Fréttatíminn - 08.04.2011, Qupperneq 16
betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Faxafeni 5, Reykjavík • Sími 588 8477
Skeiði 1, Ísafirði • Sími 456 4566
Opi› virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 11-16
Komdu í dag og skoðaðu
allt það nýjasta frá Tempur
á 25% afslætti!
ÞRÝSTIJÖFNUNAR HEILSUDÝNUR OG HEILSUKODDAR
Þegur þú sefur á TEMPUR heilsudýnu,
hvílast hryggur og liðir í sinni náttúrulegu
stöðu. TEMPUR þrýstijöfnunarefnið er
mjúkt þar sem þú vilt og stíft þar sem
þú þarft™ og veitir þannig þrýstijöfnun,
þægindi og náttúru legan stuðning.
Vaknaðu upp endurnærð(ur) og tilbúin(n) í
átök dagsins.
Heilsudagar
í apríl
Allar TEMPUR®
heilsudýnur og -koddar
á 25% afslætti
A
‹E
INS
FRÁ TEMPUR
® A
‹E
INS
FRÁ TEMPUR
®
EINA DÝNAN OG KODDINN
SEM VIÐURKENND ERU
AF NASA OG VOTTUÐ AF
GEIMFERÐASTOFNUNINNI
Eitt mesta úrval landsins
af stil lanlegum heilsurúmum!
Rúmlega 232 þúsund
kjósendur á kjörskrá
Kjósendur eru um 4.700 fleiri en var í alþingis-
kosningunum fyrir tveimur árum.
Alls eru 232.539 kjósendur á kjörskrá fyr-
ir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave-
samninginn á morgun, laugardag. Konur
á kjörskrá eru heldur fleiri en karlar, eða
116.656 á móti 115.883 körlum. Kjósendur
nú eru nær 4.700 fleiri en í alþingiskosn-
ingunum fyrir tveimur árum, að því er
fram kemur í tölum Þjóðskrár Íslands.
Kjósendur með lögheimili erlendis eru
11.607 eða um 5% kjósenda. Þeim hefur
fjölgað um 1.667 frá þingkosningunum
eða sem nemur 16,8%.
Kjörstaðir verða opnir frá klukkan 9 að
morgni til klukkan 22 annað kvöld. Taln-
ingarmenn verða ekki lokaðir inni til að
flýta fyrir, eins og venja hefur verið í kosn-
ingum hér á landi, heldur hefst talningin
um leið og kjörstöðum hefur verið lokað.
Þessu ræður ógilding Hæstaréttar á kosn-
ingunum til stjórnlagaþings, enda skal
talning fara fram fyrir opnum tjöldum.
Þrátt fyrir þetta er búist við fyrstu töl-
um úr einhverjum kjördæmum landsins
fyrir klukkan 23 annað kvöld. Í Reykjavík-
urkjördæmum er jafnvel reiknað með að
talningu ljúki um klukkan tvö aðfaranótt
sunnudags.
jonas@frettatiminn.is
Reiknað
með
fyrstu
tölum
undir
klukkan
23 á
laugar-
dags-
kvöld.
Rúmlega 232.500 kjósendur ganga að kjörborðinu á morgun.
Vilmundur Jósefsson,
formaður stjórnar SA:
Væntum þess að það verði
einhverjar fjárfestingar hér
„Ég kem til með að segja já,“ segir Vilmundur
Jósefsson, formaður stjórnar Samtaka at-
vinnulífsins. „Ég tel að íslenskt atvinnulíf verði
í hálfgerðum krapa ef við segjum nei og fellum
þennan samning. Við væntum þess fyrst og fremst að það
verði einhverjar fjárfestingar hér á landi. Ég lít svo á að ef
við segjum nei þá lokist mjög fyrir möguleika okkar á að fá
erlent fjármagn. Endurfjármögnun á ríkissjóði og stórum
fyrirtækjum stendur fyrir dyrum og t.d. má nefna að lána-
fyrirgreiðsla til Landsvirkjunar vegna Búðarhálsvirkjunar er
háð því að við samþykkjum þennan samning.“
Haraldur Benediktsson, formaður
Bændasamtaka Íslands:
Ábyrgðarhlutur að reyna
að hafa áhrif á félags-
menn
„Ég er ekki tilbúinn að svara opinberlega
um afstöðu mína til Icesave,“ segir Haraldur
Benediktsson, formaður Bændasamtaka
Íslands. „Slíkt svar yrði hér sett í samhengi við starf mitt
fyrir Bændasamtök Íslands. Ekki hefur verið unnin vinna í að
greina þau gögn sem lögð eru fram um Icesave á vegum BÍ.
Þar hefur heldur ekki verið tekin umræða um afstöðu
samtakanna. Því er ekki mögulegt að tala hér sem for-
maður og er reyndar ábyrgðarhlutur að reyna að hafa slík
áhrif á félagsmenn Bændasamtakanna án grundvallarvinnu
við rannsókn, sem áður er getið.“
Kolbrún Halldórsdóttir, forseti Banda-
lags íslenskra listamanna:
Hef ekki gert upp hug minn
„Ég hef ekki gert upp hug minn,“ segir Kol-
brún Halldórsdóttir, formaður Bandalags
íslenskra listamanna, „ég er á fullu að lesa
mér til og kynna mér málin.“
Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM:
Kýs sannarlega en gef ekki
upp afstöðu mína
„Ég gef ekki yfirlýsingu um afstöðu mína,“ segir
Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM. „Það er
engin hefði fyrir því hjá bandalaginu að reyna
að stýra fólki í kjöri í þjóðfélagsmálum Þetta
hefur ekki verið tekið til athugunar hér. Ég ætla
sannarlega að kjósa en læt ekki uppi afstöðu mína.“
Sigurður Bessason, formaður Eflingar:
Einstaklingar en ekki sam-
tök taka afstöðu
„Ég ætla að geyma mér að gefa upp mína afstöðu,“
segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar. „Það
liggur ekki fyrir að samtökin taki afstöðu, það gerir
hver og einn. Ég hef hvergi séð það að heildarsam-
tök hafi lýst skoðunum á þessu máli, það eru fyrst
og fremst einstaklingar sem það hafa gert.“
Sævar Gunnarsson, formaður Sjómanna-
sambands Íslands:
Augljóslega um tvo vonda
kosti að ræða
„Það er augljóslega um tvo vonda kosti að velja,
það vonda að ég hef ákveðið að hafa mína afstöðu
út af fyrir mig,“ segir Sævar Gunnarsson, for-
maður Sjómannasambands Íslands. „Þetta hefur
ekki verið rætt í samtökunum. Ég veit að það eru
skiptar skoðanir þar eins og annars staðar í samfélaginu.
Ég hef tamið mér það að ef ekki er opinber afstaða sam-
bandsins til mála þá á ég mína afstöðu fyrir mig.“
Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins,
vísaði málinu til Orra Haukssonar, framkvæmdastjóra
samtakanna. Hann kaus að svara spurningunni ekki.
Fréttatíminn náði ekki í Tómas Má Sigurðsson, for-
mann stjórnar Viðskiptaráðs. Ekki náðist heldur í Árna
Gunnarsson, formann Samtaka ferðaþjónustunnar.
Hann hefur verið í fríi og var ekki væntanlegur til starfa
fyrr en í dag.
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
16 þjóðaratkvæðagreiðsla Helgin 8.-10. apríl 2011