Fréttatíminn


Fréttatíminn - 09.09.2011, Page 4

Fréttatíminn - 09.09.2011, Page 4
Turninum | Smáratorgi 3 | 201 Kópavogi Sími 575 7500 | www.veisluturninn.is Ráðstefnur & fundir Fullkomin aðstaða fyrir allt að 500 manns Metanbíll valinn Bíll ársins Í fyrsta sinn yfir 100 þúsund í einum mánuði Alls fór 101.841 erlendur ferðamaður frá landinu í nýliðnum ágúst eða um 12 þúsund fleiri en í sama mánuði í fyrra, samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Aukningin nemur 13,7% milli ára. Erlendir ferðamenn hafa aldrei áður farið yfir 100 þúsund í einum mánuði og eru þeir nú helmingi fleiri en þeir voru í ágústmánuði 2002. Þegar litið er til einstakra markaðssvæða má sjá verulega aukningu frá N-Ameríku milli ára eða um 52,8%. Bretum fjölgar um 9,6% frá því í fyrra, Norðurlandabúum um 8,7% og Mið- og S-Evrópubúum um 8,1%. Það sem af er ári hafa 406.484 erlendir ferðamenn farið frá landinu eða 62.211 fleiri en á sama tímabili í fyrra en um er að ræða 18,1% aukningu milli ára. - jh Laun hækkuðu um 2,4% frá fyrri ársfjórðungi Regluleg laun voru að meðaltali 2,4% hærri á öðrum ársfjórðungi 2011 en í ársfjórð- ungnum á undan. Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 2,9% en laun opinberra starfsmanna hækkuðu um 1,2% að meðaltali. Frá fyrra ári hækk- uðu laun um 5,7% að meðaltali; hækkunin var 7,1% á almennum vinnumarkaði og 2,7% hjá opinberum starfsmönnum, að því er Hagstofa Íslands greinir frá. Frá fyrra ári hækkuðu laun mest í fjármálaþjónustu, líf- eyrissjóðum og vátryggingum eða um 9,8% en minnst í byggingarstarfsemi og mann- virkjagerð, um 3,4%. Þá hækkuðu laun þjónustufólks mest frá fyrri ársfjórðungi eða um 3,5%. - jh Minningardagskrá um dánu skáldin í Kópavogi Ritlistarhópur Kópavogs stendur fyrir minningardagskrá um dánu skáldin úr Kópavogi næstkomandi þriðjudag, 13. september, í Forsælunni við Salinn í Kópavogi. Dagskráin hefst kl. 20. Erindi verða flutt um átta skáld sem farin eru yfir móðuna miklu. Aðgangur er ókeypis. Dagskráin hefst með ávarpi Hafsteins Karlssonar, formanns menningar- og þróunarráðs Kópavogs. Því næst flytur Jón Guðlaugur Magnússon erindi um Jón úr Vör, Kristmundur Halldórsson flytur erindi um Böðvar Guðlaugsson, Guð- mundur Ólafsson flytur erindi um Geirlaug Magnússon, Ólafur Sverrir Kjartansson flytur erindi um Kjartan Árnason og Hjörtur Pálsson flytur erindi um Jón Bjarman. Þá flytur Gerður Gröndal erindi um Gylfa Gröndal og Vilhjálmur Einarsson erindi um Þorstein Valdimarsson. Að lokum flytur Gunnar Ingi Birgisson erindi um Sigurð Geirdal. - jh Í slenska ríkið fær ellefu milljónir fyrir Sementsverksmiðjuna sem seld var í október 2003. Þetta var staðfest með nauðasamningi í júní á þessu ári. Þar með er átta ára raunasögu innheimtu ríkisins á hendur kaupend- um verksmiðjunnar lokið. Upphaflegt kaupverð var sextíu og átta milljónir en var aldrei greitt, líkt og Ríkisendur- skoðun gerði athugasemd við í skýrslu í lok fyrra árs. Þá var skuld Íslensks sements ehf., kaupanda verskmiðjunnar, komin upp í 118 milljónir með vöxtum og dráttarvöxtum. Forsaga málsins er að við gerð kaupsamningsins árið 2003 var gerður fyrirvari um samþykki ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, í kjölfar kæru Aalborg Portland á hendur íslenska ríkinu vegna lífeyrisskuldbindinga Sem- entsverksmiðjunnar sem ríkið tók yfir. Rannsókn ESA tók fimm ár og gagn- rýndi Ríkisendurskoðun stofnunina fyrir seinagang í rannsókninni. Eftir að samþykki lá fyrir, árið 2010, gerði íslenska ríkið tilraunir til að innheimta kaupverðið, án árangurs. Á þessu ári var síðan hafist handa við að reyna að ná fram nauðasamningum og segir Rósa Björk Brynjólfsdóttir, upplýsingafulltrúi fjármálaráðuneytisins, í samtali við Fréttatímann að íslenska ríkið hafi stað- ið frammi fyrir því að fá eitthvað fyrir sinn snúð eða ekki neitt. Fyrri kosturinn hefði verið skárri þótt afskrifa þyrfti tugi milljóna af kaupverðinu. Niðurstaðan varð því sú að ríkið fékk ellefu af þeim hundrað og átján milljónum sem því bar – átta árum eftir að kaupin höfðu átt sér stað. Gunnlaugur Kristinsson, forstjóri Ríkið fær ellefu milljónir fyrir Sementsverksmiðjuna  Einkavæðing Átta Ára fErli lokið Ein torsóttasta einkavæðing síðustu ára hefur verið leidd til lykta. Ríkið fær einn sjötta af upp- haflegu kaupverði í nauðasamningum átta árum eftir að salan fór fram. Sementsverksmiðjan á Akranesi. Björgunar sem var og er stærsti hluthafi Íslensks sements, segir að Sementsverksmiðjan hafi ekki verið rekstrarhæf árið 2010 en endurreist þegar Arion banki, sem tók yfir hlut BM Vallár í félaginu, breytti kröfum í hlutafé. Stærstu hluthafar Íslensks sements eru Björgun og norska sem- entsfyrirtækið NorCem, sem er einnig stór hluthafi í Björgun. Gunnlaugur segir að ekki hafi komið til greina að greiða hlut BM Vallár í upphaflegu kaupverði þar sem stór hluti vandræða Sementsverksmiðjunnar hafi verið til- kominn vegna skuldar BM Vallár við fyrirtækið. „Björgun og Norcem áttu kröfur á Íslenskt sement sem voru af- skrifaðar. Það var svo sem ekki annar kostur en að ganga að þessum samn- ingum eða gera félagið gjaldþrota,“ segir Gunnlaugur. Spurður um seinagang kaupenda við að efna greiðslu til ríkisins segir Gunn- laugur að samkvæmt samkomulagi við ríkið hafi kaupverðið ekki átt að greiðast fyrr en ESA hefði með form- legum hætti klárað sín mál. „Það var gert snemma árs 2010. Það var aldrei hagur hluthafa Íslensks sements að borga ekki kaupverðið og ég veit að það voru lagðir peningar í að senda menn til Brüssel til að reyna að flýta málinu hjá ESA. Það voru lagðir miklir peningar inn í Íslenskt sement til að halda því starfandi og það voru ein- faldlega takmörk fyrir því hvað menn höfðu burði til að gera það lengi. Einn af þremur hluthöfum var gjaldþrota og nauðasamningar voru eina leiðin,“ segir Gunnlaugur. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@ frettatiminn.is Niðurstaðan varð því sú að ríkið fékk ellefu af þeim hundr- að og átján milljónum sem því bar – átta árum eftir að kaupin höfðu átt sér stað. Volkswagen Passat í metanútfærslu hefur verið valinn Bíll ársins 2012 af Bandalagi íslenskra bílablaðamanna. Alls komust níu bílar í úrslit í þremur flokkum, að því er fram kemur á síðu Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Passat sigraði í flokki hybrid- og metanbíla, Lexus CT 200 varð í öðru sæti og Toyota Auris í því þriðja. Í flokki minni fólksbíla varð Audi A1 hlutskarpastur, Ford Focus varð í öðru sæti en Ford Fiesta í því þriðja. Í flokki stærri fólksbíla sigraði Volvo V60, í öðru sæti varð BMW 520 og Kia Sportage í þriðja. Volkswagen Passat fékk flest stig allra bílanna og fær sæmdarheitið Bíll ársins 2012. Bíll ársins, VW Passat EcoFuel er verksmiðjubyggður metanbíll. Hér á landi er metan innlendur orkugjafi og því skattfrjálst bifreiðaelds- neyti. Bíllinn er enn fremur undanþeginn vörugjöldum og því verulega ódýrari en sami bíll sem fluttur er inn án metanbúnaðar. - jh vEður föstudagur laugardagur sunnudagur Veðurvaktin ehf Ráðgjafafyrirtæki í eigu Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings. Veður- vaktin býður upp á veður- þjónustu fyrir einstaklinga, fyrirtæki og opinbera aðila í ráðgjöf og úrvinnslu flestu því sem viðkemur veðri og veðurfari. Veðurvaktin ehf Eikarási 8, 210 Garðabæ Sími: 857 1799 www.vedurvaktin.is NorðaNátt ekki sVo HVöss. Léttir tiL uM MikiNN HLuta LaNdsiNs. áfraM frekar kaLt í Veðri og Næturfrost. HöfuðBorgarsVæðið: HæG NA-ÁTT oG LéTTSKýJAð. SæMILEGA HLýTT uM MIðJAN DAGINN. Bjart Veður Víðast HVar, eN ÞykkNar upp og fer að rigNa uM kVöLdið suð- austaNtiL. Hægt VaxaNdi a-ViNdur. HöfuðBorgarsVæðið: LéTTSKýJAð oG MIKILL HITAMuNuR DAGS oG NæTuR. fer að rigNa uM LaNd aLLt, eiNkuM ÞÓ austaNtiL. Nokkuð HVasst af austri og Norðaustri. HöfuðBorgarsVæðið: SKýJAð oG LÍTILSHÁTTAR RIGNING uM TÍMA. kuldakastinu lýkur um helgina Þessi kuldatíð sem steyptist yfir okkur nánast eins og hendi væri veifað mun halda fram á laugardag. Vind hægir þó og um leið eykst hættan á frosti yfir nóttina á láglendi. Einkum aðfararnótt laugardags. Hætt er þá við að kartöflugrös falli víða og berin frjósi. Á laugardag verður myndarleg lægð fyrir sunnan land og á hægfara austurleið. Hún beinir til okkar mildara lofti. Á sunnudag er spáð rigningu um mikinn hluta landsins og allhvössum vindi af A og NA. Restarnar af fellybylnum Katia munu síðan keyra inn í þessa sömu lægð. 10 7 6 6 11 12 7 6 7 9 10 8 8 8 9 einar sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is 4 fréttir Helgin 9.-11. september 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.