Læknablaðið - 01.08.1966, Síða 45
LÆKNABLAÐIÐ
163
nefnd ríkisstjórnarinnar þessum tillögum, og Kjaradómur tók því ekki
afstöðu til þeirra í sínum dómsúrskurði.
II. Á síðastliðnu sumri tókust samningar við borgarstjórn Rvíkur
um bílastyrk til handa læknum starfandi á vegum hennar — kr. 1000.00
á mánuði frá 1. jan. 1964. Fyrir jólin tókust sams konar samningar
fyrir lækna, sem unnu hjá ríkinu.
III. Við útreikning launa kandídata hafði sá háttur verið á hafður,
bæði hjá ríki og borg, að þar sem svo háttaði til, að kandídat skilaði
ekki fullum dagvinnutíma, var klipið af eftirvinnu og næturvinnu til
að ná fullri dagvinnu — 36 stundum á viku eða 150 stundum á mánuði.
Kjaranefnd felldi þann úrskurð í máli þessu, að slíkt væri óleyfilegt,
og hafa nú bæði ríki og borg sætt sig við þá niðurstöðu, en þó ekki fyrr
en eftir nokkurt þref. Er þessi leiðrétting afturvirk frá 1. júlí 1963.
IV. í byrjun janúar ritaði launanefnd Sjúkrasamlagi Reykjavíkur
bréf, þar sem óskað var umræðna um greiðslur fyrir ,,ambulant“-störf
vegna sjúklinga, sem legið hefðu á sjúkrahúsum og þörfnuðust nauðsyn-
lega eftirlits, a. m. k. fyrst á eftir sjúkrahúsdvöl. Svar hefur borizt frá
forstjóra S. R., Gunnari Möller, þar sem hann telur þetta vera mál
spítalastjórnarinnar og læknanna, en komi sér ekki við. Er sú afstaða
óskiljanleg, þar sem hér er um sjúklinga að ræða, sem útskrifaðir eru.
Mun hér vera um einhvern misskilning að ræða af hans hálfu, og verð-
ur þetta mál tekið upp að nýju alveg á næstunni.
Á döfinni eru samningar við Reykjavíkurborg um greiðslur fyrir
„ambulant“-störf unnin á röntgendeild Borgarsjúkrahússins í Fossvogi,
sem mun taka til starfa á næstunni, en ekki er endanlega gengið frá
þeim samningum.
Skattamála- Nefndin var óbreytt frá fyrra ári, þ. e. Hannes Þórar-
nefnd. insson formaður, Guðjón Lárusson, Ófeigur J. Ófeigsson
og Stefán Bogason.
Nefndin átti viðræðufund með ríkisskattstjóra og ræddi við hann
um að fá fyrningar, skatta og tryggingagjöld af bifreiðum alveg frá-
dráttarhæft til skatts og rekstrarkostnað bifreiða, að frádregnum 8—-
10% vegna einkaafnota, en samkomulag náðist ekki um þessi atriði.
Hins vegar hefur siglingakostnaður verið viðurkenndur til frádráttar,
að því er bezt verður vitað.
Nefndin undirbýr nú að fá hækkaðar fyrningar á lækningaáhöld-
um, sem nú eru 10%, og á læknabifreiðum úr 15% í 20% til jafns við
leigubifreiðar, og er í undirbúningi fundur með fjármálaráðherra um
þetta efni.
Samninganefnd Nefndina skipuðu Ólafur Jensson formaður,
sérfræðinga Haukur Jónasson og Guðjón Guðnason. Nefndin
(utan sjúkrahúsa). hélt fjóra formlega fundi með fulltrúum S. R. og
Tryggingastofnunar ríkisins í marz og apríl 1965.
Samningar áttu að renna út 1. apríl 1965, en mánaðarfrestur var veittur
til framlengingar á gildandi samningum.
Samkomulag það, sem síðan var gert við samningsaðila um störf
sérfræðinga, var síðan látið gilda til 1. maí 1966, svo sem aðrir samn-