Fréttatíminn - 09.09.2011, Page 35
viðhorf 31Helgin 9.-11. september 2011
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Framkvæmdastjóri: Teitur
Jónasson teitur@frettatiminn.is Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Ritstjórnarfulltrúi: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is. Auglýsinga-
stjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Af harðfylgi einstaklings var bann gegn bjór-
sölu hér á landi brotið á bak aftur. Frá árinu
1989 hafa Íslendingar því, líkt og aðrar þjóðir,
getað keypt þessa almennu neysluvöru. Áður
var bjór á markaði sem smyglvara auk þess
sem flugliðum og sjómönnum var leyft að
flytja vöruna inn. Bjórbann á heila þjóð var
bjánaskapur, svo vægt sé til orða tekið, en í
raun heimskuleg forræðishyggja.
Eftir að bjórsala var leyfð
hefur sala hans og léttvína ein-
kennt markaðinn en að sama
skapi hefur dregið úr sölu
brenndra drykkja. Sú þróun er
jákvæð. Þeir sem muna áfeng-
isneyslu almennings, ekki síst
ungmenna, fyrir 1. mars 1989,
vilja varla skipta.
Bann við áfengisauglýsing-
um er í gildi hér á landi þótt
söluvaran sé lögleg. Það er um-
deilanlegt, í besta falli. Erfitt er enn fremur að
framfylgja slíku banni og mismunun veruleg
þar enda heimilt að auglýsa vöruna í erlend-
um fjölmiðlum, prentmiðlum og sjónvarps-
stöðvum, sem geta verið inni á hverju heimili
hér á landi – en ekki innlendum miðlum.
Bjór hefur hins vegar verið auglýstur,
óbeint að minnsta kosti, þá rúmu tvo áratugi
sem liðnir eru frá því að banni við neyslu
hans var hnekkt. Það hafa framleiðendur gert
með því að bæta orðinu léttöli með smáum
stöfum neðst eða aftast í auglýsingarnar.
Fram hjá þessu hefur verið horft þar til núna.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra er
forræðishyggjumaður. Hann vill hafa vit fyrir
fullorðnu fólki. Því var á dagskrá Alþingis á
miðvikudaginn lagafrumvarp ráðherrans um
breytingu á áfengislögum, þ.e. skýrara bann
við auglýsingum.
Fyrst ráðherrann kaus að leggja fram
frumvarp um breytingar á bjórauglýsingum
hefði verið eðlilegra að auglýsingar á þessari
almennu neysluvöru hefðu verið heimilaðar
í stað þess að setja þeim frekari skorður. Til
þess skal beita því ráði að banna auglýsingar
á malti og pilsner, þ.e. vökva sem er undir
2,25% af hreinum vínanda „ef hann er settur
á markað í umbúðum sem eru svo líkar um-
búðum áfengra drykkja að hætta sé á ruglingi
milli óáfengu vörunnar og hinnar óáfengu.“
Enn fremur er bannað að sýna neyslu eða
hvers konar aðra meðferð áfengis í auglýs-
ingum eða öðrum viðskiptaorðsendingum,
að því er fram kemur í frumvarpinu. Fróðlegt
verður að fylgjast með því, fái málið stuðn-
ing á Alþingi, þegar malt og appelsín verður
auglýst fyrir jólin. Væntanlega verða birtar
þrjár stjörnur í stað malts í prentmiðlum og
píp í stað hinnar þjóðlegu vöru í ljósvakaaug-
lýsingunum.
Bannið tekur með sama hætti til viðskipta-
orðsendinga sem eingöngu fela í sér firma-
nafn og/eða firmamerki áfengisframleiðanda.
Þó er framleiðanda sem auk áfengis fram-
leiðir aðrar drykkjarvörur heimilt að nota
firmanafn eða merki í viðskiptaorðsendingum
sem er ætlað að markaðssetja þá drykki, enda
megi augljóst vera að um óáfenga drykki sé
að ræða í skilningi laganna, ekki sé vísað til
hinnar áfengu framleiðslu og ekki hætta á
ruglingi milli áfengu framleiðslunnar og hinn-
ar. Kannski að maltið sleppi, eftir allt saman.
Bannið mun hins vegar ekki ná til, frekar
en áður, viðskiptaorðsendinga á erlendu máli
í erlendu prentriti sem flutt er til landsins
og heldur ekki til erlendra endurvarpsrása.
Hér eftir sem hingað til verður því heimilt að
auglýsa „beer“ en ekki bjór.
Það er ekki öll vitleysan eins.
Forræðishyggja og mismunun
Kannski sleppur maltið
A
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Fært til bókar
Með þingmannsblóð í æðum
Pólitíkin er skrýtin tík. Óvænt brott-
hvarf Þórunnar Sveinbjarnardóttur
af þingi varð til þess að pláss myndaðist
fyrir Lúðvík Geirsson sem í fyrra sá á
bak bæjarstjórastólnum í Hafnarfirði.
Lúðvík hafði verið bæjarstjóri í tvö kjör-
tímabil, frá árinu 2002, þegar hann lagði
allt undir í þeirri von að halda hreinum
meirihluta Samfylkingarinnar þriðja kjör-
tímabilið í röð. Hann settist því sjálfur í
baráttusæti listans, það sjötta. Það dugði
ekki til. Flokkurinn fékk fimm bæjarfull-
trúa og meirihlutinn tapaðist. Þótt Lúðvík
sæti í bæjarstjórastólnum fyrst eftir að
Samfylkingin myndaði meirihluta með
Vinstri grænum varð hann frá að hverfa.
Það var að vonum að Lúðvík tæki áhætt-
una því skoðanakannanir sýndu, rétt fyrir
kosningar, að 67% bæjarbúa vildu Lúðvík
áfram sem bæjarstjóra. Persónulegar
vinsældir hans voru hins vegar meiri en
flokksins. Því fór sem fór. En hið pólitíska
orlof varð ekki langt. Nú getur Lúðvík
látið til sín taka á þingi, ekki síður en í
bæjarstjórastólnum í Hafnarfirði. Hann
á ekki langt að sækja þingmannsgenin
því faðir hans, Geir Gunnarsson, sat
á Alþingi fyrir Alþýðubandalagið um
tveggja áratuga skeið, frá 1959-1979.
Áður hafði Geir setið sem varaþingmað-
ur og hið sama gildir raunar um soninn.
Lúðvík sat sem varamaður í október
og nóvember á liðnu ári. Ferill Lúðvíks
er fjölbreyttur. Hann lauk sveinsprófi
í bakaraiðn árið 1978 en ílentist ekki í
bakstrinum því hann varð blaðamaður og
síðar fréttastjóri á Þjóðviljanum frá 1979
til 1985. Blaðamennskan leiddi síðar til
þess að Lúðvík varð forystumaður blaða-
manna, formaður og framkvæmdastjóri
Blaðamannafélags Íslands 1988-2002.
Pólitíkin í blóði Lúðvíks leiddi hann inn í
bæjarstjórn Hafnarfjarðar árið 1994.
Bleikt og blátt
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra og Kuupik Kleist, formaður land-
stjórnar Grænlands, funduðu á mánudag-
inn á Þingvöllum. Ræddu þau meðal
annars tvíhliða samskipti Grænlands og
Íslands, þróun sjálfstæðismála á Græn-
landi, efnahagsmál, aðildarviðræður Ís-
lands við Evrópusambandið og samstarf
Grænlands við sambandið, að því er fram
kemur á síðu forsætisráðuneytisins. Þar
segir enn fremur að forsætisráðherra-
hjónin hafi boðið til hádegisverðar í Þing-
vallabænum, til heiðurs formanni land-
stjórnar Grænlands. Allt er þetta eftir
bókinni hvað varðar móttöku erlendra
þjóðarleiðtoga og á mynd sem fylgir
fregninni má sjá að hinn kærkomni græn-
lenski gestur og næsti nágranni okkar
fékk gott haustveður á Þingvöllum.
Meiri athygli vekur þó litaval
leiðtoga grannþjóðanna. Jó-
hanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra var klædd
ljósblárri blússu og jakka í
sama lit. Kuupik Kleist,
formaður grænlensku
landstjórnarinnar, skart-
aði hins vegar
bleikri
skyrtu og
enn bleik-
ara bindi.
Hefð-
bundnir
kynjalitir voru því
víðs fjarri þennan
haustdag en þó skal
það tekið fram, svo
öllu sé til skila haldið,
að Kleist var í dökkum
jakkafötum utan yfir
bleiku skyrtunni og
bindinu.
A ð mörgu leyti er fjár-málamark-
aðurinn á Íslandi
frosinn og einhæfur.
Hlutabréfamarkað-
urinn er óvirkur og
erlendir fjárfestar
hika við að fjárfesta
hér á landi vegna
gjaldeyrishafta og
stjórnmálaóvissu
þótt vissulega megi
fagna undantekning-
um þar á hjá fram-
sýnum Kínverjum.
Ýmis tækifæri eru
í atvinnustarfsemi
og afar brýnt að nota
þau. Við höfum ekki nýtt árin eftir
hrun nógu vel til að endurreisa
og byggja upp öflugra atvinnulíf
og bæta lífskjör almennings. Svo
vel megi takast til þarf margt að
gerast:
Skapa þarf traust á markaðnum
og að skráð fyrirtæki á markaði
öðlist trúverðugleika á ný.
Halda þarf áfram að koma
fyrirtækjum úr eigu bankanna og
endurreisa þau. Margt bendir til
þess að aukinn kraftur sé að færast
í það verkefni.
Stjórnvöld verða að koma með
skýra stefnu í atvinnumálum og
fjármálum ríkisins til að nýta það
samkeppnisforskot sem Ísland
getur haft.
Áhugavert væri að nýta betur
hugmyndafræði framtakssjóða og
framtaksfjárfestinga. Þetta er sér-
staklega mikilvægt á meðan ekki
hefur tekist að endurreisa hluta-
bréfamarkaðinn.
Mörg fyrirtæki
gætu notið góðs af
því að fara í gegn-
um þá aðferða-
fræði sem fram-
takssjóðir byggjast
á. Framtakssjóðir
eru áhrifafjárfestar
og fjárfesta yfirleitt
umtalsverðan eign-
arhlut í óskráðum
félögum með það
að markmiði að
auka raunverulegt
verðmæti þeirra og
selja þau eða skrá
þau á hlutabréfa-
markað með góðri
ávöxtun eftir nokkur ár. Þetta getur
til dæmis gerst með samruna fyrir-
tækja, með því að endurskipuleggja
reksturinn frá grunni, innleiða nýja
stjórnarhætti eða tækni, kaupa önn-
ur fyrirtæki eða einbeita sér ein-
faldlega að því sem fyrirtækið gerir
best. Þetta er alger andstæða þess
sem gerðist á árunum 2004-2008
í kjölfar einkavæðingar bankanna
þegar bankarnir, í samstarfi við
stjórnendur fyrirtækja, eyðilögðu
íslenskt atvinnulíf með ómarkvissri
þátttöku í kaupum á fyrirtækjum
og lánveitingum.
Framtaksfjárfestar beita yfirleitt
eftirfarandi aðferðafræði við sínar
fjárfestingar:
– Skilgreina í upphafi tækifæri
félagsins og hvernig má auka
verðmæti þess, ekki með blekk-
ingum og markaðsmisnotkun
heldur með raunverulegri verð-
mætasköpun.
– Gera aðgerðaáætlun um hvernig
skuli efla starfsemina og auka
verðmæti félagsins og fá stjórn-
endur í lið með sér við þær
aðgerðir.
– Vera virkur áhrifafjárfestir
sem hraðar aðgerðum og fylgir
breytingum eftir með stjórnar-
þátttöku og aðhaldi.
– Virkja betur starfsmenn og
stjórnendur félagsins og skipta
þeim stjórnendum út sem henta
ekki félaginu eða ná ekki ár-
angri.
– Nýta fjármuni og eignir fyrir-
tækisins skynsamlega og losa
sig við þær eignir sem eru
óarðbærar eða eru óþarfar fyrir
starfsemina.
– Byggja upp jákvæðan fyrir-
tækjabrag og sóknaranda.
Það er lykilatriði í uppbyggingu
íslensks efnahagslífs að þeir fjár-
munir sem liggja á lítilli ávöxtun í
bönkunum séu nýttir við uppbygg-
ingu í atvinnulífinu. Þannig getum
við komið hagkerfinu kröftuglega
í gang og nýtt betur þau tækifæri
sem liggja í auðlindum og þekk-
ingu þjóðarinnar. Stjórnvöld gætu
líka nýtt sér eitthvað af þessum
tækifærum og hrint í framkvæmd
sóknaráætlun til bættra lífskjara.
Lítið hefur gerst í þeirri sóknar-
áætlun sem núverandi ríkisstjórn
hóf vinnu við árið 2009 og var
kynnt í janúar 2011. Nú er tími til
kominn að fara að spila sóknar-
leik. Atvinnulífið og almenningur
í landinu bíður eftir því að flautað
verði til leiks.
Íslenskt efnahagslíf
Fjárfesting er forsenda framfara
Þorkell Sigurlaugsson
framkvæmdastjóri hjá HR og
stjórnarformaður Framtakssjóðs
Íslands
Hér eftir sem hingað til verður því heimilt að auglýsa „beer“
en ekki bjór.