Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.04.2011, Síða 23

Fréttatíminn - 08.04.2011, Síða 23
Helstu viðskiptablöð Íslands og heimsins styðja Íslendinga www.andriki.is Allur kostnaður við starfsemi Andríkis, þar á meðal gerð og birtingu þessarar auglýsingar, er greiddur með frjálsum framlögum lesenda vefsíðu félagsins, en hvorki frá stofnunum, stjórnmálaflokkum né öðrum hagsmunahópum. Töpum ekki okkar eigin þjóðaratkvæðagreiðslu. Segjum NEI á laugardaginn! „Hin litla eyþjóð ætti ekki að þurfa að bera kostnaðinn af aðgerðum Breta og Hollendinga.“ – Yfirskrift leiðara The Wall Street Journal um Icesave málið, 23. febrúar 2011 „Sú ákvörðun að bjarga innlánseigend-um á Icesave kostaði ríkisstjórnir [Bretlands og Hollands] 3,1 milljarð punda. En allir þeir fjármunir fóru til þeirra eigin þegna sem höfðu tekið þá ákvörðun að leggja sparifé sitt inn á Íslandi. Þessar aðgerðir voru á engan hátt liður í því að koma í veg fyrir nær algert hrun íslenska bankakerfisins eða hrun gjaldmiðilsins.“ – The Wall Street Journal, 23. febrúar 2011 „Allur heimurinn ætti að fylgjast með Íslandi. Himnarnir hrundu ekki þegar Íslendingar neituðu að borga fyrir mistök íslenskra bankamanna. Ef þeir hafna því aftur gæti það kveikt hugmyndir annars staðar.” – Financial Times, 21. febrúar 2011 „Vart er hægt að færa lagaleg rök fyrir ríkisábyrgð, og ríkisábyrgð væri langt í frá sanngjörn: Bretar og Hollendingar myndu aldrei endurgreiða erlendum innistæðueigendum kröfur að upphæð sem nemur þriðjungi þjóðarfram- leiðslu ef einn af stóru bönkum þeirra færi í þrot.” – Financial Times, 12. desember 2010 „Ábyrgðin á innstæðum Landsbankans hvíldi á tryggingasjóði innstæðueigenda sem Íslendingar komu á samkvæmt reglum Evrópska efnahagssvæðisins. Hann einn bar ábyrgðina á Icesave og öðrum innstæðum í bönkum. Ekki skattgreiðendur! Þetta voru reglurnar og þetta vissu Bretar og Hollendingar sem lögðu inn á Icesave; og þetta vissu breska og hollenska fjár málaeftirlitið. Íslendingar fóru í einu og öllu eftir EES reglunum þegar þeir komu tryggingasjóðnum á líkt og aðrar þjóðir í Evrópu.“ - Leiðari Frjálsrar verslunar 1. tbl. 2011 „Sem betur fer eru miklar líkur á að bresk og hollensk stjórnvöld fái stærstan hluta af upphæðinni til baka. Það er lykilatriði þegar fólk vegur og metur kostina í boði. Gangi allar lýsingar á endurheimtum úr búi gamla Landsbankans eftir gengur dæmið að stærstum hluta upp. Með því að merkja við nei á kjörseðlinum á laugardag er því ekki verið að segja að við borgum ekki krónu. Það er verið að segja að íslenskir skattgreiðendur eru ekki tilbúnir til að bera alla áhættu og ábyrgjast greiðslur til hollenskra og breskra stjórnvalda auk vaxta.“ - Leiðari Viðskiptablaðsins 7. apríl 2011. FRJÁLS VERSLUN Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is Spænsk vika hjá Heimsferðum Við verðum í Kringlunni á laugardaginn á Spænskum ferðadegi. Mörg tilboð í gangi hjá okkur í vikunni Allir sem skrá sig í netklúbb Heimsferða eiga möguleika á ferð fyrir tvo til Costa del Sol. Dregið verður mánudaginn 18. apríl Við erum á facebook www.facebook.com/heimsferdir B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ði r á sk ilj a sé r r ét t t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð ve rð g et ur b re ys t á n fy rir va ra . E N N E M M / S IA • N M 46 22 0 hann kæmist til Íslands. En nei, við sátum ekki heima og biðum, við kunnum að lifa í núinu og gerðum það sem við vorum vön, eftir því sem heilsa Björns leyfði, en hann var orð- inn mjög mikið veikur,“ segir Alla. „Í nóvember fengum við að vita að von væri á Jóhanni í desember, svo við vissum að biðin færi að taka enda,“ segir Björn. „Um leið og við vissum að von væri á Jóhann Jónssyni gat alveg eins verið að við yrðum á spítalanum á jól- unum svo að ég keypti allar jólagjafir í nóvember, pakkaði þeim inn og skreytti heimilið. Við eigum tvo syni og tengdadætur og þau studdu okkur öll,“ segir Alla. Þrettándinn 2011 – dagur sem ekki gleymist Jólin liðu og ekkert gerðist. Jóhann komst ekki til Íslands í desember, en í byrjun janúar var Birni og Öllu sagt að aðgerðin yrði gerð sjötta janúar. Þau lögðu af stað frá heimili sínu eldsnemma þess morguns til að fara í aðgerðina. Er þetta eins og í bíómyndunum; að fólkið sé keyrt hlið við hlið inn á skurðstofuna og haldist í hendur? „Nei, þetta var gert á sitt hvorri skurðstofunni,“ segir Alla skellihlæj- andi. „Fyrst þurfti að taka nýrað úr mér og Björn var ekki opnaður fyrr en blasti við að þetta væri í lagi.“ „Ég er enn með gamla, ónýta nýrað mitt,“ segir Björn. „Nýja nýrað var nefnilega sett í kviðarholið og tengt við slagæðina. Aðgerðin tók fjóra, fimm tíma og hana gerðu Jóhann Jónsson og Eiríkur Jónsson, frábærir læknar.“ Alla segist ekki geta annað en hvatt fólk til að skrá sig sem líffæra- gjafa, og skrá sig strax á lista hjá Landlæknisembættinu www.landla- eknir.is Í orkugöngu stuttu eftir upp- skurð „Þetta var ekkert mál,“ segir hún. „Eins og ég sagði áðan var ákvörðun- in svo sjálfsögð að ég þurfti ekki að hugsa mig um brot úr sekúndu.“ En hvernig leið þér, Björn, þegar Alla sagðist ætla að gefa þér nýra úr sér? „Ég var náttúrlega hæstánægður með konuna mína, er og hef alltaf verið. Ég hef stundum gert grín að því að það tók okkur 42 ár að verða eitt.“ Alla segir að aðgerðin hafi verið svo einföld að hún hafi verið komin heim tveimur sólarhringum síðar, með lítinn skurð sem hún sýnir mér. „Samt þykir þetta stór skurður miðað við nýrnaskurð,“ segir hún. „Þeir gera þetta oftast gegnum göt. Fljótlega eftir heimkomuna fór ég í göngu hér í götunni en svo leið ekki langur tími þar til ég var komin í Ég var löngu búin að bjóðast til að gefa honum nýra úr mér og losa hann við erfiðan tíma, því lífsgæðin eru svo skert þegar fólk er orðið svona mikið veikt eins og Björn var. Framhald á næstu opnu Helgin 8.-10. apríl 2011

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.