Fréttatíminn - 08.04.2011, Side 2
Hollt og gott veganesti
ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Sveini Andra Sveins-
syni var hótað lífláti af
skjólstæðingi. Ljósmynd/
Arnold Björnsson
LögregLumáL morðhótun
Lögfræðingi hótað lífláti
af meintum barnaníðingi
Lögmanninum Sveini Andra Sveinssyni var hótað lífláti af skjólstæðingi sínum sem liggur undir
grun um að hafa misnotað sjö ára son sinn.
Það hefur
ekki gerst
áður að
lögmanni
hafi verið
hótað
lífláti og
þetta veld-
ur okkur
áhyggjum.
É g vil ekkert tjá mig um þetta mál,“ segir Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður um morðhótun sem hann fékk í andlitið frá skjólstæðingi sínum helgina.
Sá var úrskurðaður í gæsluvarðhald síðastliðinn fimmtudag
vegna gruns um að hann og frændi hans hefðu misnotað sjö ára
gamlan son þess fyrrnefnda á heimili hans.
Eftir því sem Fréttatíminn kemst næst var Sveinn Andri skip
aður verjandi
mannsins á
fimmtudag.
Í samtali um
helgina sagði
Sveinn Andri
manninum frá
því að lögreglan
hefði ákveð
ið að fresta
yfirheyrslum yfir
honum fram á
mánudag. Mað
urinn snögg
reiddist og
hótaði að drepa
Svein Andra
þegar hann losn
aði úr fangelsi.
Í kjölfarið til
kynnti Sveinn
Andri hótunina
til lögreglunnar
og sagði sig frá
málinu. Í hans
stað kom Krist
ján Stefánsson.
Ekki hefur farið
fram skýrslutaka
í hótunarmál
inu en búast má
við að það gerist
á allra næstu
dögum.
Kristján sagð
ist ekkert vita
um málið annað
en það að hann
hefði verið kall
aður til á mánu
dag til að verja
manninn. Hann
sagðist ekki vita
hvort fyrri lög
fræðingur hefði
sagt sig frá mál
inu eða skjólstæðingurinn sagt honum upp.
Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélags Íslands, segir í
samtali við Fréttatímann að hann hafi heyrt af þessu máli og að
félagið líti það mjög alvarlegum augum. „Það hefur ekki gerst
áður að lögmanni hafi verið hótað lífláti og þetta veldur okkur
áhyggjum. Auðvitað hafa oft komið upp mál þar sem skjólstæð
ingar eru ósáttir en aldrei í líkingu við þetta,“ segir Brynjar.
Maðurinn sem um ræðir er þekktur brotamaður sem dvaldi
á Breiðavík, að sögn DV. Hann hefur meðal annars hlotið dóm
fyrir líkamsárás gegn barnsmóður sinni og föður hennar. Á
heimili hans og frænda hans fundust fíkniefni og lagt var hald
á tölvur á heimilum beggja mannanna. Barnsmóðir manns
ins hefur þurft að flýja heimili sitt ásamt eiginmanni sínum og
þremur börnum af ótta við manninn.
Mennirnir voru í gær, fimmtudag úrskurðaðir í vikulangt
gæsluvarðhald sem rennur út fimmtudaginn 14. apríl.
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@
frettatiminn.is
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@
frettatiminn.is
Þrjú dómsmál tefja útgreiðslu Icesave
Baldur
dæmdur í
tveggja ára
fangelsi
Baldur Guðlaugsson,
fyrrverandi ráðuneytis-
stjóri í fjármálaráðu-
neytinu, var dæmdur í tveggja ára óskilorðs-
bundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær
fyrir innherjasvik og brot í opinberu starfi. Þá var
söluandvirði hlutabréfa í Landsbankanum, sem
Baldur seldi, gert upptækt en um var að ræða 192
milljónir króna. Baldur var ákærður fyrir innher-
jasvik og brot í opinberu starfi þegar hann seldi
hlutabréf í Landsbankanum 17. og 18. september
2008. Auk starfa Baldurs sem ráðuneytisstjóri
í fjármálaráðuneytinu sat hann í samráðshópi
íslenskra stjórnvalda um fjármálastöðugleika. Í
niðurstöðu dómsins segir að Baldur hafi búið yfir
innherjaupplýsingum eins og lýst sé í ákæru þegar
hann seldi hlutabréf sín í Landsbanka Íslands.
Hann hafi því verið innherji í skilningi laga um
verðbréfaviðskipti og brotið gegn þeim lögum.
Baldur var dæmdur til að greiða málskostnað, þar
með talin rúmlega 4,5 milljóna króna málsvarnar-
laun til Karls Axelssonar hæstaréttarlögmanns. -jh
Ljóst er að útgreiðslur úr þrotabúi
Landsbankans munu ekki hefjast í júní
eins og stefnt var að. Þrenns konar
dómsmál standa í vegi fyrir því að hægt
sé að hefja útgreiðslur, að sögn Páls
Benediktssonar, upplýsingafulltrúa slita
stjórnar Landsbankans.
Um er að ræða dómsmál um heild-
söluinnlán, innlán einstaklinga og
neyðarlögin. Tekist er á um það fyrir
dómi hvort heildsöluinnlánin og ein-
staklingslánin séu forgangskröfur, líkt
og slitastjórnin heldur fram, og hvort
neyðarlögin, sem sett voru 6. október
2008, haldi. Mál einstaklingslánanna og
neyðarlaganna eru fyrir Héraðsdómi en
heildsöluinnlánin voru dæmd forgangs-
kröfur í Héraðsdómi í síðustu viku.
Fastlega má búast við því að þeim dómi
verði áfrýjað til Hæstaréttar. Allt virðist
stefna í að dómsmálin muni ekki klárast
fyrr en eftir sumarfrí Hæstaréttar og því
stefnir í að fyrsta greiðsla fari ekki fram
fyrr en í haust. óhþ
Fjórtán ára fangelsi
fyrir árás á föður
Þorvarður Davíð Ólafsson var í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær
dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir til-
raun til manndráps, en hann réðst
á föður sinn, Ólaf Þórðarson tón-
listarmann, 14. nóvember síðast-
liðinn. Ólafur hlaut lífshættulegan
höfuðáverka í árásinni. Hann er
enn meðvitundarlaus og slæmar
horfur á að hann nái sér nokkurn
tíma. Dómari taldi hendingu eina
hafa ráðið að ekki hlaust bani
af árásinni sem var ofsafengin.
Þorvarður Davíð hefði veist með
ofbeldi að föður sínum, m.a.
sparkað í maga hans, tekið hann
hálstaki, kýlt hann tvisvar í höf-
uðið með hnúajárni svo að hann
féll við, sparkað ítrekað í andlit
hans þannig að höfuðið kastaðist
í steyptan arin og ítrekað stappað
og hoppað á höfði hans og hálsi.
Mat dómsins er að hinn ákærði
eigi sér engar málsbætur. -jh
Stefán Hilmar Hilmarsson,
gjaldþrota framkvæmdastjóri
rekstrarsviðs fjölmiðlarisans
365, greiddi 250 þúsund krónur
í leigu á mánuði árið 2009 fyrir
búsetu í lúxusvillunni á Laufás
vegi 68 þar sem hann býr ásamt
barnsmóður sinni, sjónvarps
kokkinum Friðriku Hjördísi
Geirsdóttur, og tveimur börn
um þeirra. Þetta kemur fram í
ársreikningi Vegvísis, eiganda
hússins, fyrir árið 2009. Þar
kemur fram að leigutekjurnar
voru alls þrjár milljónir. Eigið fé
félagsins, sem er í eigu Stefáns
sjálfs með móður hans og
bróður sem stjórnarmenn, var
neikvætt um 30,5 milljónir. Að
því er Fréttatíminn kemst næst
hefur Stefán, sem flutti nýverið
lögheimili sitt til Lúxemborgar,
ekki viljað gefa upp við skipta
stjóra þrotabús hans sjálfs hver
eigi Vegvísi. Nú liggur fyrir að
það er Stefán sjálfur og því er
það í raun eign þrotabúsins.
Villan á Laufásvegi er 312 fer
metrar að stærð – gerð upp af
þeirri smekkvísi og flottheitum
sem réðu hér ríkjum á árun
um fyrir hrun. Samkvæmt
veðbókarvottorði hvíla um
250 milljónir á húsinu. Jafn
framt hefur skipulags og
byggingarfulltrúi skellt
dagsektum á félag Stefáns,
sem eiganda hússins, sem
nema nú hátt í tíu milljónum
vegna ólöglegra framkvæmda
við húsið.
Búseta Leigumarkaður
Greiddi sjálfum sér 250 þúsund í leigu vegna lúxusvillu
Stefán Hilmar Hilmarsson
samdi við sjálfan sig um
leigu á Laufásveginum.
2 fréttir Helgin 8.-10. apríl 2011