Fréttatíminn - 09.09.2011, Side 21
www.ms.is
betri hugmynd!
Mjólkin gerir gott betra og er hreint út sagt ómissandi með súkkulaðiköku og ýmsu öðru. Þessi hugmynd
að auglýsingu um hina stórkostlegu eiginleika mjólkurinnar hefur verið samþykkt af Mjólkurráðuneytinu.
Mjólkin g
erir
gott betr
a og er
ómissand
i með
súkkulað
iköku.
Hin risastóra raunveruleikasprauta
eitthvað ógurlegt að gerast. Menn tvístigu
og ráfuðu inn og út og enginn botnaði neitt
í neinu. Úti á götunni keyrði töffaralegur
drengur aftan á bílinn hjá rosaflottri
stelpu með regnbogalitar fléttur og þar
upphófst hávaðarifrildi. Ég var eiginlega
spenntari fyrir því en þessum sundurslitnu
fréttabrotum í sjónvarpinu.
Morguninn eftir var Gatwick eini flug-
völlurinn sem opinn var á öllu svæðinu og
ringulreiðin sem þar ríkti gleymist seint.
Fram til 2001 var 11. september mér
afar kær, verandi dagurinn sem ég
kynntist manninum mínum. Núna er hann
bara eins og hver annar dagur. 2001
færðust hryðjuverkin, sem við lesum um
nánast daglega að eigi sér stað í öðrum
heimshlutum, nær okkur. Þau, og önnur
voðaverk í svipuðum anda sem unnin hafa
verið í hinum vestræna heimi síðan þá,
hafa sýnt okkur íbúum hans að við erum
ekki ósnertanleg, að það er ekki hægt að
fletta alltaf bara yfir fréttirnar um að að
minnsta kosti fimm hundruð létust, því að
nú erum það líka við.“
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
ritstjóri
Risastór
raunveruleikasprauta
„Ég gleymi þessum degi aldrei. Ég stundaði
nám við Fjölbrautaskólann í Breiðholti á
þessum tíma. Ég var í eyðu og ákvað að
skella mér í ljós á ónefndri sólbaðsstofu
sem var á Rauðarárstíg. Ég lá sem sagt í
ljósabekk þegar ég heyrði af árásunum! Og
á hvaða stöð var ég að hlusta? Jú, FM 957.
Gerist ekki mikið flottara en það!
Ég var
nýorðin nítján
ára þegar
árásirnar áttu
sér stað –
kærulaus, ung
og óhrædd.
Fyrir mér var
þetta risastór
raunveru-
leikasprauta.
Þetta sýndi
mér að lífið
er ekki bara
svart og hvítt,
gleði og sorg.
Árásirnar gerðu mig forvitnari. Ég varð allt
í einu þyrst í þekkingu og eftir þennan ör-
lagaríka dag hef ég reynt að horfa á allar
kvikmyndir, hvort sem það eru leiknar
myndir eða heimildarmyndir, um stríð
og trúmál. Til að skilja nútímann verður
maður að þekkja söguna.“
Hans Steinar Bjarnason
íþróttafréttamaður
Óþolandi að fara um flugvelli
„Ég var nýkominn heim úr vinnunni á
útvarpsstöðinni Radíó. Fékk þá símtal
frá félaga mínum sem var staddur úti
í Hollandi að
fara að skrifa
um Evrópuleik
með Fylki í
fótbolta síðar
um daginn.
Hann sagði
mér að kveikja
á CNN. Ég sá í
beinni útsend-
ingu þegar
síðari vélin
fór í turninn
og sat límdur
við skjáinn
frá því. Þetta
hefur helst
breytt því fyrir
mig að það er orðið óþolandi að fara í
gegnum öryggisleit á flugvöllum.“
Lára Ómarsdóttir
fréttamaður
Angist, örvænting og hryllingur
„Ég man mjög vel hvar ég var þegar árásin
á tvíburaturnana var gerð. Ég var stödd í
raftækjaverslun þegar starfsmaður kom og
skipti yfir á CNN eða einhverja aðra erlenda
stöð. Það var skömmu eftir að fyrsta vélin
lenti á turnunum og enn var ekki vitað hvað
hafði gerst. Ég stóð þarna agndofa ásamt
manninum mínum og við hreinlega gátum
ekki slitið okkur frá tækjunum sem voru þó
nokkur í þessari búð og öll frekar stór. Við
horfðum í beinni útsendingu á seinni vélina
fara á turnana og svo á það sem á eftir
fylgdi; angistina, örvæntinguna og hryll-
inginn. Í marga mánuði á eftir las ég allt
sem hönd á festi um málið, horfði á heim-
ildarþætti og hlustaði á frásagnir þeirra
sem eftir lifðu. Þetta var í fyrsta skipti sem
maður horfði á hryðjuverk í beinni útsend-
ingu. Það gerði þetta allt svo raunverulegt
og nálægt og maður varð meðvitaðri um
afleiðingarnar. Fram að þessu heyrði maður
bara fréttir af hryðjuverkum í fréttum eftir
að þau höfðu gerst. Það hafði hreinlega
gríðarleg áhrif á mig, andlega. Ég átti erfitt
með að skilja hryllinginn og þurfti að lesa
og leita að skýringum alls staðar. Árásirnar
höfðu líka gríðarleg áhrif á heiminn; heims-
myndin breyttist við þetta, stríð hafa
verið háð vegna þeirra. Þá man ég að
andúðin á múslímum (sem var svo greinileg
í Bandaríkjunum fyrst á eftir) gerði það að
verkum að smám saman fór fólk að sjá að
múslími er ekki
það sama og
múslími og að
ekki er hægt að
flokka fólk eftir
trúarbrögðum.“
Lilja Katrín. Lá í
ljósabekk og heyrði
ótíðindin á FM 957.
Hans Steinar. Félagi
hans í Hollandi sagði
honum að kveikja á
sjónvarpinu.
Lára. Ekki
hægt að
flokka fólk
eftir trúar-
brögðum.
úttekt 21 Helgin 9.-11. september 2011