Læknablaðið - 01.08.1966, Side 63
176
LÆKNABLAÐIÐ
Margréf Guðnadóttir:
UM INFLÚENZUFARALDRA
ÁRIN 1960- 1965
1 grein um vírussjúkdóma á Islandi, er dr. Björn SigurÖsson
l)irti í Læknablaðinu 1951, gerir hann rækilega grein fyrir gangi
inflúenzu hér á landi árin 1932—1953 og getur rannsókna sinna
á inflúenzufaröldrum árin 1919—1953. 1 Björn Sigurðsson og
samstarfsmenn lians hirtu fleiri athyglisverðar greinar um inflú-
enzurannsóknir á árunum 1946—1958. 2> 3> 4* 5 Sú síðasta af þess-
um greinum lýsir fyrsta faraldrinum af Asíuinflúenzu, sem hér
kom. 5 I henni er skýrt frá árangri af bólusetningu með innlendu
inflúenzubóluefni, sem greinarhöfundarnir bjuggu til í tilrauna-
stöðinni á Keldum árið 1957.
Eins og alkunna er, liafa inflúenzuveirur mikla bneigð til
að taka stökkbreytingum. Á fárra ára fresti koma fram inflú-
enzustofnar, sem eru svo ólikir foreldrum sinum, að nýju stofn-
arnir ná sér jafnvel upp í fólki, sem veikzt hefur í fyrri faröldr-
um, og fólki, sem aldrei hefur fengið inflúenzu. Samkvæmt heim-
ildum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, er fvlgzt hefur með
öllum inflúenzurannsóknum siðan 1948, hafa þcir A-stofnar in-
flúenzuveiru, sem ræktazt hafa síðan 1957, verið mjög áþekkir
Asíustofninum frá 1957 og eru taldir ein og sama veiran. B stofn-
arnir, sem einangruðust 1965, voru ólíkir cldri B-stofnum, en
B-stofnarnir 1966 eru mjög áþekkir þeim B-stofui, sem fannst í
Jóhannesborg 1958 og er hinn klassíski B-stofn áranna 1958—
1964.
Hér á eftir verður gert yfirlit yfir skráningu á inflúenzu ár-
in 1950—1965 og rannsóknir á inflúenzu í tilraunastöðinni að
Keldum árin 1961—1965.
Rannsóknaraðferðir
Auðveldasta aðferð til að rækta inflúenzuveirur er að taka
skolvatn eða strok úr liúlsi sjúklings, sem er að veikjast af in-
flúenzu, og sá þvi í amnion á unguðum eggjum, sem klakið lief-
ur verið í 11—14 daga i 37° hita. Inflúenzuveirur vaxa á 48—72
tímum. Þær sjást ekki við smásjárskoðun á sýktum amnion-