Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.04.2011, Blaðsíða 32

Fréttatíminn - 08.04.2011, Blaðsíða 32
Diljá Ámundadóttir vinkona Heiða er eins og uppskrift að góðri vinkonu. Hún er alltaf til staðar þegar ég þarf á henni að halda – en hún á líka auðvelt með að þiggja aðstoð frá öðrum. Það er ákveðin kúnst. Það er hægt að hlæja tryllingslega með henni – og svo grátum við líka saman, sem er svo dýrmætt. Móðurhlut- verkið fer henni svo vel, hún er húsmóðir mikil og hristir stundum bara óvart skúffuköku eða brauð fram úr erminni. Hún er hrútur sem þarf að vera í forystu og lætur ljós sitt skína þegar við á. Það er líka mikil kúnst. Hún er svo dásamlega breysk og mér finnst magnað að fylgjast með henni spila þann sóknarleik að verða betri í dag en í gær. Snorri Helgason bróðir Heiða er ein af mínum bestu vinum. Það er alltaf gott að hafa hana í kringum sig, hvort sem maður er að grínast eða gráta. Hún er traust, heil og gáfuð og líka fáránlega skemmtileg. Það er ekki séns að ég hefði orðið að þeim manni sem ég er í dag hefði ég ekki haft hana á kantinum. Jón Gnarr Heiða er elskulegur töffari og góður vinur. Hún er mikill húmoristi og einstaklega skapgóð, eins og gjarnt er med Bruce Springsteen- aðdáendur. Hana dreymir um að verða Carl Rowe þegar hún eldist. Íslenska þjóðin er lánsöm að eiga Heiðu að því hún er Ameríkani og er med sambönd í Washington og getur sungið öll lög Ríó tríós þegar það á við, enda dóttir Helga Pé. Hún er með svarta beltið í Facebook kung fu og alltaf snögg með sniðugt svar við heimskulegri spurningu. Hugrakkur stjórnmálafræðingur. Getur verið hégómleg í hófi enda nörd í æsku. Mannflokkur: Gáfuð og vel gerð. S. Björn Blöndal, aðstoðarmaður borgarstjóra Heiða Kristín er um margt merkileg manneskja. Hún er bráðgáfuð, ljóshærð eins og hinn engilfríði Jürgen Klinsmann og með húmor; allt góðir kostir. Hún er traustur vinur og úrræðagóð. Blæti hennar fyrir smáhundum hefur mér alltaf fundist dálítið skrýtið en það hefur ekki skyggt neitt á okkar samvinnu hingað til. M ér finnst merki­ legt hvernig kvenfyrirmyndir eru þessa dagana. Konur sem ná langt í bisness eða stjórnmálum eru oft ofsalega kaldar og hafa brynjað sig algjörlega. Rétt eins og þær séu með svo þykkan skráp að þær megi ekki sýna tilfinningar,“ segir Heiða Kristín. „Mér finnst nauðsynlegt að geta verið með smá fíflagang og geta hlegið, þó aðallega að sjálfri mér. Það rýrir ekki trúverðugleika minn og kemur ekki í veg fyrir að ég geti setið á fundum, verið alvarleg og rætt málefnalega um hluti sem skipta miklu máli.“ Ekki treyst fyrir völdum Að mati Heiðu Kristínar er Besti flokkurinn enn að ögra valdastrúkt­ úr og viðteknum venjum í Ráðhús­ inu. „Mín upplifun er sú að það sé vilji fyrir því hjá sumum að hafa okkur með, til dæmis í hugmynda­ vinnu. Það sé hins vegar best að þeir sem alltaf hafa stjórnað, stjórni áfram. Þeir kunni það. Ég tel okkur hafa sýnt að við tökum ábyrgðina, sem okkur var treyst fyrir í síðustu kosningum, mjög alvarlega.“ Hún segir viðhorf sumra stjórn­ málaflokka í garð Besta flokksins beinlínis hrokafullt. „Við erum jafn fær um að stjórna, taka ákvarðanir og koma með málefnalegar tillögur þótt við höfum ekki sama bakgrunn og aðrir.“ Vinalaust og sérstakt barn Heiða Kristín er dóttir Helga Pét­ urssonar úr hljómsveitinni Ríó tríói og Birnu Pálsdóttur og ólst upp í fjögurra systkina hópi. Yngstur er Snorri sem þekktur er úr hljóm­ sveitinni Sprengjuhöllinni. Næst er Heiða Kristín, aðeins fjórtán mánuðum eldri. Fimm og sex árum eldri en Heiða Kristín eru þau Pét­ ur, stoðtækjafræðingur hjá Össuri, og Bryndís, kennari í Hlíðaskóla. „Við erum fædd í svona pörum þannig að mamma mín elskar að halda sameiginleg boð. Við syst­ kinin eignuðumst svo börn á sömu árum og hún er strax farin að hlakka til sameiginlegra ferminga.“ Heiða Kristín lýsir sjálfri sér sem frekar óvenjulegu barni. „Ég átti eiginlega enga vini og var mjög selektív á fólk þegar ég var barn. Mamma var heima þar til ég var sex ára svo að ég var mikið með henni og umgekkst mikið af full­ orðnu fólki. Á heimilinu var alltaf verið að ræða um pólitík og ég man að mér fannst ég þurfa að gera það líka til að fá að vera með. Ég man eftir mér svona átta ára gamalli inni í frímínútum í skólanum að ræða stjórnmál við gangaverðina. Sem betur fer þroskaðist ég og fattaði hvað vinir eru mér mikilvægir. Ég er afskaplega þakklát fyrir að eiga marga góða vini í dag.“ Vinir Heiðu Kristínar lýsa henni sem mikilli félagsveru en hún fór í Menntaskólann við Hamrahlíð þar sem hún tók virkan þátt í Jafningja­ fræðslunni og öðrum félagsstörf­ um. Hún þykir einnig afbragðsgóð húsmóðir og kenndi heimilisfræði í Ísaksskóla í nokkur ár eftir mennta­ skólann. Skítamixaði stúdentsprófið Heiða Kristín fæddist í Washing­ ton, „mekka stjórnmálanna“ eins og hún kallar það, og telur það jafnvel hafa ýtt undir áhuga sinn á stjórn­ málafræði. „Ég hef næstum því pervertískan áhuga á bandarískum stjórnmálum og hef alltaf verið mjög upptekin af landinu og sögu þess. Það heillar mig mikið hvernig samfélagið er sett saman og hug­ myndafræðin um að allt sé hægt. Jafnvel þótt maður geri mistök geti maður risið upp aftur.“ Áhugi Heiðu Kristínar á Banda­ ríkjunum leiddi hana í Háskóla Ís­ lands. „Ég var dálítið hrædd við að fara í háskólanám. Ég skítamixaði stúdentsprófið svolítið þegar nám­ skránni var breytt á sínum tíma og náði að sneiða hjá alls konar áföng­ um og efnafræði og eðlisfræði. Svo er ég lesblind og eftir menntaskól­ ann ákvað ég að fara í greiningu til að kanna það betur. Þá kom í ljós hversu mikil lesblindan var og það dró verulega úr mér kjarkinn til að læra meira. Ég ákvað samt að skrá mig í nokkra áfanga og þar á meðal bandarísk stjórnmál. Pabbi hjálpaði mér mikið á meðan ég var að kom­ ast inn í námið og hann las fyrir mig námsefnið á meðan ég glósaði. Svo gekk mér ljómandi vel og fékk fínar einkunnir.“ Þannig hófst BA­ nám Heiðu Kristínar í stjórnmála­ fræði. Með náminu eignaðist hún tvo drengi með þáverandi sambýlis­ manni sínum. Hún var aðeins 22 ára þegar hún eignaðist fyrri drenginn. „Þá fannst mér ég rosalega full­ orðin og var alveg tilbúin í þetta hlutverk. Samt voru engir að eign­ ast börn í kringum mig. En ég vildi þetta þá, eignast íbúð og bíl og gera þetta allt rétt.“ Í nýju hlutverki Líf Heiðu Kristínar hefur breyst mikið undanfarið ár. Hún sleit sam­ vistir við barnsföður sinn og við tók nýtt hlutverk bæði í vinnunni og á heimilinu. „Núna skiptir mig minna máli að eiga íbúð og bíl og vera með pott­ þétt heimili. Ég er farin að slaka svolítið meira á. Margt af því sem ég hélt að væri svo mikilvægt í líf­ inu skiptir ekki eins miklu máli í dag. Núna skiptir mig meira máli að fylgja hjartanu og takast á við ný verkefni á hverjum degi, sem getur verið mjög krefjandi en gerir lífið svo skemmtilegt. Mér finnst ég eiginlega eldast aftur á bak.“ Heiða Kristín verður áköf þegar hún talar um Besta flokkinn og lýsir nánu og frábæru samstarfi. En hvers vegna gekk hún til liðs við flokkinn? „Ég var að leita mér að vinnu eftir að ég útskrifaðist úr háskólan­ um. Ég var með alla öngla úti, eins og maður er í atvinnuleit, og ræddi mikið við Gauk Úlfarsson, vin minn, sem var með hugmynd að einhverjum sjónvarpsþætti með Jóni Gnarr. Jón var alltaf að tala um þennan Besta flokk sem hann var nýbúinn að stofna. Ég ákvað að fara á einn fund með þeim og fékk að heyra hvað þeir voru að hugsa. Ég fann strax að mig langaði að Eldist aftur á bak Heiða Kristín Helgadóttir hefur grínast svo mikið að hún hefur grátið í starfi sínu sem framkvæmdastjóri Besta flokksins, en segir það ekki þýða að hún sé vitlaus. Í viðtali við Þóru Tómasdóttur lýsir hún fífldirfsku og dauðans alvöru á bak við hugmyndafræði flokksins sem hún átti þátt í að koma til valda í Reykjavík. Heiða Kristín byrjaði að ræða stjórnmál við ganga- verði í grunnskóla en heldur að hún yngist með árunum. Hvað segja vinir Heiðu Krist- ínar? Heiða Kristín Helgadóttir. Elskulegur töffari, segir borgarstjóri. Ljósmyndir/Hari Framhald á næstu opnu. 32 viðtal Helgin 8.-10. apríl 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.