Læknablaðið - 01.08.1966, Page 50
168
LÆKNABLAÐIÐ
fund um málið. Sýnilegt var, að hér var um víðtækt mál að ræða,
og þyrfti að kanna fyrri afskipti félagsins af þessum málum mörg ár
aftur í tímann. Því valdi stjórnin þann kost að skipa nefnd til að kanna
þessi mál. Var hún skipuð í byrjun janúar sl. í hana völdust Ófeigur J.
Ófeigsson formaður, Hannes Þórarinsson, Ólafur Jónsson og Ragnar
Karlsson.
Nefndin hélt síðan marga fundi og undirbjó málið frekar undir al-
mennan aukafund, sem haldinn var í Háskólanum 26. janúar sl. Var
þar lögð fram tillaga, þar sem borin voru fram ákveðin mótmæli gegn
sérlyfjaskránni nýju og farið var fram á, að við samningu reglugerða,
reistum á lyfsölulögunum, verði haft meira samráð við praktíserandi
lækna en áður hefur verið. Nefndin hefur nýverið skilað greinargerð
um þetta mál til stjórnarinnar, sem mun fylgja því eftir til heilbrigðis-
yfirvalda.
Læknaþjónustu- Eins og getið var í síðustu ársskýrslu, var á fyrra
nefnd L. R. ári stofnuð nefnd til þess að kynna sér skipulag
læknisþjónustu, fyrst og fremst á sjúkrahúsum.
Nefndina skipa Jón Þorsteinsson formaður, Guðjón Lárusson og Ólafur
Jensson.
Á fyrra ári unnu þeir félagar að gagnasöfnun frá útlöndiun, og
fluttu þeir félagar fyrstu skýrslu um niðurstöður sínar á fjölmennum
fundi að Hótel Sögu í maí 1965. Voru umræður þar mjög fjörugar um
þessi málefni. Útdráttur úr erindum þeirra félaga hafa þegar birzt í
Læknablaðinu. Eftir þennan fund komst mikil hreyfing á þessi málefni
innan félagsins. Var áhugi almennur meðal félagsmanna um að endur-
skoða allt kerfi á sjúkrahúsum. Nefndin starfaði síðan áfram að gagna-
söfnun og átti viðtöl við fjölda lækna um æskilegar skipulagsbreyting-
ar. Er nú verið að vinna úr þessum gögnum, sem hafa einnig verið
notuð af spítalalæknum í yfirstandandi deilu, sem drepið verður á héj-
á eftir.
Mikil óánægja hefur lengi ríkt í röðum lækna á Landspítalanum
og víðar með launakjör, starfsaðstöðu og vinnuaðstöðu, og sögðu all-
margir læknar á Landspítalanum, Kleppspítalanum og Borgarspítalan-
um upp í nóvember og desember síðastliðnum.
Hinn 23. des. 1965 skipaði Jóhann Hafstein dómsmálaráðherra
nefnd til þess að endurskoða skipun og fyrirkomulag læknisþjónustu
á Landspítalanum, sérstaklega með tiJliti til þess, að nokkur vandkvæði
eru fram komin hjá læknum, sem starfa hjá ríkisspítölunum og leiða
má af því, að margir hafa sagt upp starfi sínu. í nefndina voru þessir
skipaðir: Jón Þorsteinsson læknir, tilnefndur af Læknafélagi Reykja-
víkur, Árni Björnsson læknir, tilnefndur af Læknafélagi íslands, dr.
Ólafur Bjarnason yfirlæknir, tilnefndur af yfirlæknaráði Landspital-
ans og Rannsóknastofu Háskólans, dr. Sigurður Samúelsson yfirlæknir,
tilnefndur af yfirlæknaráði Landspítalans og Rannsóknastofu Háskól-
ans, og Guðjón Hansen tryggingafræðingur, sem jafnframt var skipaður
formaður nefndarinnar. Með nefndinni hefur starfað Ái'ni Þ. Árnason
viðskiptafræðingur, og hefur hann verið ritari hennar.
Nefndin tók þegar til starfa og hefur nú haldið 25 fundi, þar at’