Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.04.2011, Side 24

Fréttatíminn - 08.04.2011, Side 24
orkugöngu í Heiðmörk. Ég má gera allt og borða allt.“ Björn þurfti hins vegar að dvelja lengur á spítalanum, eða í tíu daga. „Ég þurfti að vera í einangrun og fyrst eftir heimkomuna mátti enginn koma hingað heim því lyfin sem ég er á eru svo ónæmisbælandi að ég mátti ekki fá neinar sýkingar. Samt nældi ég mér nú í sýkingar, svo var mér stungið inn tvisvar í eina viku í senn eftir að ég var útskrifaður. Eftir að maður fær nýtt nýra þarf svo sterk lyf að eigið ónæmiskerfi er alveg brotið niður. Ég tek inn um sautján mis- munandi tegundir af töflum á dag, alltaf klukkan 8 á morgnana og 20 á kvöldin, það eru þau lyf sem mestu máli skipta, en hin lyfin tek ég yfir daginn og man alltaf eftir þeim.“ Heimurinn breytist alveg Mátuð þið lífið á annan hátt eftir þessa lífsreynslu? „Nei, reyndar ekki,“ segir Alla. „Við höfum áður verið veik og ekki bjart fram undan og þá héldum við að við myndum meta lífið allt öðruvísi – en það gekk í þrjá daga og eftir það varð allt eins!“ Björn segir að hann finni mest fyrir lífsstílsbreytingunni sem fylgir veikindunum. „Það sem ég finn mest fyrir er að ég get ekki lengur gert svo margt sem ég var vanur að gera, eins og að spila golf – ég pútta aðeins! – ekki lyfta neinu þungu og má enn ekki ferðast til útlanda.“ „En það góða við að vera í blóðskil- unarvél er að þá getur fólk farið um allan heim; bara finna stað þar sem eru góð sjúkrahús með blóðskilunar- vélar. En útlönd eru það sem minnstu máli skiptir, aðalatriðið er að Björn nái góðri heilsu,“ segir Alla. Þegar ég spyr Björn hvernig hon- um líði andlega og líkamlega hikar hann örlítið áður en hann svarar: „Ótrúlega miklu betur en áður, þetta er nýtt líf. Maður verður alveg samdauna því ástandi sem maður er í hverju sinni. Bara það að geta gengið um fannst mér eðlilegt þegar ég var veikastur, en auðvitað er það alls ekki eðlilegt. Ég var fárveikur en farinn að aðlagast slappleikanum og verkj- unum. Svo þegar maður er kominn með nýtt nýra breytist heimurinn alveg.“ Alla, var einhver sem latti þig til að gefa úr þér nýra? „Enginn, ekki nokkur manneskja. Mér fannst mjög skrýtið allt þetta vesen í kringum þetta. Amma hans Björns var með lítið starfandi nýra og lifði þangað til hún var næstum hundrað ára. Hún var mjög aktíf og gerði allt. Hvað er þá að gefa eitt nýra og eiga annað heilbrigt? Ekkert mál.“ Meiri áhætta að keyra í vinnuna en að gefa nýra Þau segja að almennt sé þekking fólks á starfsemi nýrna mjög lítil, en þegar þau hafi farið að kynna sér málin hafi þau hreinlega fyllst lotningu. Hvað eitt lítið nýra getur og algjör óþarfi að hafa tvö. „Það er talað um að þegar starf- semi nýrans er komin niður í 15% sé hætta á ferðum,“ segir Björn. „Starf- semi míns nýra var komin niður fyrir 15%, þannig að í raun mátti ekki tæpara standa.“ En var biðin ekki erfið? Alla jákvæða brosir og segir: „Desember var besti mánuðurinn til að bíða, jólin og allt umstangið. Við höfum alltaf gert það sem við getum, farið út að borða og pantað þá fyrir- fram þann mat sem Björn mátti borða og reyndum að halda lífinu í eins eðli- legum skorðum og hægt var. Jórunn Sörensen, sem fer fyrir félagi nýrna- sjúkra og aðstandenda þeirra, hefur verið mér alveg ómetanleg. Hún sagði mér að það væri meiri áhætta fyrir mig að keyra í vinnuna heldur en að gefa nýra. Fólk verður óskap- lega þreytt á að vera háð þessari vél, það verður þreytt og leitt.“ En hvað með þig Björn, varstu ekki með mikla verki? „Jú, ég var mjög kvalinn. Ég svaf aldrei heila nótt í marga mánuði.“ „Ég setti stóran Lazy boy í stofuna við sjónvarpið og þegar ég kom fram á nóttunni var hann vakandi í stóln- um með heyrnartólin á sér,” segir Alla. „Svo þegar hann þurfti að vera á spítala var ég að stríða honum á að hann hefði sofið hjá alltof mörgum hjúkkum!“ Björn hlær: „Já, það var vegna þess að það var alltaf verið að flytja mig milli deilda, troða mér inn á stofur, eina nótt á þessari stofu og aðra nótt á annarri, og alltaf nýjar hjúkkur!“ Leitað að Öllu á Landspítalanum „Það er svo yndislegt fólk sem starfar þarna að það eru engin orð til að lýsa því,“ segir Alla. „Ég stalst fram dag- inn eftir aðgerðina og fór að leita að Birni. Ég var eins og konan í Ára- mótaskaupinu. Ég var tengd við vegginn og ef Hringekjan hefði verið á hefði ég kippt þessu öllu úr sam- bandi! Ég mátti auðvitað ekkert vera að því að liggja þarna, og var spennt að sjá Björn svo að ég sótthreinsaði mig og fór inn á stofuna hans. Þá var farið að leita að mér!“ Greinilega mikill prakkari – en hvaða augum líta þau framtíðina? „Björtum augum, ég held að þetta verði nýtt og betra líf,“ segir Björn. „Ég geng lítillega núna, því miður þurfti að opna á mér kviðarholið svo að ég er enn með opinn skurð, en ég styrkist dag frá degi. Ég var kominn ansi langt niður í þessum veikind- um.“ Sjö mánuðir í helvíti „Ég myndi segja að þú hafir verið miklu veikari þegar þú varst með lifrarbólguna,“ segir Alla. „Þá mátti hann ekki sjá dagsbirtu, þurfti að vera með grímu og lífslíkurnar voru 25%. Hann fékk allar aukaverkanir sem hægt var að fá og var mjög mikið veikur.“ „Já, þessi lifrarbólgumeðferð er alveg skelfileg, vægt til orða tekið,“ segir Björn. „Maður sprautar sig einu sinni í viku, með Interferon. Það er mjög sterkt efni sem ræðst á allt í líkamanum, bæði heilbrigt og sjúkt, og ég fékk flogaköst eftir hverja spraut; lá bara og skalf. Svo þurfti ég að taka lyf sem efla áhrifin og það kemur ekki í ljós fyrr en hálfu ári eftir að meðferð lýkur hvort hún hefur heppnast. Þetta er ellefu mánaða meðferð. Það voru liðnir sjö mánuðir af þeim ellefu sem ég átti að vera í meðferðinni og ég var orðinn svo veikur að mér var ráðlagt að hætta henni. En ég sætti mig ekki við að hafa lifað sjö mánuði í helvíti fyrir ekki neitt svo ég þraukaði áfram. Það tókst,“ segir þessi rólyndi maður og brosir fallega. „Einkenni lifrarbólgu koma ekki fram fyrr en löngu eftir að maður smitast,“ segir Björn. Það var verið að athuga hvers vegna nýrað væri byrjað að gefa sig þegar í ljós kom að það var vegna lifrarbólgu C. En ég veit ekki hvort ég smitaðist á Mayo Clinic fyrir 35 árum eða við aðra blóðgjöf, því blóð var ekkert skimað á þessum árum. Lifrarbólgan var því búin að grassera í langan tíma – eða í næstum þrjátíu ár þegar hún greindist.“ „Þetta var ekkert sýnilegt,“ bætir Alla við. „Hann var ekki með verk á einum stað, heldur bara svo ofboðs- lega slappur. Ég sendi hann í hjarta- skoðun og hann kom svo hress til baka að hann sagðist bara ætla að fá sér tvær 25 ára en ekki eina svona tuðandi!“ segir Alla og brosir. „En það var aldrei leitað að lifrarbólgu, það var allt annað skoðað.“ Kveikurinn stuttur af lyfjunum En hvað með andlegu hliðina þegar svona mikil veikindi dynja yfir? „Miðað við allt og allt þá hélt ég andlegu hliðinni nokkuð góðri,“ segir Björn. „Ég bugaðist aldrei en varð geðstirður og slíkt.“ Ég er á steragjöf og finn að kveikurinn er stuttur og hlutir sem skiptu engu máli áður og ég hefði aldrei látið fara í taugarnar á mér, verða svo stórir og erfiðir, og skapið getur blossað upp, það er eins og bensíni sé skvett á eld. Lífslíkur Björns voru eki nema 25 prósent um tíma. Hann og Aðalbjörg horfa nú björtum augum fram á við. Ljósmynd/Hari Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga 10–18, laugardaga kl. 11–17 og sunnudaga kl. 12–17 Síðasta sýningarhelgi Ingimar Waage Allir velkomnir G unnlaugur Blöndal Listmunauppboð í Galleríi Fold Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu fer fram mánudaginn 11. apríl, kl. 18 í Galleríi Fold, á Rauðarárstíg Á uppboðinu er úrval góðra verka, meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna í dag föstud. 10–18, laugard. 11–17, sunnud. 12–17, mánud. 10–17 Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is sýnir málverk Friðland Vefuppboð Öll verkin eru til sýnis í Gallerí Fold stendur til 18. apríl 24 viðtal Helgin 8.-10. apríl 2011

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.