Læknablaðið - 01.08.1966, Side 19
LÆKNABLAÐIÐ
GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI ÍSLANDS
O G LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR
Aðalritsf jóri: Ólafur Jensson. Meðritstjórar: Magnús Ólafsson og
Þorkell Jóhannesson (L.I.), Asmundur Brekkan og Sigurður Þ. Guðmundsson (L.R.)
52. ÁRG. REYKJAVÍK, ÁGÚST 1966 4. HEFTI
Alma Þórarinsson, Ólafur Jensson og Ólafur Bjarnason:
KRABBAMEINSLEIT HJÁ KONUM
MEÐ FJÖLDARANNSÓKN
Skýrsla Leitarstöðvar-B Krabbameinsfélags íslands
Krabbameinsfélag Islands starfrækir Leitarstöð-B, en hún tók
lil starfa 30. júní 1964. Markmið stöðvarinnar eru skipulágðar
fjöldarannsóknir til að leita að krabbameini á byrjunarstigi, án
sjúkdómseinkenna, í móðurlífi kvenna á aldrinum 25—60 ára.
Leitin beinist sérstaklega að krabbameini í leghálsi, og er fyrst og
fremst stuðzt við frumurannsóknir (exfoliative cytology).
Hafizt var handa með rannsókn á konum, búsettum í Reykja-
vík, á fyrrgreindum aldri og nöfn og heimilisföng fundin í jtjóð-
skrá. Voru konunum, eftir stafrófsröð, send bréf og þess óskað,
að þær hefðu samráð við stöðina um hentugan skoðunartíma. Mið-
að við útsend liréf var aðsókn kvenna í Reykjavík í upþhafi að
Leitarstöð-B 50%, en jókst í 73% við annað kall. Til fróðleiks má
geta þess, að aðsókn norskra kvenna að krabbameinsleitarstöðinni
í östfold var 50% eftir móttöku fyrsta bréfs, en varð 76.9% eftir
móttöku annars hréfs (Messelt og Hoeg, 1965).8
Tala þeirra kvenna, sem komu til Leitarstöðvar-B fyrsta
starfsárið, er sem hér segir:
Konur úr Reykjavík ........................ 7390
Konur utan Reykjavíkur .................... 641
Alls: 8031
Meðaltal þcirra kvcnna, sem skoðaðar hafa verið daglega, er
40.