Fréttatíminn - 08.04.2011, Blaðsíða 60
60 bíó Helgin 8.-10. apríl 2011
A Woman, a Gun and a Noodle Shop var frum-sýnd í Kína í desem-
ber í fyrra og þykir marka
ákveðin tímamót á glæstum
ferli leikstjórans þar sem hér
er á ferðinni kolsvört kómedía
en Zhang Yimou hefur hing-
að til látið grínið eiga sig.
Myndin var frumsýnd á al-
þjóðavettvangi á Alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni í Berlín
þar sem hún var tilnefnd til
Gullbjörnsins. Zhang notaði
tilefnið til að upplýsa að Co-
en-bræður hefðu sent honum
bréf, eftir að hafa séð mynd-
ina, þar sem þeir lýstu mikilli
ánægju með nálgun hans á
Blood Simple.
Blood Simple gerðist í Tex-
as þar sem Joel og Ethan mat-
reiddu býsna klassíska film
noir-sögu eins og þeim einum
er lagið. Þar réð ríkur en af-
brýðisamur maður gerspillt-
an einkaspæjara til að myrða
ótrúa eiginkonu sína og við-
hald hennar en ekkert fór eins
og ráð var fyrir gert. Zhang
færir söguna frá Texas til lítils
eyðimerkurbæjar í Gansu-hér-
aði í Kína og nú er það Wang,
eigandi núðluhúss, sem legg-
ur á ráðin um að koma eigin-
konu sinni og elskhuga henn-
ar fyrir kattarnef.
Zhang Yimou hóf feril sinn
sem leikstjóri árið 1987 með
Red Sorghum með kínversku
leikkonunni Gong Li í aðal-
hlutverki. Myndin markaði
upphaf á löngu og farsælu
samstarfi leikstjórans og
leikkonunnar auk þess sem
myndin var ausin lofi gagn-
rýnenda. Myndin hlaut Gull-
björninn í Berlín 1988 en
Yimou hefur síðan þá verið
iðinn við kolann þegar verð-
laun eru annars vegar.
Myndir hans Ju Dou (1990)
og Raise the Red Lantern
(1991) voru báðar tilnefndar
til Óskarsverðlauna sem besta
erlenda myndin og Rauði
lampinn vann til verðlauna í
Feneyjum, Cannes, Berlín og
víðar. Gong Li lék Songlian,
aðalpersónu Rauða lampans
sem var fjórða myndin sem
hún lék í fyrir Yimou. Þegar
Songlian er 19 ára missir hún
föður sinn og neyðist til að
giftast manni sem á nokkrar
konur fyrir. Alltaf þegar karl-
inn hefur ákveðið með hverri
kvenna sinn hann ætlar að
eyða nóttinni er rauður lampi
hengdur upp fyrir framan
vistarverur hennar. Allar
keppa þær um athygli eigin-
mannsins og beita ýmsum
brögðum til að ná lampanum.
Þrautseigja kínversks al-
þýðufólks í andstreymi og
erfiðleikum er Yimou algengt
yrkisefni auk þess sem lita-
notkun hans þykir sérstak-
lega úthugsuð og heillandi.
Í seinni tíð hefur hann vakið
mikla og verðskuldaða athygli
fyrir bardagalistamyndirnar
Hero og The House of Flying
Daggers. Hero skartar kín-
verskum stórstjörnum á borð
við Jet Li, Maggie Cheung,
Tony Leung Chiu-Wai .
Þetta er mikill miðaldahasar
sem greinir í endurliti frá því
hvernig einn maður leggur
þrjá leigumorðingja að velli og
bjargar lífi valdamesta manns
landsins. Hero var frumsýnd
í Kína 2002 en var ekki sýnd
í Bandaríkjunum fyrr en
tveimur árum seinna og sló
í framhaldinu í gegn í hinum
vestræna heimi. Leikstjórinn
fylgdi velgengni Hero eftir
með annarri epískri bardaga-
mynd. House of Flying Dag-
gers greindi frá hárbeittum
og skæðum ástarþríhyrningi.
Gagnrýnendur tóku myndinni
opnum örmum og fögnuðu
litadýrð myndarinnar sem
þótti greinilegt afturhvarf til
eldri mynda leikstjórans.
Eins og fyrr segir kemur A
Woman, a Gun and a Noodle
Shop dálítið á skjön við öll
fyrri verk Zhangs en honum
þykir almennt takast vel upp í
spennugríninu í núðluhúsinu.
blood Simple Færð Frá TexAS Til KínA
bíódómur SucKer punch
FrumSýndAr
Blóðug núðlusúpa
Hinir mögnuðu Coen-bræður stimpluðu sig hressilega inn með frumraun sinni, Blood Simple, árið
1984. Myndin er í miklu uppáhaldi hjá kínverska leikstjóranum Zhang Yimou (Hero, The House of Fly-
ing Daggers) sem flutti atburðarás bræðranna frá Texas til Kína í mynd sinni A Simple Noodle Story
eða A Woman, a Gun and a Noodle Shop. Sýningar á myndinni hefjast í Bíó Paradís í dag, föstudag.
Z ack Snyder hefur sem leik-stjóri sýnt og sannað að hann er alveg með hið sjónræna á
hreinu og er alveg „rosalega visjú-
allí kúl“ eins og markhópur Sucker
Punch myndi líklega orða það. Sny-
der fór hamförum í mögnuðu mynd-
máli í Watchmen og 300 enda varla
við öðru að búast þar sem báðar
þessar annars ágætu myndir voru
gerðar eftir meiriháttar myndasög-
um mikilla höfðupáfa þeirrar list-
greinar, Alans Moore og Franks
Miller.
Hingað til hefur Snyder byggt
myndir sínar á eldri verkum stærri
spámanna en í Sucker Punch vinn-
ur hann með eigið handrit, sem því
miður er veikasti hlekkurinn í þess-
um hressilega bræðingi tölvuleikja,
myndasögu og bíómyndar sem
er bragðbættur með öllum helstu
klisjum sem þekktar eru í þessum
bransa.
Samt er engin ástæða til að kvarta
þar sem Sucker Punch er töff mynd
þar sem flottar píur takast á við upp-
vakninga, vélmenni og alls konar
aðra óáran í leit sinni að fimm hlut-
um sem sameinaðir geta opnað þeim
leið út af geðveikrahæli þar sem þær
dúsa og eiga illt eitt í vændum. Það er
meira að segja boðið upp á bardaga
með gellu í köflóttu skólastelpupilsi
sem nær varla niður fyrir rasskinnar.
Klisjur eru klisjur vegna þess að þær
eru skemmtilegar.
Fyrir hópnum fer Baby Doll, sem
bíður þess að verða heilaþvegin að
undirlagi vonds stjúpa síns og á flótta
frá illum örlögum virkjar hún magn-
að hugarflug sitt og kippir með sér
öflugum liðsauka í nokkrum þján-
ingarsystra sinna.
Söguþráðurinn er brjáluð þvæla,
enda á flóttaævintýri stúlknanna
sér aðeins stað í hugarheimi þeirra,
þangað sem þær leita í sameiningu
til þess að flýja ömurleika hælisins
og tölvuspilið sem þær bjóða upp
á brúar illa bilið milli ímyndunar
þeirra og raunveruleika. En flott er
þetta. Þórarinn Þórarinsson
Í Source Code leikur Jake
Gyllenhaal herforingjann
Colter Stevens sem tekur þátt
í hátæknilegri tilraunastarf-
semi yfirvalda sem felst í því
að senda hann aftur í tíma
til þess að reyna að koma í
veg fyrir hryðjuverk. Tækni
þessi, svokallað source code,
gerir það mögulegt að koma
Stevens fyrir í líkama manns
um borð í lest sem hryðju-
verkamaður mun sprengja
innan átta mínútna. Verkefni
hans er að finna sprengju-
manninn og taka hann úr
umferð áður en hann nær
að fremja illvirkið og koma
Barney’s Version
Paul Giamatti leikur Barney
Panofsky, sjónvarpsframleiðanda
sem hefur komið víða við á ævi sinni.
Hann hefur ekki verið við eina fjölina
felldur í kvennamálum og alla tíð
verið drykkfelldur, kjaftfor, fram-
hleypinn og hrifnæmari en góðu hófi
gegnir, sem sést ágætlega á stöðugri
leit hans að hinni einu réttu. Hann
rifjar upp lífshlaup sitt þegar hann er
65 ára, eftir að nýliðnir atburðir hafa
neytt hann til að setja alla fortíð sína í
samhengi við stöðuna í lífinu.
Aðrir miðlar: Imdb: 7,4 Rotten
Tomatoes: 79% Metacritic: 67/100
... dálítið á
skjön við öll
fyrri verk
Zhangs
en honum
þykir
almennt
takast
vel upp í
spennugrín-
inu í núðlu-
húsinu.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
Eiginkonan í núðluhúsinu gefst ekki upp fyrir leiðinlegum karli sínum fyrr en í fulla hnefana.
Your Highness
James Franco leikur
Fabious prins. Þegar tilvon-
andi eiginkonu hans er rænt
leggur hann upp í leiðangur
til að bjarga henni, ásamt
letingjanum og aumingjanum
bróður sínum, Thadeous
(Danny McBride). Thadeous
hefur alla sína tíð verið land-
eyða og ræfill sem lepur bjór
og eltist við stelpur á meðan
bróðir hans fremur hverja
hetjudáðina af annarri, en
þarf nú loks að rífa sig upp
á rassgatinu og sýna hvað í
honum býr.
Aðrir miðlar: Imdb:
- Rotten Tomatoes: 50%
Metacritic: -
Groundhog Day terroristabanans
Klikkaðar klisjur
Natalie
Portman
mundar
bogann í
Your High-
ness.
þannig í veg fyrir röð yfirvofandi hryðjuverka sem fylgja
munu í kjölfarið. Í lestinni kynnist hann Christinu en nær
ekki að koma í veg fyrir sprenginguna. Hann er því sendur
aftur og aftur í sama verkefni og verður stöðugt hrifnari
af Christinu. Hann ákveður því að bjarga lífi hennar þegar
hann sannfærist um að honum takist ekki að stöðva ill-
virkjann.
Aðrir miðlar: Imdb: 8,1 Rotten Tomatoes: 90%
Metacritic: 73/100
Eltu @leodicaprio
Íslenskir íþróttafréttamenn hafa undanfarið
hrúgast inn á samskiptavefinn Twitter.com
þar sem þeir ausa grimmt
úr grunnum skálum visku
sinnar. Þar fer líka Charlie
Sheen mikinn og fjöldinn
allur af öðru forvitnilegu
fólki. Hollywood-liðið er
frekt til fjörsins á Twittinu og kvikmyndatíma-
ritið Empire hefur tekið saman lista yfir bíólið
sem er þess vel virði að elta á Twitter. Leon-
ardo DiCaprio er þar ofarlega á blaði en hann
twittar bæði um verkefni sín í kvikmyndum og
umhverfisvernd, sem á hug hans nánast allan.
Empire segir miklar líkur á að Leo svari fólki á
Twitter ef það er í náttúruverndargírnum. Þeir
sem sækist hins vegar eftir sögum af Titanic
geti gleymt því að fá svar.
Baby Doll fer fyrir föngulegum
vinkonum á ævintýralegum
flótta um eigin hugarheima.
Teppalagt
tækifæri
fyrir
stigaganga.
Verð frá 5.980 kr.
per m2 ákomið.
Vönduð og slitsterk,
þétton teppi sem
auðvelt er að þrífa.
Ármúla 32 · 108 Reykjavík · Sími 533 5060 · Fax 533 5061 · www.stepp.is
Bjóðum heildarlausnir, þegar endurnýja á gólfteppi í stigagöngum
í fjölbýlis- og sambýlishúsum. Við mætum og gerum tilboð í efni
og vinnu. Aðeins eitt símtal og málið er komið í gang.
S
te
fá
n
ss
o
n
&
S
te
fá
n
ss
o
n