Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.04.2011, Side 53

Fréttatíminn - 08.04.2011, Side 53
matur 53 www.66north.is UMMÆLIN SEGJA SITT Tískusýning 66°NORÐUR í New York WINNER 2011 Skannaðu kóðann “Útivist arfatnað urinn frá 66°NOR ÐUR er fallegur , þægile gur og h agnýtur ...” (www.he rcampu s.com) Matur og einbeiting Ef þú skoðar tölvupóstinn þinn eða horfir á sjónvarpið um leið og þú borðar er líklegt að þú borðir meira yfir daginn en þú annars myndir gera. Þetta kemur fram í nýrri, bandarískri rannsókn. Tveir hópar voru skoðaðir; annars vegar fólk sem var truflað við að borða og hins vegar fólk sem ein- beitti sér algerlega að matnum. Hálf- tíma eftir máltíð mundi fyrri hópurinn með naumindum hvað var í matinn og fann auk þess mun fyrr til svengdar en seinni hópurinn. Meiri hreyfing gæti fyrirbyggt þunglyndi Fjöldi rannsókna sýnir að hreyfing hefur jákvæð áhrif á þunglyndi. Nú er komið í ljós að regluleg hreyfing gæti haft fyrirbyggjandi áhrif á þunglyndi. Þetta eru niðurstöður viðamikillar rannsóknar á vegum dönsku lýðheilsu- stofnunarinnar þar sem fylgst var með heilsufari 18 þúsund Dana í 26 ár. Það er 1,8 sinnum líklegra að konur sem hreyfa sig minna en tvo tíma vikulega fái þunglyndi en konur sem hreyfa sig fimm tíma eða meira á viku. Fyrir karla er þessi stuðull 1,4. Tómatur Tomatl er úr máli Nahuatl-indíána en tómaturinn er upprunninn í Suður- Ameríku og er ekki grænmeti heldur ber. Talið er að byrjað hafi verið að rækta hann fyrir um 3.000 árum en þó bendir ýmislegt til þess að hann hafi upphaflega breiðst út sem illgresi á bauna- og maísökrum. Talið er að Nahuatl-indíánar hafi notað tómatinn aðallega í sósur og að Evrópu- búar hafi fyrst kynnst þessu rauða beri á 16. öld. Samkvæmt heimildum er vitað um tómatinn á Suður-Ítalíu í kringum 1522. Fyrst var hann kallaður ástarepli, Perúepli eða gullepli. Tómaturinn var ræktaður sem skrautjurt og skor- dýrafæla en hann var talinn vera eitrað- ur og geta orsakað gigt og krabbamein og jafnvel óseðjandi kynhvöt. Tómatar voru ekki borðaðir hráir og í bandarískri matreiðslubók frá árinu 1848 stendur að sjóða skuli þá ekki skemur en í þrjár klukkustundir. Í tvær aldir voru það aðallega Spán- verjar og Ítalir sem borðuðu tómata í Evrópu en Norður-Evrópubúar fóru að gæða sér á þeim seint á 19. öld. Samkvæmt heimildum er vitað að tómatsalat hafi verið í boði í brúðkaups- veislu á Íslandi árið 1899. (Heimildir fengnar úr bókinni Matarást.) -SJ

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.