Fréttatíminn


Fréttatíminn - 09.09.2011, Qupperneq 38

Fréttatíminn - 09.09.2011, Qupperneq 38
E lstu menn muna eftir því, þegar Atómstöð Laxness kom út. Þótti það merki- legur viðburður, ekki síst meðal bóklæss fólks. Umræða sú, sem spannst út frá þessu og öðrum, framsæknum bókverkum, var- aði um nokkurt skeið, og náði hámarki sínu um svipað leyti og íslenskir ráðherrar lögðu leið sína á Völlinn og spiluðu bingó með menningarbræðrum sínum þar. Í Mogganum birtust daglega skammargreinar um kommúnista, en Heimdellingar köstuðu fúlegg- jum að Keflavíkurgöngumönnum, sem að leiðarlokum gengu fylktu liði niður Bankastræti, á meðan Lúðrasveit verkalýðsins lék Öxar við ána af föstum setningi. Það var þá. Nú veit margt fólk vart deili á sólþurrkuðum salt- fiski, hvað þá heldur að hægt sé að syngja á hann hörpuljóð. Hins vegar er kunnátta í erlendum tungumálum slík, að þegar ungar dömur æpa Ómægad!, vita allir hvað þær meina. Og þrátt fyrir djúpa efnahags- lægð, sem íþyngir gróðasnilling- um, má stöðugt finna nýjar tekju- veitur. Samkvæmt fréttum RÚV í síðustu viku er verið að selja kín- verskum auðkýfingi, að því áætla má, einn þrítugasta hluta íslensks gróðurlendis fyrir alldrjúgan skilding, auk loforða um blómlega innrás kínverskra túrista í Norð- austurland. Fyrstu fréttum fylgdi sú yfirlýsing, að nýir eigendur myndu ekki leita vatnsréttinda sinna. Aðspurðir fulltrúar ferða- iðnaðarins og sumra ráðuneyta lýstu sig fylgjandi þessari þróun, en ekki var minnst á, að umsjónarmenn menningarminja svæðisins hafi bent á, að það þoli vart meiri ágang ferða- manna. Rétt er að hafa í huga, að þótt Kínverska alþýðu- lýðveldið flaggi núorðið mörgum auðkýfingum, ger- ist ekkert í því vold- uga og fjölmenna ríki án vitundar og vilja stjórnvalda, eða án þess að ríkið hafi iðna fingur með í spilinu og góðan og langvinnan hag af. Kínverjar hafa sýnt sig vera dug- lega í landvinningum og bíssniss – það er sagt, að þeir eigi núorðið drjúgan hluta Austur-Afríku með öllum sínum náttúruauðlindum, og í Tíbet hafa staðbundin menn- ingardauðyfli fengið að víkja fyrir nútímastóriðju. Kínverjar eru víst auk þess stærstu lánveitendur Bandaríkjamanna, en fregnir herma, að Bandaríkjamenn skuldi núorðið jafnvel enn meir en Ís- lendingar, miðað við mannfjölda. Tala um tæra snilld! Það er fagnaðarefni, að við séum loksins búin að fá í lið með okkur raunverulegt fólk, sem kann að græða. Og meiri verður fögnuðurinn þegar tillit er tekið til þess, að Kín- verjar eru meir en 13 miljörðum fleiri en Íslendingar, og útrásarvík- ingar þeirra að sama skapi legíó. Kínverskir at- hafnamenn hafa á síðustu árum sýnt töluverðan áhuga á því að eignast íslensk fyrirtæki, og má þar telja með bújörð þá, sem nú á að færast yfir í þeirra eigu. Á undanförnum árum hefur er- lendum auðkýf- ingum verið leyft að kaupa upp jarðir með ýmsum réttindum úti um allar sveitir, og engin ástæða til að skilja Kínverja útundan. Iðn- aðarráðherra bendir á, að þetta séu viðskipti á milli einkaaðila, sem íslenskum almenningi komi nákvæmlega ekkert við. Allt muni fara á besta veg! Það er engu líkara en við séum horfin nokkur ár aftur í tímann, að kreppan sé einungis afkáraleg vanskynjun, sem hefur ekki einu sinni skeð, og að við höfum því síður lært nokkuð af því að missa aleiguna. Eða kannski misstu þeir ekkert, sem nú vilja halda áfram heimskupörunum. Eigum við þá ekki bara að loka augunum, taka höndum saman, dansa kringum friðarsúluna og kyrja You ain't seen nothing yet? Valdimar Briem dr. phil., sjálfstæður fræðilegur ráðgjafi Ríkisstjórnarfundur hljóðritaður L Líklegt er að talsverð spenna myndist meðal sagnfræð- inga og áhugamanna um stjórnmál í september árið 2041. Þá rennur upp sú stund sem þálifandi Íslendingar munu hafa beðið eftir árum saman: hljóðritun af ríkis- stjórnarfundi í Stjórnarráðshúsinu þrjátíu árum fyrr, í september á því herrans ári 2011. Sú tímamótaákvörðun var nefnilega tekin og samþykkt í allsherjarnefnd Alþing- is í vikubyrjun að hljóðrita fundina en jafnframt var sett inn ákvæði um að hljóðritunin verði ekki gerð opinber fyrr en að þrjátíu árum liðnum. Fréttatíminn er hins vegar á tánum og náði, gegnum leka á hæstu stöðum, afriti af þessum fyrsta ríkisstjórnarfundi sem hljóð- ritaður var. Þótt upptökuna eigi ekki að birta fyrr en haustið 2041, var það metið svo að efni fundarins væri svo áríðandi, nú í þing- byrjun, að réttlætanlegt væri að greina frá innihaldinu. Nauðsyn brýtur lög enda er íslenska þjóðin á tímamótum. Fjárlög eru í burð- arliðnum, þau fyrstu frá hruni þar sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn heldur ekki í hendur fjármálaráðuneytisins, en heimilin berjast í bökkum, gjaldþrot fyrirtækja eru í methæðum og atvinnuleysið enn í háum hæðum. Afrit af fundinum fer hér á eftir. Innan hornklofa eru nöfn við- komandi ráðherra: Forsætisráðherra [Jóhanna Sigurðardóttir]: Velkomin til þessa ríkisstjórnarfundar. Ég bið fjármálaráðherra að taka fyrst til máls enda hvílir mest á honum, það er innan við mánuður í þingsetningu og fjárlögin nánast tilbúin. Gerðu svo vel. Fjármálaráðherra [Steingrímur J. Sigfússon]: Áður en ég kem að niðurskurðinum kemst ég ekki hjá því að nefna gasprið í honum Óla. (Innskot frá forsætisráðherra: Þú átt við forseta Íslands.) Já, já, hvern annan. Nú þykist hann hafa leyst Icesave-deiluna einn og óstuddur og klínir smjörklípunni á okkur. Ég þoli þetta ekki lengur. Hver fer gegn honum ef hann býður sig enn og aftur fram næsta sumar? Yrði það ekki í fimmta sinn? (Þögn) Hvað með þig, Gutti? Það er fín ára í kringum þig, þú ert huggulegur og átt fallega konu. Þú tækir hann. (Innskot frá forsætisráðherra: Þú átt við velferðarráð- herra.) Velferðarráðherra [Guðbjartur Hannesson]: Ég hef ekki nokkurn áhuga á Bessastöðum, barasta ekki nokkurn. Minn staður er Skaginn og þar verð ég áfram. ÍA var að vinna fyrstu deildina og fer upp. Ég er viss um að þeir verða Íslandsmeistarar næsta sumar, tapa ekki leik. Það eina sem skyggir á gleði okkar á Skipaskaga er þessi bókadómur Páls Baldvins á Sögu Akraness, rúmlega 8 kílóa bókum. Hver hefur skrifað þyngri bækur, mér er spurn? Forsætisráðherra: Áður en við höldum lengra, hvert er álit ykkar á þessum megrunarkúr hjá honum Sigmundi Davíð? Er hann ekki í ruglinu með þetta, maðurinn? Við gætum þurft á Framsókn að halda á meðan Þráinn djöflast svona út af Kvikmyndaskólanum. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra [Jón Bjarnason]: Ég styð minn mann, formann Framsóknarflokksins. Hann ætlar bara að éta íslenskt. Það á að stöðva innflutning á öllu útlensku jukki. Ég fæ Sigmund Davíð með mér í það þegar þar að kemur. Hann segir að aðeins helmingur þeirrar fæðu sem menn láta í sig á Íslandi sé framleiddur hér og hefur fullyrt að ef hann neyti aðeins íslenskrar fæðu borði hann helmingi minna. Innanríkisráðherra [Ögmundur Jónasson]: Þetta heyrir nú ekki undir mitt ráðuneyti en mér sýnist, miðað við þessa útreikninga Framsóknarforingjans, að hann sé sjálfkjör- inn í fjármálaráðuneytið. Umhverfisráðherra og starfandi mennta- og menningarmálaráð- herra [Svandís Svavarsdóttir]: Það er auðvitað ákveðin umhverfisbót ef formaðurinn léttist en það er ekki það sem mér er efst í huga. Kata, átt þú ekki von á tvíburum, lendir þitt ráðuneyti þá á mér líka? (Innskot frá forsætis- ráðherra: Þú átt við iðnaðarráðherra.) Iðnaðarráðherra [Katrín Júlíusdóttir]: Nafna ætlar að lána mér bleiuborð og nokkrar samfellur, ég reyni svo að ná mér í tvíburakerru á Barnalandi. Þar má fá allt milli himins og jarðar á spottprís. (Innskot frá forsætisráðherra: Þú átt við mennta- og menningarmálaráðherra í fæðingarorlofi.) Utanríkisráðherra [Össur Skarphéðinsson]: Veit einhver eitthvað um þennan Kínverja sem ætlar að kaupa Grímsstaðina. Solla og Hjörleifur mágur láta bærilega af honum. Tengdamamma gaf honum víst lopapeysu á sínum tíma. Maður gæti kannski komist í almennilega á þarna fyrir norðan til að rann- saka kynlíf laxfiska. Efnahags- og viðskiptaráðherra [Árni Páll Árnason]: Ég þol i ekki haustið. Maður föln- ar svo þegar sólin lækkar á lofti. Forsætisráð- herra: Miðað við málaskrá er dag- skrá tæmd. Fund- ur verður á hefð- bundnum tíma og hefðbundnum stað í næstu viku. Ríkisstjórnar- fundi er slitið. Jónas Haraldsson jonas@ frettatiminn.is HELGARPISTILL Íslenska sjávarútvegssýningin 2 0 11 Smárinn, Kópavogur • September 22-24 www.icefish.is Samstarfsaðili um flutninga SkipuleggjandiAlþjóðleg útgáfa Opinber íslensk útgáfa Eini viðburðurinn sem nær til íslenska sjávarútvegsins í heild sinni * Alþjóðlegar VIP-sendinefndir verða á staðnum * Íslensku sjávarútvegsverðlaunin verða afhent í fimmta sinn þann 22. september 2011 Forðist biðraðir og sparið fé! Skráið ykkur á Netinu á www.icefish.is til þess að spara 20%! Allt fyrir atvinnumenn í sjávarútvegi frá veiðum til vinnslu og dreifingar á fullunnum afurðum Stuðningsaðilar eru: • Sjávarútvegs-og landbúnaðarráðuneytið • Utanríksráðuneytið • Samtök iðnaðarins • Fiskifélag Íslands • Landssamband íslenskra útvegsmanna • Landssamband smábátaeigenda • Samtök fiskvinnslustöðva • Farmanna- og fiskimannasamband Íslands • VM - Félag vélstjóra og málmtæknimanna • Sjómannasamband Íslands • Félag atvinnurekenda • Samtök verslunar og þjónustu • Íslandsstofa • Fiskifréttir Nánari upplýsingar veitir Marianne Rasmussen-Coulling í síma +44 (0) 1329 825335, netfang: mrasmussen@mercatormedia.com Íslenska sjávarútvegssýningin er atburður á vegum Mercator Media Opinbert flugfélag/loftflutningafélag & hótelkeðja _Icefish 2011 151wx200h_06.09.11_Icefish 06/09/2011 10:25 Page 1 Lærdómur hrunsins Déjá Vú Te ik ni ng /H ar i 34 viðhorf Helgin 9.-11. september 2011
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.