Fréttatíminn - 08.04.2011, Page 66
66 dægurmál Helgin 8.-10. apríl 2011
Plötuhorn Dr. Gunna
(hugboð um) vandræði
Megas og Senuþjófarnir
Megas og Senuþjófarnir
eru flís og rass, samstarfið
smurt og öruggt. Þetta er
þriðja platan með frum-
sömdu efni en tökulagaplata
og tvöföld tónleikaplata
hafa líka runnið frá þeim.
Hugboðið er einföld og
stælalaus plata, sautján
lög á 50 mínútum. Það er
ekki verið að finna upp
Appelsínið í lagasmíðum
eða útsetningum, sum lögin
minna jafnvel á fyrstu plötu
Megasar. Innan rammans
er þetta þó fjölbreytt og
skemmtileg plata sem
sveiflast áreynslulaust frá
galgopalegu kúkagríni til
kaldhæðnislegra hugleið-
inga um þjóðfélagsástand
(t.d. í Gainsbourg-lega
meistaraverkinu Með
heftiplástur fyrir munninn).
Það er mjög góður fílingur á
plötunni og létt yfir textum
Megasar. Gerðu þér nú
greiða og nældu þér í eintak.
Femme Fatale
Britney Spears
Aumingja Britney.
Maður hefur á tilfinn-
ingunni að hún stjórni
ekki alveg ferðinni
sjálf, heldur sé her
fólks sem geri hana
út, svona eins og Elvis
og Michael Jackson.
Sjöunda platan hennar
er þétt og skörp og
her stúdíóspekinga
býr til töff umgjörð. Á
meðan rokkið er fast í
fösspedalnum þróast
hljóðheimur poppsins
í takt við tæknina
og er orðinn ansi
framúrstefnulegur á
köflum. Góð lög skipta
þó öllu og hér eru þau
í haugum, bæði kyn-
þroska og krakkalegra
stöff. Britney mætti
róa sig í átótjúninu sem
getur verið þreytandi,
en allt í allt er þetta
prýðilega plastaður
popppakki í partíið.
Credo
The Human League
Hvað eiga popparar að
gera þegar ellin færist
yfir þá? Fá sér vinnu í
bakaríi og láta yngra lið
stæla sig og hirða upp-
skeruna? Nei, segja The
Human League sem eru
mætt með níundu plöt-
una og þá fyrstu síðan
2001. Poppað hljóðgerv-
lasándið á bestu plötu
flokksins, Dare frá 1981,
var ferskt þegar það
kom út, en síðan hafa
allir, og ömmur þeirra,
hirt úr þeim hljóðbanka.
Credo minnir á gamla
tíma, en með alltum-
lykjandi nútímaslikju.
Samspil söngvaranna
þriggja, Phil Oakey,
Joanne og Susan, ofan
á beljandi syntapoppið,
er uppskrift sem gengur
upp hvað eftir annað í
grípandi og vel sömdum
lögunum. Þrjú núll fyrir
Human!
l istahátíð í Reykjavík verður haldin í tuttugasta og fimmta sinn dagana 20. maí
til 5. júní og venju samkvæmt verð-
ur mikið um dýrðir enda taka yfir
fimm hundruð listamenn, erlendir
og innlendir, þátt í um fjörutíu við-
burðum víðs vegar um borgina.
„Miðasalan er komin á fulla ferð
þannig að það er allt að gerast og
rosalega mikil og góð sala á marga
viðburði,“ segir Hrefna Haralds-
dóttir, stjórnandi Listahátíðar.
„Það er til dæmis nánast uppselt á
stóra tónleika með Jonasi Kauf-
mann og Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands í Hörpu og einnig á Ojos de
brujo sem er spænskt stuðband og
verður líka í Hörpu. Þá er líka að
verða uppselt á Ólöfu Arnalds og
Skúla Sverrisson og annað fer
mjög vel af stað.“
Dagskrá Listahátíðar er fjöl-
breytt og svo yfirgripsmikil að
ekki er fræðilegur möguleiki að
komast yfir allt það sem í boði
verður. „Fólk náttúrlega velur úr
og það er von okkar að allir geti
fundið eitthvað sem þeir telja sig
ekki mega missa af. Og þá ekki
síður að þessir viðburðir skilji eitt-
hvað eftir og að fólk verði betri
manneskjur fyrir vikið, eins há-
stemmt og það nú hljómar.“
Hrefna segir tónlist vera mjög
áberandi á hátíðinni að þessu
sinni. „Það liggur svolítið í hlutar-
ins eðli þar sem Harpa kemur
til sögunnar rétt vikunni fyrir
Listahátíð. Þannig að við verðum
með sjö tónleika í Hörpu í öllum
sölum hússins. Allar gerðir. Popp
og dægurtónlist, íslensk og erlend
og stórar stjörnur í klassíkinni.
Bæði tenórinn Jonas Kaufmann
og bandaríska ljóðasöngkonan
Barbara Bonney.“
Hrefna segir útlenda listamenn
hafa mjög mikinn áhuga á því að
koma fram á Listahátíð í Reykja-
vík. „Við fáum fjölda fyrirspurna,
nánast dag hvern, allt árið um
kring, frá listafólki og umboðs-
mönnum þannig að hátíðin er mjög
vel kynnt. Hún er líka komin á
fimmtugsaldurinn, varð fertug í
fyrra, og hefur bara getið sér gott
orð.“ Hrefna segir einnig að Ísland
og Reykjavík laði að sem fyrr og
skipuleggjendur Listahátíðar finni
lítið fyrir áhrifum þeirra áfalla
sem landið hefur orðið fyrir á al-
þjóðavettvangi. „Við finnum ekki
mikinn mun á því. En auðvitað
hefur allt orðið miklu dýrara fyrir
okkur að flytja inn eins og gefur
að skilja. Það er breytt landslag að
mörgu leyti í því samhengi en þá
þarf einhvern veginn að leita allra
leiða og nýrra lausna til þess að
geta flotta og alþjóðlega hátíð. Og
þar leggjast bara allir á eitt,“ segir
Hrefna sem má vel við una í ljósi
fjölbreyttrar dagskrár og mikils
áhuga á því sem í boði verður í
Reykjavík snemmsumars.
Dagskrá Listahátíðar og allar
frekari upplýsingar má finna á vef
hátíðarinnar, www.listahatid.is.
toti@frettatiminn.is
listahátíð í reykjavík allt að Gerast
Eitthvað mann-
bætandi fyrir alla
Fólk náttúrlega velur úr og það er von okkar að allir geti fundið
eitthvað sem þeir telja sig ekki mega missa af.
Jonas Kaufmann er einn fremsti óperusöngvari samtímans og tónleika hans
í Hörpunni er beðið með eftirvæntingu. Ljósmynd/Mathias Bothor/Deutche
Grammophone
HELGARBLAÐ
Sími 531 3300
RAKVÉL &
SKEGGSNYRTIR
Sölustaðir:
og öll betri apótek
Lyf & heilsa
Við hlustum!
LYFJA
Lifið heil
skegg
snyrtir
rakstur
Á s k r i f t
í síma 578-4800
og á w w w.rit.is
Tryggðu þér eintak
á næsta blaðsölustað
SCHMENGER
SCHUHMANUFAKTUR
KENNEL
NÝ
SKÓSENDING