Fréttatíminn - 09.09.2011, Síða 20
Bröns
alla laugardaga og sunnudaga
Aðalstræti 2 | 101 Reykjavík | Sími: 517 4300 | www.geysirbistrobar.is
Verð
aðeins
1.895
með kaffi
eða te
Lára Björg Björnsdóttir
rithöfundur
Brá svo að ég fór að gráta
„Ég var í Ostabúðinni á Skólavörðustíg
með þriggja mánaða son minn í fanginu
að kaupa
fondue-pott
í brúðargjöf
þegar fréttir
bárust af
fyrri vélinni.
Útvarpið var
hækkað í
botn, fréttir
auðvitað þá
mjög óljósar
og þulurinn
sagði að nú
væru hafnar
loftárásir á
Bandaríkin. Á
þessum tíma
bjó besta
vinkona mín
í New York og systir mín í San Francisco.
Mér brá svo að ég fór að hágráta og af-
greiðslukonan varð að halda á syni mínum
á meðan ég jafnaði mig.
Fyrir New York held ég að þessar árásir
hafi aukið samkennd og þjappað borgar-
búum saman. Hvað varðar heimsbyggðina
sjálfa, fóru af stað ýmis stríð í nafni „War
on terror“ með oft og tíðum skelfilegum
afleiðingum fyrir saklausa borgara. Hvað
mig sjálfa varðar þá fer ég ekki í flugvél
án þess að svitna og reyna hvað ég get
að spotta „fluglögguna“ og senda SMS á
klukkutíma fresti til ástvina, bara til vonar
og vara.“
Salvör Kristjana Gissurardóttir
lektor
Steinn sem braut
niður heimsveldi USA
„Ég var í starfi mínu í forsætisráðuneytinu.
Ég man meira að segja tölvupóstinn sem
ég var að skrifa þegar starfsfélagi kemur
inn (hún hafði verið niðri í Stjórnarráðs-
húsinu en ég var uppi á 5. hæð í húsinu
fyrir aftan). Hún segir okkur frá þessu
og við kveikjum á sjónvarpinu í fundar-
herberginu á horninu þar sem sést yfir
Reykjavík. Þar horfðum við á turnana
hrynja. Heimsmyndina hrynja. Svo kom
dóttir mín og sambýlismaður hennar og
mamma hans. Þau höfðu verið í jarðarför
og vissu ekkert hvað hafði gerst. Það var
verið að jarða ömmu hans, Helgu. Ég vissi
ekki fyrr en ég las minningargreinarnar
um morguninn að Helga amma hans væri
Dimmalimm. Hún var ævintýraprinsessan
í ævintýri Muggs frænda síns, bókin var
skrifuð um hana og fyrir hana.
Svo var það þannig að vefstjóri stjórnar-
ráðsins var
farinn heim
eða var í fríi
en ríkis-
stjórnin kom
strax saman
og samdi
samúðar- og
sorgaryfir-
lýsingu til
Bandaríkjanna
og það
seinasta sem
ég gerði áður
en ég fór heim
úr vinnunni
þennan dag
var að koma
því á vef
stjórnarráðsins.
Árásirnar breyttu heimsmyndinni og
þær voru fyrsti sjáanlegi steinninn sem
braut niður veldi Bandaríkjamanna.
Innrásin í Afganistan breytti líka miklu í
lífi mínu. Sambýlismaður minn fór út til
Afganistan til friðargæslu. Hann var þá í
skotheldu vesti og með tvær byssur allan
daginn. Og þegar hann var að koma heim
þegar dóttir okkar fermdist þá voru tvær
rútur friðargæsluliða á leið út á flug-
völlinn í Kabúl og önnur var sprengt upp í
hryðjuverkaárásl. Ég las það bara á BBC og
heyrði í RÚV og vissi ekki í sólarhring um
afdrif hans. En hann var í hinni rútunni.
Stríð kom inn í minn heim. Stríð kom inn
í mína fjölskyldu.“
Andri Freyr Viðarsson
útvarpsmaður
Kaninn fékk formlegt skotleyfi
„Já, ég man hvar ég var staddur. Í fyrsta
skipti á ævinni sem ég fór upp í ljósabekk
var 11. september 2001. Þarn lá ég með
útvarpið í
eyrunum,
hugsandi
um hvað
þetta væri
ógeðslega
heimskulegt
og óþægilegt
þegar
útsendingin
er allt í einu
rofin með því-
líkum látum.
Ég stökk upp
úr bekknum,
hljóp heim,
skellti VHS-spólu í tækið og tók upp
hörmungarnar fyrir aftan tónleika sem
Nirvana spiluðu í MTV.“
„Hverju breyttu þessar árásir? Þetta
breytti miklu. French fries hétu allt í
einu freedom fries. Kaninn fékk form-
legt skotleyfi á araba og sennilega hafa
Bandaríkjamenn aldrei verið heimskari
enda aldrei verið mataðir jafn gróflega á
vitleysu og rugli.“
Ingunn Snædal
skáld
Menn tvístigu og ráfuðu um
„Hinn 11. september 2001 var ég stödd í
London og átti flug snemma að morgni
þess 12. til
Spánar þar
sem við mað-
urinn minn
vorum að fara
að vinna. Ég
sat fyrir utan
bar í Brixton
þegar einhver
urgur varð
allt í einu í
fastagest-
unum inni við
barinn; þeir
vildu að bar-
þjónninn skipti
um rás, hvað í andskotanum er þetta
eiginlega, hvað er í gangi? Það tók við-
stadda smástund að átta sig á að það væri
Hin risastóra raunveruleikasprauta
Á sunnudaginn eru tíu ár liðin frá því að dagsetningin 11. september var geirnegld í
sögubækurnar. Jakob Bjarnar Grétarsson gerði óformlega könnun og hafði samband við fólk
af algjöru handahófi og spurði einfaldlega: Hvar varstu þegar árásirnar á tvíburaturnana voru
gerðar? Og í kjölfarið hvort þetta hefði breytt einhverju? Það kemur á daginn að allir muna
glögglega hvar þeir voru þegar fréttir af voðaverkunum bárust; tveir viðmælenda blaðsins voru
í ljósabekkjum, einn var í ostabúð, einn í forsætisráðuneytinu, enn einn í London á meðan annar
heima hjá sér og einn þeirra var í raftækjaverslun og sá atburðina í fjölda viðtækja.
Heimurinn var
ekki samur eftir
Árásirnar ollu straumhvörfum í öryggis- og varnarmálum
flestra þjóða. 11. september 2001 er greyptur í hug manna.
Þriðjudagurinn 11. september
2001 er greyptur í hug manna
um allan heim; dagurinn er
fjórum farþegaþotum var rænt á
flugi yfir austurströnd Banda-
ríkjanna. Tveimur þeirra var
flogið á World Trade Center í
New York, tvíburaturnana svo-
kölluðu og eitt helsta kennileiti
borgarinnar og Bandaríkjanna
um leið. Þeirri þriðju var flogið
á varnarmálaráðuneyti Banda-
ríkjanna, Pentagon, í höfuðborg-
inni Washington. Fjórða vélin
hrapaði í Pennsylvaníu eftir átök
um borð milli farþega og flugliða
við flugræningjana.
Flugræningjarnir voru á
vegum Al-Kaída-hryðjuverka-
samtakanna sem stýrt var af
Sádi-arabanum Osama Bin-
Laden. Nær þrjú þúsund manns
fórust í árásunum. Þær voru í
senn mikið áfall fyrir Banda-
ríkjamenn og umheiminn allan.
Bandaríkjamenn sögðu hryðju-
verkamönnum stríð á hendur og
hófu stríð gegn talíbanastjórn-
inni í Afganistan en hún hafði
skotið skjólshúsi yfir Al-Kaída.
Á sunnudaginn eru tíu ár liðin
frá þessum atburðum sem skóku
heimsbyggðina enda horfði fólk
alls staðar í heiminum á þá í
beinni sjónvarpsútsendingu.
Enn sér ekki fyrir endann á
þeirri þróun sem þá hófst þótt
Osama Bin-Laden sé fallinn fyrir
bandarískri sérsveit. Árásirnar
ollu straumhvörfum í öryggis-
og varnarmálum flestra þjóða.
Hryðjuverkaárásir í öðrum
löndum fylgdu í kjölfarið. Ríki
heimsins hafa því aðlagað stefnu
sína í öryggis- og varnarmálum
til að geta betur mætt alþjóðlegri
hryðjuverkaógn. Heimurinn var
ekki samur eftir.
jonas@frettatiminn.is
Farþegaþotu flogið af hryðjuverkamönnum á syðri tvíburaturninn í New York,
World Trade Center. Nyrðri turninn stóð þegar í ljósum logum eftir að annarri
þotu hafði verið flogið á hann. Heimsbyggðin horfði á bæði háhýsin hrynja til
grunna. Ljósmynd/Nordic Photos/Getty Images Lára Björg. Fer ekki
svo í flugvél að hún
svitni ekki og sendi
reglulega SMS til
ástvina, til vonar og
vara.
Salvör. Féll í hennar
hlut að setja samúðar-
og sorgarkveðjur
ríkisstjórnarinnar til
Bandaríkjanna á vef
Stjórnarráðsins.
Andri Freyr. French
fries hétu allt í einu
freedom fries.
Ingunn. Eyðilagði
annars kæra dagsetn-
ingu.
20 úttekt Helgin 9.-11. september 2011