Fréttatíminn - 08.04.2011, Qupperneq 40
Þ annig hefur oftsinnis háttað til að stutt hefur verið á milli kosninga til sveitarstjórna
og kosninga til Alþingis; ár eða
minna. Eitt sinn gerði ég lauslega töl-
fræðilega könnun á úrslitum slíkra
kosningapara og fékk sterka fylgni
með tilfærslum milli vinstri og hægri
í hvorum tveggja kosningunum. Gott
ef fylgnin var ekki sterkust milli úr-
slita í borgarstjórnarkosningum í
Reykjavík og landsúrslita í þingkosn-
ingum. Greinilegt var að kjósendur
voru oft að „hefna þess í héraði sem
hallaðist á Alþingi“.
Það er því miður algengt í öllum
kosningum að kjósendur horfi um
víðan völl en einbeiti sér ekki að því
sem kosningin á að snúast um hverju
sinni. Þetta er einkum bagalegt þegar greitt er þjóð-
aratkvæði um einstakt afmarkað efni og eru það ein
meginrökin sem beitt er gegn beinu lýðræði. Um
þrjátíu þjóðaratkvæðagreiðslur hafa farið fram um
ýmis málefni viðvíkjandi Evrópusambandinu í að-
ildarríkjum þess, svo sem um aðild að sambandinu,
um einstakar breytingar á grunnsamningum þess
eða um evruna. Vitað er að úrslitin hafa oft ráðist af
vinsældum ríkisstjórnar í viðkomandi aðildarlandi.
Kosningin nú snýst um eitt mál
Á morgun, 9. apríl, reynir á þjóðina í afar mikil-
vægri atkvæðagreiðslu um nýjan Icesave-samning.
Málið er flókið en í mjög einfaldaðri mynd snýst val-
ið um það hvort við viljum ljúka málinu með þeim
samningi sem nú liggur fyrir, og talinn er sá besti
sem fengist getur, eða hvort við viljum láta reyna á
dómstóla, innlenda og erlenda, og sjá hvernig okkur
skattgreiðendum reiðir af í ólgusjó lögspekinnar.
Vissulega eru mörg fleiri sjónarhorn, svo sem hin
siðferðilega hlið málsins, sem skiptir marga miklu
máli, meðal annars undirritaðan sem vill ekki vera
talinn óreiðumaður. Siðaðir menn semja við granna
sína. En skoðun mín er ekki tilefni þessa pistils
heldur hitt að hvetja kjósendur til að einskorða
sig við viðfangsefnið, að segja „já“ eða „nei“ um
fyrirliggjandi samning einan. Þessi kosning snýst
EKKI um forseta lýðveldisins, ekki um Evrópusam-
bandið, ekki um evruna, ekki um kvótakerfið, ekki
um ríkisstjórnina. Enn síður um stjórnlagaráðið og
hvernig því reiðir af. Með kosningunni erum við
heldur ekki að ná okkur niðri á ráðamönnum Breta
og Hollendinga. Kosningin snýst ekki um allt það
sem kjósendur kunna að vera fúlir út í. Hún snýst
aðeins um eitt mál, Icesave-samn-
inginn.
Hver svo sem úrslitin verða munu
þau efalaust verða túlkuð út og
suður af lýðskrumurum. Mikilvæg-
ara er að vandaðir fræðimenn kanni
niðurstöðuna út frá því sem hér er
rætt: Stóðst þjóðin prófið? Kynntu
kjósendur sér málefnið og létu það
eitt ráða atkvæði sínu?
Beint lýðræði er heillandi
Það er heillandi viðauki við full-
trúalýðræðið að þjóðin geti tekið
af skarið um mikilvæg lagafrum-
vörp sem Alþingi hefur afgreitt,
jafnvel lagt til lagabreytingar. En
þetta krefst áhuga og aga af hálfu
þjóðarinnar. Það kemur ekki af
sjálfu sér og ekki í einu vetfangi. Við höfum nánast
enga reynslu af þjóðaratkvæðagreiðslum. Mest er
reynslan í þeim efnum annars vegar í Sviss og hins
vegar í einstökum ríkjum Bandaríkjanna. Í Banda-
ríkjunum má rekja upphafið til öndverðrar 17. aldar
í fylkjum Nýja-Englands. Síðustu áratugina heyrist
einkum af slíkum atkvæðagreiðslum í Kaliforníu,
þar sem þróunin hefur verið með ýmsu móti og að
margra dómi orðið að eins konar skrílræði. Í Sviss
finnast dæmi um beint lýðræði allt aftur til 15. aldar.
Í nútímabúningi er þessi ríka lýðræðishefð þeirra
frá miðri 19. öld. Síðan 1848 hefur um 500 sinnum
verið efnt til þjóðaratkvæðagreiðslna í Sviss. Í
einstökum sýslum landsins (kantónum) skipta
slíkar atkvæðagreiðslur þúsundum. Fyrsta þjóðar-
atkvæðagreiðslan í Sviss var um nýja stjórnarskrá
en meðal dæma frá þessari öld er að finna þjóðar-
atkvæði um bann við akstri bíla einn sunnudag á
hverjum ársfjórðungi. Sú tillaga var felld með 62%
atkvæða en 49% svissnesku þjóðarinnar létu sig
málið það miklu skipta að að þau mættu á kjörstað.
Í slíkum atkvæðagreiðslum láta Svisslendingar ekk-
ert trufla sig, til dæmis ekki það hvernig ríkisstjórn
reiðir af – enda láta þeir sig yfirleitt litlu skipta
hverjir skipa hana.
Vöndum valið
Við væntanlega endurskoðun stjórnarskrár okkar
verða ákvæði um þjóðaratkvæði eitt af stóru málun-
um. Þá verður efalaust dreginn lærdómur af tvenn-
um kosningum um Icesave-málið alræmda. Meðal
annars af þeim sökum er mikilvægt að þjóðin hugsi
vel sinn gang, mæti á kjörstað og taki afstöðu til
þessa eina málefnis – og vandi valið!
Þjóðaratkvæðagreiðslur
ICESAVE er prófraun
á beint lýðræði
Við væntanlega endurskoðun stjórnarskrár okkar verða
ákvæði um þjóðaratkvæði eitt af stóru málunum. Þá
verður efalaust dreginn lærdómur af tvennum kosningum
um Icesave-málið alræmda. Meðal annars af þeim sökum
er mikilvægt að þjóðin hugsi vel sinn gang, mæti á kjörstað
og taki afstöðu til þessa eina málefnis – og vandi valið!
Þorkell Helgason
situr í stjórnlagaráði
Þ egar hart er í ári þarf fólk að læra að fara vel með. Hagsýnir húsráðendur nýta
matarafgangana í stað þess að
henda þeim í ruslið, sleppa óþarfa,
fara jafnvel að baka brauðið heima.
Föt eru lagfærð og látin ganga á
milli barna til að nýta þau sem best.
Þannig getur kreppa kennt okkur
góða siði, vanið okkur af bruðli og
heimtufrekju. En auðvitað getur
komið að því að það svíði undan
sparnaðarólinni; ef ekki er lengur
til fyrir nauðsynjum er illt í efni.
Þess vegna er svo mikilvægt að
gera sér grein fyrir hverjar hinar
raunverulegu nauðsynjar eru.
Nú er mikið kvartað yfir
sparnaðaraðgerðum í skólakerfinu
og sýnist sitt hverjum. Allir eru
samt á einu máli um að þar verði
að stíga varlega til jarðar, að ekki
megi fórna því sem gott er og mikil-
vægt börnunum okkar svo að þau
komist til þroska. Skólarnir verða
nú, rétt eins og heimilin, að skoða
hverjar grundvallarnauðsynjarnar
eru. Þeir verða líka að skoða þau
verðmæti sem þeir hafa í hönd-
unum og huga að því að nýta þau
sem best. Þá ætti einmitt að vera
rétti tíminn til að leita fanga í þeirri
gullnámu sem öllu skólafólki er
aðgengileg, en er að mínu mati oft
Gullnáman í skólabókasafninu
Verðmæti
vannýtt í íslenskum
skólum. Þessi gull-
náma er einfaldlega
bækurnar í skóla-
bókasafninu.
Yndislestur í
skemmtilegum
bókum ætti að
margra mati að
vera fastur liður
í skóladeginum,
ekki bara hjá yngri
börnunum, heldur
í öllum grunnskólanum. Lestur
góðra bóka gerir svo margt; eykur
lestrarleikni, bætir við orðaforða
og ýtir undir málþroska og mál-
vitund barnanna. Við
bóklestur lifir les-
andinn sig inn í líf og
kjör fólks á ýmsum
tímum, nær og fjær,
hann skilur að hann
er ekki einn með
sín hugðarefni og
vandamál, að fólk á
margt sameiginlegt.
Við lesturinn getur
barnið sökkt sér
niður í hugðarefni sín
og upplifað að það er gaman að leita
sér fróðleiks. Lestur góðrar bókar
er móðurmálstími, lífsleiknitími,
samfélagsfræðitími, siðfræðitími –
og ekki síst, skemmtun.
Já, er ekki einboðið að nota nú
sem best hina óþrjótandi upp-
sprettu fróðleiks og skemmtunar
sem skólabókasafnið er? Það skyldi
maður halda – en fréttir af niður-
skurði til safnanna, jafnvel lokun
þeirra og fækkun starfsfólks, bend-
ir til annars. Ef við missum hæft
fagfólk og aðstöðu úr skólunum
verður erfitt að endurheimta það
síðar. Nú skulum við huga vel að
þeim verðmætum sem við höfum
í höndunum og kasta þeim ekki á
glæ í skammsýni. Stöndum vörð
um skólabókasöfnin okkar, nýtum
þau vel og njótum þeirra!
Ragnheiður Gestsdóttir
rithöfundur
Eftirfarandi fyrirtæki eru ekki til sölu en við teljum
þau fáanleg fyrir rétta kaupendur.
• Skráðu þig á forgangslista og við sendum þér reglulega upplýsingar í tölvupósti um
tækifæri sem við getum ekki sett í auglýsingar. Upplýsingar og skráning á www.
kontakt.is.
• Framleiðslufyrirtæki í vaxandi atvinnugrein. Hentar vel til flutnings út á land. Þarf
a.m.k. 600 fm húsnæði með lágmark 8 metra lofthæð.
• Lítið innflutnings- og framleiðslufyrirtæki. Ársvelta 50 mkr. Hentar vel tveimur
handlögnum. Auðveld kaup.
• Rógróið fjölskyldufyrirtæki með innflutning á þekktri gæðavöru fyrir nýbyggingar og
viðhald fasteigna. Ársvelta 140 mkr.
• Lítil heildverslun með kerti, servéttur og einnota vörur. Ársvelta 50 mkr.
• Eitt besta bakarí borgarinnar. Ársvelta 70 mkr. Gott tækifæri fyrir duglega bakara sem
vilja eignast eigin rekstur.
• Fyrirtæki með þekktar "franchise" fataverslanir í Kringlunni og Smáralind.
EBITDA 20 mkr.
• Rótgróið innflutningsfyrirtæki með vörur fyrir sjávarútveg. EBITDA 50 mkr.
• Meðeigandi/fjárfestir óskast að traustu framleiðslu- og þjónustufyrirtæki til að nýta
vaxtamöguleika. Núverandi ársvelta um 150 mkr. Mjög góð ávöxtun fyrirsjáanleg.
• Heildverslun með prjónagarn. Góð umboð.
• Rótgróið gistihús í miðbænum. 40 herbergi.
• Lítil heildsala með vörur fyrir apótek. Góð viðbót við annan rekstur.
• Rótgróin, sérhæfð heildverslun með vélar og tæki. Ársvelta 140 mkr. EBITDA 25 mkr.
• Ört vaxandi ferðaþjónustufyrirtæki í Reykjavík. EBITDA um 40 mkr.
• Lítil heildverslun með sérhæfða vöru og góða afkomu. Heimsþekkt vörumerki.
• Vel rekið þjónustu- og viðgerðafyrirtæki á sérhæfðu sviði. Ársvelta 80 mkr.
Góður hagnaður.
• Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki sem þjónar mest matvælaiðnaðinum.
Ársvelta 60 mkr.
• Heildverslun með neytendavörur (ekki matvæli). EBITDA 80 mkr. Engar skuldir.
• Framleiðslufyrirtæki með eigin verslanir. Með yfir 50% markaðshlutdeild og góða
vaxtamöguleika. Ársvelta um 400 mkr.
• Þekkt heimilisvöruverslun með eigin innflutning. Ársvelta 80 mkr.
• Fyrirtæki á heilbrigðissviði með langtímasamninga. EBITDA 12 mkr.
• Rótgróið verslunarfyrirtæki með eigin framleiðslu í Kína á alþjóðlegu vörumerki óskar
eftir meðeiganda-fjárfesti til að auka framleiðslu og sölu erlendis.
• Heildverslun með ráðandi stöðu á sérhæfðu sviði. Ársvelta 270 mkr.
• Innflutningsfyrirtæki með vörur fyrir heimili. Ársvelta 70 mkr.
• Heildverslun með neytendavörur. Ársvelta 250 mkr.
• Þekkt iðnfyrirtæki sem selur að stórum hluta beint til almennings. Ársvelta 350 mkr.
• Innflutnings- og þjónustufyrirtæki. Ársvelta 220 mkr.
• Þekkt heimilisvöruverslun. Ársvelta 120 mkr.
40 viðhorf Helgin 8.-10. apríl 2011