Fréttatíminn - 02.09.2011, Blaðsíða 54
Vestanhafs, þar sem markaður með stafrænar út-
gáfur hefur átt mestum vinsældum að fagna og 12%
af fullorðnum hafa nú aðgang að þannig búnaði, eru
menn farnir að upphugsa nýjar leiðir: Nook Barnes
og Noble blanda, í stafrænum útgáfum fyrir börn,
inn í sögurnar stækkunarmöguleikum á mynd-
skreytingum. Sagnaheimurinn er að öðlast líf sem
breytir enn lestrarnotum. Fyrir eldri lesendur hafa
útgefendur bætt inn myndböndum og hljóðfælum
til að auka efni útgáfunnar. Og nú er komið að
tónlistinni. Fyrirtækið Booktrack í New York er að
gera tilraunir með að setja tónlist og hljóðheim á
rás við lestextann til að auka mönnum upplifun,
segja þeir. Sumir myndu segja að slíkt takmarkaði
ánægjuna. Fyrsta bókin með hljóðrás var Power of
Six frá Harper Collins en fleiri eru væntanlegar: Stikilsberja-
Finnur, Jane Eyre, Rómeó og Júlía og Skytturnar. -pbb
Bækur með undirleik
Bókadómur Einn dagur
B jartur gaf út nýlega enska skáld-sögu, Einn dagur (One Day), eftir David Nicholls, sunnlending sem
er menntaður leikari frá Bristol og New
York. Sagan kom út 2009, féll lesendum
og gagnrýnendum vel í geð, var álitlegt
efni í kvikmynd og er nú í bíó. Ameríski
útgefandinn, Random House, kom að
framleiðslunni og er útgáfunni hér stillt
saman við sýningu á myndinni.
Sagan er 430 síður í kiljubroti, en hún
segir sögu tveggja Englendinga; Emmu
sem er að norðan úr lægri millistétt og
Dexters sem er að sunnan úr efri milli-
stétt. Þau hittast einn dag skömmu eftir
útskrift beggja úr háskóla, bæði 23 ára,
verja degi saman og nótt, verða ekki kær-
ustupar en elska í raun hvort annað sem
verður grunnur, brotinn grunnur, að ævi-
langri vináttu þeirra. Þetta er hefðbundin
frásaga, prýðilega unnin með afdrifa-
miklum atburðum í lífi tveggja einstak-
linga sem eru dregnir skýrum dráttum.
Frásögnin er að mestu í tímaröð en alltaf
miðuð við 15. júlí, helgidag úr engilsax-
neskum átrúnaði, Sviðhúnsmessu, sem er
lítt þekktur utan Bretlandseyja en þann
dag var trú manna að fram undan væri
vætutíð í 40 daga. Sviðhúnn var ákallaður
til að forða þurrki, ófrjósemi, ógæfu og
dauða. Eins og herjar í raun á líf þeirra
Emmu og Dexters. Allt til enda.
Sagan er niðurnjörvuð í breskt sam-
félag frá 1988 til 2006 með tilvísunum
í samtímasögu sem fáir þekkja nægi-
lega vel til hér á landi. Nicholls skrifaði
á sínum tíma fjóra þætti í Cold Feet sem
áskrifendur Stöðvar 2 þekkja og naut
mikilla vinsælda – þar var líka rakin í
tímaröð þroskasaga einstaklinga. Hann
hefur skrifað handrit að sjónvarpsgerð
eftir sögum Hardys, bæði Tess og er nú
að vinna að Far from the Madding Crowd.
Hann sækir frásagnarhátt til ensku skáld-
sögunnar á nítjándu öld þar sem áhersla
er lögð á dæmigerða stéttarfulltrúa, eðlis-
læg sjónarmið uppeldis og ætta sem ráða
örlögum, ást og virðing er í fyrirrúmi
með skýrum lýsingum á innra lífi, tilfinn-
ingum, ríkri útmálun þátta í umhverfi,
fatnaði, stjórnmálum, tónlist, húsnæði,
innréttingum, heimsmynd sem okkur er
búin.
Einn dagur er ekki merkileg við fyrstu
kynni en vinnur hratt á. Siðaboð Nicholls
er hluti af lífsviðhorfi sem við þekkjum:
Sá sem sækist eftir munaði og lífsgildum
yfirstéttarinnar ferst, ytra brjál er þér
aldrei til gæfu, sá sem er trúr sínu og upp-
runa verður um síðir sigurvegari, hinn
sem hreykir sér tapar öllu, fyrst sjálfum
sér. Sagan er á köflum popp, uppákomur
spaugilegar, tilfinningasemi nýtt af mik-
illi smekkvísi til að keyra upp í lesanda
spennu, Nicholls er hófsamur í tækni-
brögðum og stilltur í leik sínum með hug
lesandans. Sagan er notalegur lestur.
Þeim sem kunnugur er breskum sam-
félagsháttum er bókin endalaus skemmt-
un; reyndar þótti mér fyrsti parturinn
veikastur að þessu leyti. Höfundurinn
notar með skipulögðum hætti hin stétt-
bundnu svæði London til að segja sína
sögu og gerir það af miklu hugviti.
Þýðingin er ekki nógu góð: „Svona
andlit þar sem beinin sjást undir húðinni“
gæti verið skarpholda í andliti, „nektar-
sund“ er ekki til íslensku, „leiðsöguspeki“
eða „sirkusfærni“ ekki heldur, hvað þá
„lautarferðarborð“. Þessi samsettu orð
skiljast en önnur eins og „blásokkar“
ekki. Þetta er til dæmis um nafnyrði, tína
mætti til fleiri setningarbúta; viðbragðið
„Ég held að mér sé að verða óglatt“
notum við með orðunum „Ég gæti ælt ...“.
„Andlitið hringir einhverri bjöllu“ er ekki
sæmandi þýðing. Telja mætti fleiri tor-
kennilega staði úr þýðingunni sem víða
er með enskum setningarblæ. Svo eru
smáatriði þekkingarlegs eðlis sem Arnar
flaskar á: Artful Dodger í Oliver Tvist
hefur verið kallaður Hrappur æ síðan Páll
Eggert Ólafsson þýddi söguna 1906.
Einn dagur er falleg og vel hugsuð
skáldsaga sem allur fjöldi lesenda getur
notið. Örugglega betri en myndin.
34 bækur Helgin 2.-4. september 2011
TímariT riTið Er háskólinn í krísu?
Bækur
Páll Baldvin Baldvinsson
pbb@frettatiminn.is
Vestanhafs skilja menn
ekki hvað tefur stórfellda
útgáfu á kennslubókum í
stafrænu formi. Tímaritið
Wired segir á heimasíðu
sinni að útgefendur
standi í vegi fyrir því.
Rúmlega fjóðungur
nemenda í framhalds-
skólum vestanhafs
telur lappinn vera helsta
námstæki sitt og þá
fylgir að menn nálgast
námsbækur í stafrænu
formi á straumum og
nappa þeim. -pbb
Að stela kennslubókum
Eitt par, margir
dagar, tuttugu ár
Jón Gnarr borgarstjóri
trónir á toppi met-
sölulista Félags íslenskra
bókaútgefenda fyrir
síðustu vikur yfir íslensk
skáldverk með bók sinni
Indjánanum, sem kom
út í kilju í sumar, fimm
árum eftir að hún kom
út í fyrsta sinn.
BorgarsTjóri
á Toppnum
David Nichols
Tímarit hugvísindadeildar Háskóla Íslands er helsti vett-
vangur manna þar á bæ fyrir fræðilega umræðu en auk
Ritsins heldur hugvísindadeildin úti www.hugras.is sem er
vettvangur styttri greina. Ritið hefur lengi verið merkilegur
vettvangur þótt það hafi farið hljótt. Það er sjaldan kallað á
milli vettvanga, milli tímarita, vefrita og
spjallsíðna, sem er miður. Talsamband er
hér á landi mest um karp.
Í nýja heftinu er fjallað um háskólamál
í nútíð og fortíð og þar er gerð tilraun til
að skilgreina háskóla sem samfélagslegt
og sögulegt fyrirbrigði. Þar er líka tæpt á
umræðu sem fer vaxandi innan human-
iora: Hver var þáttur fræðasamfélagsins í
gagnrýnisleysi og meðvirkni á þenslu-
tíma fyrir kreppu, hvar liggur ábyrgð
háskólanna? Því er spurt um akademískt
frelsi, skólasamfélagið sem átakasvæði
og þjónustustofnun fyrir frek og áköf
afskipti hagsmunaaðila í atvinnulífi. Eins
um raunverulega afstöðu stjórnmála-
manna sem margir hverjir hafa litla sem
enga þekkingu á vaxandi fjölda starfs-
sviða samfélagsins sem þeir setja þó
lagaramma um með aðstoð augnaþjóna sinna í ráðuneytunum.
Helstu greinar í nýja heftinu eru Af veikum mætti, ábyrgðar
og gagnrýnishlutverk háskólans eftir Irmu Erlingsdóttur; Rót-
tækur háskóli – tvíræður háskóli eftir Jón Ólafsson; Háskólar
og gagnrýnin þjóðfélagsumræða eftir Jón Torfa Jónasson; Há-
skólabóla. Um námsframboð og vinsældir náms í góðæri eftir
Gauta Sigþórsson; Háskólar. Valdastofnun eða viðnámsafl.
Þetta eru þemagreinar heftisins undir yfirskriftinni Háskólinn
í krísu.
Utan þess eru aðsendar greinar í heftinu sem er 229 blað-
síður: Guðni Elísson heldur áfram að rekja þræði í sundur í
málflutningi frjálshyggjumanna og að þessu sinni eru það
loftslagsbreytingar sem hann skoðar, upplýsing og afneitun.
Greinin heitir Dómsdagsklukkan tifar. Björn Þór Vilhjálmsson
fjallar um fyrirbrigði af ýmsum stofni í skáldsögu eftir Steinar
Braga. Sigrún Margrét Guðmundsdóttir skrifar um skáldskap
Guðrúnar Evu Mínervudóttur. Þá er í heftinu þýðing á grein
eftir Jonathan Cole um akademískt frelsi og frjálsar rann-
sóknir.
Hægt er að panta heftið hjá Háskólaútgáfunni og senda þær
á mgu@hi.is. Svo fæst það í öllum betri bókaverslunum. -pbb
Spurningar vakna
um háskólana
Einn dagur
David Nicholls
Arnar Matthíasson þýddi
Bjartur, 430 bls. 2011
Vönduð ensk samtímasaga.
Tímaritið
Ritið frá
hug-
vísinda-
deild
Háskóla
Íslands
er komið
út.
Bókin Power of Six.
... falleg og
vel hugsuð
skáldsaga
sem allur
fjöldi les-
enda getur
notið.
www.heilsumeistaraskolinn.com s. 892-6004
Tilboðsverð til 9. september 38.000kr
Hentar öllum sem vinna með heilsu og lækningar, hefðbundnar
og heildrænar s.s.læknum, græðurum og sálfræðingum
19. - 20. nóvember 2011
Einn virtasti frumkvöðull á sviði
lithimnugreiningar - IRIDOLOGY
Dr. Daniele Lo Rito læknir (MD)
verður með námskeið í TIME RISK
greiningu á áföllum á lífsleiðinni í lithimnum
Í fyrsta sinn á ÍSLANDI
mun ítalski læknirinn
DR. DANIELE LO RITO kenna
TIME RISK