Fréttatíminn - 08.04.2011, Síða 70
Á góðu spil-
unum ger-
irðu eitthvað
jákvætt eins
og til dæmis
að segja
kennaranum
frá einelti.
S pilið sem við bjuggum til er í raun mjög einfalt borðspil með
venjulegum köllum og teningum
og krakkarnir færa sig svo áfram á
borðinu og lenda á reitum þar sem
þau eiga að draga spil,“ segir María
Björk Ágústsdóttir um forvarnar-
borðspil gegn einelti sem hún er að
markaðssetja ásamt þremur sam-
nemendum sínum í frumkvöðla-
fræðiáfanga í Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ.
„Spilin eru svo annað hvort góð
eða slæm. Þau slæmu tengjast
einelti en þau góðu vináttu. Þannig
að ef þú dregur vont spil þá ertu að
gera einhverjum illt og þér er refsað
með því að fara nokkra reiti aftur á
bak eða eitthvað þannig. Á góðu spil-
unum gerirðu eitthvað jákvætt, eins
og til dæmis að segja kennaranum
frá einelti, og kemst lengra áfram
þannig.“
Krakkarnir fengu það verkefni
í skólanum að hanna eitthvað eða
flytja inn og markaðssetja og María
Björk og félagar hafa því tekið
dæmið alla leið og stofnað fyrirtæk-
ið Eilífir vinir utan um vöruna sína
en spilið kalla þau Trabb. Þorvarður
Bergmann Kjartansson er mark-
aðsstjóri, Alina Vilhjálmsdóttir
starfsmannastjóri, Harpa María
Guðmundsdóttir er framkvæmda-
stjóri Eilífra vina en sjálf gegnir
María Björk starfi fjármálastjóra.
„Við fengum alveg frjálsar hendur
og máttum gera hvað sem var, og
þar sem mikil umræða er um einelti
í þjóðfélaginu núna datt okkur í hug
að útskýra fyrir ungum krökkum
hvað einelti væri og kynna spilið
sem leið til þess að reyna að koma
í veg fyrir einelti á efsta stigi leik-
skóla og neðsta stigi grunnskóla.“ -þþ
ungir frumkvöðlar Bjuggu til BorðSpil með BoðSkap
Bókaútgáfa ný glæpaSaga í Sumar
Sigrún Davíðs
skrifar krimma
Hugmyndin að bókinni kviknaði fyrir bankahrun og hún
er skrifuð á síðustu tveimur árum.
Þú lest
bókina
og skilur
samhengi
hlutanna.
Enn blæs byrlega
fyrir Brimi
Brim, kvikmynd Vesturports og Árna
Ólafs Ásgeirssonar leikstjóra, hefur gert
það gott svo ekki sé dýpra í árinni tekið.
Myndin sópaði að sér Edduverðlaunum
á dögunum og að vonum hefur hróður
hennar borist út fyrir landsteinana. Nú
hefur tónlist Slowblow úr kvikmyndinni
verið tilnefnd til verðlauna norrænna kvik-
myndatónskálda, Nordic Film Composers
Network. Dómnefndin fer fögrum orðum
um tónlistina og segir hana meðal annars
hljóma nákvæmlega eins og kvikmynda-
tónlist á 21. öldinni eigi að gera. Verðlaunin
verða afhent í Kaupmannahöfn 30. apríl.
Almúgapilturinn með
silfurskeiðina
Icesave-þrætan hefur tekið á sig ýmsar
furðulegar myndir og hefur fjarlægst
raunveruleikann jafnt og þétt eftir því sem
hin funheita kosning hefur færst nær. Þannig
hefur til dæmis blóðþyrstur hákarl úr smiðju
Stevens Spielberg blandað sér í málið, auk
þess sem þrælkunarvinna íslenskra barna í
breskum námum er nú í brennidepli. Þá þótti
það einnig koma spánskt fyrir sjónir í vikunni
þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins, tók sér
stöðu með almúganum gegn „elítunni“ og
íslenskum aðli í Morgunblaðsgrein. Þar lýsti
Sigmundur frati á forstjóra, háskólalið og
aðra elítista sem vilja samþykkja Icesave
III og stillti sér upp með alþýðu manna sem
iðulega veit betur en elítan og vill segja „nei“
í kosningunum. Þó er hætt við að Sigmundur
verði eins og þorskur á þurru landi innan um
almúgann þar sem hann hefur ekki mikið
þurft að dýfa hendi í kalt vatn af óþörfu.
Faðir hans, Gunnlaugur M. Sigmundsson,
Stormurinn smalar
atkvæðum á Spáni
Veðurfréttamaðurinn glaðhlakkalegi,
Siggi stormur, sér um morgunþátt
á Útvarpi Sögu. Þar hefur hann fylgt
línu stöðvarinnar og verið einarður og
ákafur talsmaður þess að þjóðin hafni
Icesave-samningnum í kosningunni
á morgun, laugardag. Sigga líður
vel í sól og hita og hefur um árabil
verið með
annan
fótinn á
Spáni.
Þangað
flaug hann fyrr í vikunni og ekki aðeins
til þess að elta sólina heldur einnig til
að safna saman atkvæðum Íslendinga
sem eru búsettir eða staddir á Spáni.
Miðað við ákafa Sigga við hljóðnem-
ann má telja næsta víst að hann reyni
eftir fremsta megni að tryggja að sem
flest „rétt“ atkvæði skili sér í kassann
í tæka tíð.
ú tvarpskonan Sigrún Davíðsdóttir, sem búsett er í London, leggur nú lokahönd á krimma sem mun koma út hjá Uppheimum í júní. Þetta er fyrsta glæpa-
saga Sigrúnar, sem hefur vakið mikla athygli fyrir fréttir sín-
ar af aðdraganda og afleiðingum bankahrunsins í Speglinum
á RÚV. Hún segir í samtali við Fréttatímann að hugmyndin
að því að semja glæpasögu hafi kviknað fljótlega eftir að hún
sendi frá sér ástarsöguna Feimnismál árið 2006. Hugmyndin
hafi gerjast með henni og síðan hafi hún sest niður vorið
2009 og byrjað að skrifa. „Þetta er ekki bók sem er skrifuð á
einum mánuði heldur hef ég skrifað hana á kvöldin í
afslöppun frá hinum daglega dampi,“ segir Sigrún.
Ekki kemur á óvart að bókin tengist bankahruninu, við-
skiptalífinu og Íslandi enda hefur Sigrún lifað og
hrærst í því undanfarin ár. „Þetta er saga
sem er skrifuð inn í þá atburði sem við
þekkjum vel. Bókin byrjar á því að
ung íslensk fréttakona, sem hefur
starfað í London, lætur lífið í bíl-
slysi. Hún hefur verið að skrifa
bók um fjármálakreppuna og
sambýlismaður hennar og
vinur hennar, sem er íslenskur
blaðamaður, taka sig til eftir
dauða hennar og gera tilraun til
að klára það sem hún var byrjuð
á. Þeir kynnast stúlku sem
vinnur hjá rannsóknarfyrir-
tæki og saman reyna þau þrjú
að komast að því hvað gerist
eiginlega á Íslandi,“ segir Sig-
rún. Hún þvertekur fyrir það að
frægir útrásarvíkingar muni skjóta
upp kollinum í bókinni. „Þessi bók
er skrifuð í kringum atburði frekar en
persónur,“ segir Sigrún.
Og nafnið á bókinni er engin
tilviljun. Hún mun heita
Samhengi hlutanna.
„Þú lest bókina og
skilur samhengi
hlutanna,“ segir
Sigrún og hlær.
Og hana dreymir
ekki um heims-
frægð og útgáfu-
samninga erlendis?
„Það er fram-
tíðarmúsik. Fyrst
kemur bókin út
á Íslandi og við
skulum sjá hvern-
ig gengur. Von-
andi hefur fólk
gaman af henni,“
segir Sigrún.
oskar@frettatiminn.is
Lj
ós
m
yn
d/
R
Ú
V
Fjölmiðlakonan
Sigrún Davíðs-
dóttir er nýjasti
glæpasagna-
höfundur
Íslendinga.
Krakkarnir kynntu spilið á Vörumessu á vegum Ungra
frumkvöðla í Smáralind nýlega og vöktu mikla athygli.
„Það kom okkur á óvart hversu gamlir krakkar settust
niður og festust við spilið. Við hugsuðum þetta fyrir
yngstu krakkana í grunnskóla en þarna voru krakkar í
efri bekkjum að spila á fullu,“ segir María.
Eineltispúkar fara aftur á bak
• Bylting fyrir bakið
• Styrkir magavöðvana
• Frelsi í hreyfingum
• Margviðurkenndur stóll
Swopper vinnustóllinn
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
er metinn á einhver hundruð milljóna
og eiginkona Sigmundar, Toyota-
erfinginn Anna Sigurlaug Pálsdóttir,
er metin á rúman milljarð. Þá hefur
alþýðupilturinn Sigmundur lokið
námi við Háskóla Íslands og stundað
framhaldsnám við Oxford-háskóla,
Plekhanov-háskóla í Moskvu og Kaup-
mannahafnarháskóla.
70 dægurmál Helgin 8.-10. apríl 2011