Fréttatíminn


Fréttatíminn - 08.04.2011, Side 70

Fréttatíminn - 08.04.2011, Side 70
Á góðu spil- unum ger- irðu eitthvað jákvætt eins og til dæmis að segja kennaranum frá einelti. S pilið sem við bjuggum til er í raun mjög einfalt borðspil með venjulegum köllum og teningum og krakkarnir færa sig svo áfram á borðinu og lenda á reitum þar sem þau eiga að draga spil,“ segir María Björk Ágústsdóttir um forvarnar- borðspil gegn einelti sem hún er að markaðssetja ásamt þremur sam- nemendum sínum í frumkvöðla- fræðiáfanga í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. „Spilin eru svo annað hvort góð eða slæm. Þau slæmu tengjast einelti en þau góðu vináttu. Þannig að ef þú dregur vont spil þá ertu að gera einhverjum illt og þér er refsað með því að fara nokkra reiti aftur á bak eða eitthvað þannig. Á góðu spil- unum gerirðu eitthvað jákvætt, eins og til dæmis að segja kennaranum frá einelti, og kemst lengra áfram þannig.“ Krakkarnir fengu það verkefni í skólanum að hanna eitthvað eða flytja inn og markaðssetja og María Björk og félagar hafa því tekið dæmið alla leið og stofnað fyrirtæk- ið Eilífir vinir utan um vöruna sína en spilið kalla þau Trabb. Þorvarður Bergmann Kjartansson er mark- aðsstjóri, Alina Vilhjálmsdóttir starfsmannastjóri, Harpa María Guðmundsdóttir er framkvæmda- stjóri Eilífra vina en sjálf gegnir María Björk starfi fjármálastjóra. „Við fengum alveg frjálsar hendur og máttum gera hvað sem var, og þar sem mikil umræða er um einelti í þjóðfélaginu núna datt okkur í hug að útskýra fyrir ungum krökkum hvað einelti væri og kynna spilið sem leið til þess að reyna að koma í veg fyrir einelti á efsta stigi leik- skóla og neðsta stigi grunnskóla.“ -þþ  ungir frumkvöðlar Bjuggu til BorðSpil með BoðSkap  Bókaútgáfa ný glæpaSaga í Sumar Sigrún Davíðs skrifar krimma Hugmyndin að bókinni kviknaði fyrir bankahrun og hún er skrifuð á síðustu tveimur árum. Þú lest bókina og skilur samhengi hlutanna. Enn blæs byrlega fyrir Brimi Brim, kvikmynd Vesturports og Árna Ólafs Ásgeirssonar leikstjóra, hefur gert það gott svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Myndin sópaði að sér Edduverðlaunum á dögunum og að vonum hefur hróður hennar borist út fyrir landsteinana. Nú hefur tónlist Slowblow úr kvikmyndinni verið tilnefnd til verðlauna norrænna kvik- myndatónskálda, Nordic Film Composers Network. Dómnefndin fer fögrum orðum um tónlistina og segir hana meðal annars hljóma nákvæmlega eins og kvikmynda- tónlist á 21. öldinni eigi að gera. Verðlaunin verða afhent í Kaupmannahöfn 30. apríl. Almúgapilturinn með silfurskeiðina Icesave-þrætan hefur tekið á sig ýmsar furðulegar myndir og hefur fjarlægst raunveruleikann jafnt og þétt eftir því sem hin funheita kosning hefur færst nær. Þannig hefur til dæmis blóðþyrstur hákarl úr smiðju Stevens Spielberg blandað sér í málið, auk þess sem þrælkunarvinna íslenskra barna í breskum námum er nú í brennidepli. Þá þótti það einnig koma spánskt fyrir sjónir í vikunni þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, tók sér stöðu með almúganum gegn „elítunni“ og íslenskum aðli í Morgunblaðsgrein. Þar lýsti Sigmundur frati á forstjóra, háskólalið og aðra elítista sem vilja samþykkja Icesave III og stillti sér upp með alþýðu manna sem iðulega veit betur en elítan og vill segja „nei“ í kosningunum. Þó er hætt við að Sigmundur verði eins og þorskur á þurru landi innan um almúgann þar sem hann hefur ekki mikið þurft að dýfa hendi í kalt vatn af óþörfu. Faðir hans, Gunnlaugur M. Sigmundsson, Stormurinn smalar atkvæðum á Spáni Veðurfréttamaðurinn glaðhlakkalegi, Siggi stormur, sér um morgunþátt á Útvarpi Sögu. Þar hefur hann fylgt línu stöðvarinnar og verið einarður og ákafur talsmaður þess að þjóðin hafni Icesave-samningnum í kosningunni á morgun, laugardag. Sigga líður vel í sól og hita og hefur um árabil verið með annan fótinn á Spáni. Þangað flaug hann fyrr í vikunni og ekki aðeins til þess að elta sólina heldur einnig til að safna saman atkvæðum Íslendinga sem eru búsettir eða staddir á Spáni. Miðað við ákafa Sigga við hljóðnem- ann má telja næsta víst að hann reyni eftir fremsta megni að tryggja að sem flest „rétt“ atkvæði skili sér í kassann í tæka tíð. ú tvarpskonan Sigrún Davíðsdóttir, sem búsett er í London, leggur nú lokahönd á krimma sem mun koma út hjá Uppheimum í júní. Þetta er fyrsta glæpa- saga Sigrúnar, sem hefur vakið mikla athygli fyrir fréttir sín- ar af aðdraganda og afleiðingum bankahrunsins í Speglinum á RÚV. Hún segir í samtali við Fréttatímann að hugmyndin að því að semja glæpasögu hafi kviknað fljótlega eftir að hún sendi frá sér ástarsöguna Feimnismál árið 2006. Hugmyndin hafi gerjast með henni og síðan hafi hún sest niður vorið 2009 og byrjað að skrifa. „Þetta er ekki bók sem er skrifuð á einum mánuði heldur hef ég skrifað hana á kvöldin í afslöppun frá hinum daglega dampi,“ segir Sigrún. Ekki kemur á óvart að bókin tengist bankahruninu, við- skiptalífinu og Íslandi enda hefur Sigrún lifað og hrærst í því undanfarin ár. „Þetta er saga sem er skrifuð inn í þá atburði sem við þekkjum vel. Bókin byrjar á því að ung íslensk fréttakona, sem hefur starfað í London, lætur lífið í bíl- slysi. Hún hefur verið að skrifa bók um fjármálakreppuna og sambýlismaður hennar og vinur hennar, sem er íslenskur blaðamaður, taka sig til eftir dauða hennar og gera tilraun til að klára það sem hún var byrjuð á. Þeir kynnast stúlku sem vinnur hjá rannsóknarfyrir- tæki og saman reyna þau þrjú að komast að því hvað gerist eiginlega á Íslandi,“ segir Sig- rún. Hún þvertekur fyrir það að frægir útrásarvíkingar muni skjóta upp kollinum í bókinni. „Þessi bók er skrifuð í kringum atburði frekar en persónur,“ segir Sigrún. Og nafnið á bókinni er engin tilviljun. Hún mun heita Samhengi hlutanna. „Þú lest bókina og skilur samhengi hlutanna,“ segir Sigrún og hlær. Og hana dreymir ekki um heims- frægð og útgáfu- samninga erlendis? „Það er fram- tíðarmúsik. Fyrst kemur bókin út á Íslandi og við skulum sjá hvern- ig gengur. Von- andi hefur fólk gaman af henni,“ segir Sigrún. oskar@frettatiminn.is Lj ós m yn d/ R Ú V Fjölmiðlakonan Sigrún Davíðs- dóttir er nýjasti glæpasagna- höfundur Íslendinga. Krakkarnir kynntu spilið á Vörumessu á vegum Ungra frumkvöðla í Smáralind nýlega og vöktu mikla athygli. „Það kom okkur á óvart hversu gamlir krakkar settust niður og festust við spilið. Við hugsuðum þetta fyrir yngstu krakkana í grunnskóla en þarna voru krakkar í efri bekkjum að spila á fullu,“ segir María. Eineltispúkar fara aftur á bak • Bylting fyrir bakið • Styrkir magavöðvana • Frelsi í hreyfingum • Margviðurkenndur stóll Swopper vinnustóllinn www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 er metinn á einhver hundruð milljóna og eiginkona Sigmundar, Toyota- erfinginn Anna Sigurlaug Pálsdóttir, er metin á rúman milljarð. Þá hefur alþýðupilturinn Sigmundur lokið námi við Háskóla Íslands og stundað framhaldsnám við Oxford-háskóla, Plekhanov-háskóla í Moskvu og Kaup- mannahafnarháskóla. 70 dægurmál Helgin 8.-10. apríl 2011

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.