
prófunum
Nafn: KK
Aldur: 55 ára
Starf: Tónlistarmaður
Fyrri störf: Verkamaður,
uppskipun, skúringar
menntun: Pungapróf
Nafn: Tolli
Morthens
Aldur: 57
Starf: Listamaður
Fyrri störf: Sjómaður,
verkamaður,
Skógarhöggsmaður
menntun: Myndlistarskóli
Íslands, Berlínarháskóli
Nafn: Guðmundur oddur Magnússon
Aldur: 56 ára
Starf: Prófessor við Listaháskóla
Íslands
Fyrri störf: Gröfumaður Bröyt X2b
menntun: Drop-out úr mennta-
skóla, rekinn úr Myndlistar- og hand-
íðaskóla Íslands, Diploma-próf í graf-
ískri hönnun eftir meðferð
HVAÐ: Gallagripir
HVAR: Von, Efstaleiti 7
FYRIR HVERN: ungt fólk
HVENÆR: Alla þriðjudaga kl.
16.15 (einn og hálfur tími)
NÁNAR: www.saa.is