Fréttatíminn - 08.04.2011, Síða 52
52 heilsa Helgin 8.-10. apríl 2011
CINTAMANI
WWW.CINTAMANI.IS
– Lifið heil
Fyrir þig
í Lyfju
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
43
84
0
3/
11
Multidophilus
Öflug samsetning mjólkursýrugerla fyrir
meltinguna. Viðheldur góðri þarmaflóru.
Gott á álagstímum og í ferðalagið.
Þ að vefst eflaust fyrir mörgum hvernig þeir eigi að taka fyrsta skrefið í átt að grænni og lífrænni lífsstíl, en ótrúlegt en satt þá er það í
raun sáraeinfalt. Það leikur enginn vafi á því að þegar
þú stígur þín fyrstu skref í átt að grænna líferni þá
skilar það sér margfalt til samfélagsins og lífsgæði
þín aukast. Þú getur stuðlað að mörgum samfélags-
legum undraverkum með því einu að taka lífrænt
vottaðar vörur fram yfir hefðbundnar. Lífræn ræktun
snýst nefnilega ekki eingöngu um þína eigin heilsu
heldur umhverfisvernd, dýravernd og samfélagslega
ábyrgð; nokkuð sem snertir bæði þig og afkomendur
þína. Við viljum flest skila jörðinni til komandi kyn-
slóða í að minnsta kosti ekki verra ástandi en þegar
við tókum við henni.
Breyting með börnum
Margir hefja sinn eigin græna og lífræna lífsstíl þegar
þeir eignast börn enda vilja foreldrar börnum sínum
allt það besta. Börn eru sérstaklega viðkvæm fyrir
auk- og eiturefnum í vörum og umhverfi. Hreint, líf-
rænt fæði er þeim ómetanlegur grunnur að góðri
heilsu sem þau munu búa að allt sitt líf.
Holle-barnamatur er eingöngu framleiddur úr
hágæða lífrænt vottuðum hráefnum, sem er sennilega
ástæða þess að Holle er eins vinsælt meðal foreldra og
raun ber vitni. Holle framleiðir meðal annars grauta
úr heilu korni, þurrmjólk, ávaxta- og grænmetismauk
og olíublöndu sem er sérstaklega sniðin fyrir unga-
börn. Lífræn vottun Holle er hin svokallaða Demeter-
vottun sem er ein sú strangasta sem um getur.
Umhverfisvæn vorhreingerning
Vorhreingerningin getur breyst í umhverfisvernd
með því að velja lífrænt vottaðar og umhverfisvæn-
ar hreingerningarvörur frá Sonett sem innihalda
eingöngu hreinsiefni unnin úr jurtahráefnum og
eru þess vegna 100% niðurbrjótanleg í náttúrunni. Í
Sonett-línunni eru allar þær hreinlætisvörur sem þú
þarft á heimilinu eins og hreinsilegir, uppþvottalögur,
þvottaefni, handsápur og ullar- og silkisápur.
Að lokum má nefna snyrtivörurnar sem eru einnig
mikilvægar í grænum lífsstíl en Dr. Hauschka og Lo-
gona framleiða hágæða, lífrænt vottaðar snyrtivörur
sem henta allri fjölskyldunni, þ.m.t. förðunar- og húð-
hreinsivörur, sápur, olíur og vörur fyrir tannhirðu
bæði fyrir börn og fullorðna. Úrvalið er mikið og
ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og um
leið sneitt hjá skaðlegum paraben-efnum og öðrum
krabbameinsvaldandi og hormónatruflandi efnum
sem eru algeng í hefðbundnum snyrtivörum.
Við höfum öll gott af því að takmarka magn eitur-
efna í umhverfi okkar og líkama. Tökum fagnandi
á móti grænum apríl og tökum áskoruninni um að
gerast umhverfisvænni og lifa heilbrigðara lífi árið
um kring.
T íbesku goji-berin eða úlfaber, eins og þau eru nefnd á íslensku, hafa
verið notuð í lækningaskyni
víða í Asíu í þúsundir ára. Talið
er að andoxunarefnið polys-
accharides í berjunum styrki
frumurnar, og þar með ónæmis-
kerfið, á undraverðum hraða.
Berin eru talin veita mikla
orku, draga úr þreytueinkenn-
um og auka almenna vellíðan.
Þess vegna eru þau stundum
kölluð hamingjuber. Einnig
er talið að þau stuðli að betri
svefni og aukinni kynhvöt.
Berin er nú hægt að nálgast í
flestum stórmörkuðum á Ís-
landi.
Auk andoxunarefnisins
polysaccharides innihalda berin
500 sinnum meira C-vítamín
en appelsínur, mjög hátt magn
af karótíni, fjölda B-vítamína,
E-vítamín og 18 amínósýrur.
Í berjunum er mikið af stein-
efnum eins og sink, járn, kopar,
kalk, selen og fosfór.
Hægt er að borða tíbesku
goji-berin beint úr pakkning-
unni eða blanda þeim út í morg-
undrykkinn eða morgunkornið.
Mælt er með því að fólk borði
daglega u.þ.b. 2-3 grömm, sem
eru ca. 20-40 ber.
–þt
Hamingjuber auka kynhvöt
Myndatexti: Goji-ber teljast nú til
svokallaðrar ofurfæðu en þau eru talin
auka orku og almenna vellíðan.
Ljósmynd/Nordic Photos/Getty Images
Berin eru talin
veita mikla orku,
draga úr þreytuein-
kennum og auka
almenna vellíðan.
Kynning Lífrænn LífsTíLL með YggdrasiL
Veldu grænu leiðina
allt árið um kring
Holle-barnamatur er
framleiddur úr lífrænt vottuðum hráefnum.
Sonett
hreingerningarvörurnar
innihalda eingöngu hreinsiefni unnin úr jurtahráefnum og eru
þess vegna 100 prósent niðurbrjótanleg í náttúrunni.
HELGARBLAÐ
Þú getur nálgast
Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum
N1 um land allt