Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.1969, Blaðsíða 28

Læknablaðið - 01.04.1969, Blaðsíða 28
42 LÆKNABLAÐIÐ Guðmundur stundaði nám í læknisfræði við Hafnarháskóla og lauk prófi vorið 1911. Næstu þrjú ár starfaði liann á sjúkrahúsum í Danmörku og var i nokkra mánuði við héraðslæknisstörf á Jót- landi. Snemma árs 1914 sneri hann aftur heim til Islands. Guð- mundur var fyrst starfandi læknir í Reykjavík, en aðeins nokkra mánuði. í september 1 í)14 var hann settur — og nokkru síðar skipaður — héraðslæknir í Húsavíkurhéraði. Héraðslæknir var hann þó aðeins í tvö ár, þvi að seint á ári 1916 hvarf hann aftur til Danmerkur og ])á til framhaldsnáms í handlæknisfræði. A árunum 1916—1920 stundaði Guðmundur nám og starfaði á handlæknisdeildum Frederiksbergsspítala í Kaupmannahöfn og lagði þá einnig stund á kvensjúkdóma og fæðingarfræði. Árið 1920 hvarf Guðmundur að nýju heim lil Islands og hóf störf í Reykjavík, fvrst við almennar lækningar, en i janúar 1'922 byrjaði hann að starfa við læknadeild IJáskólans sem kennari í handlæknisfræði í forföllum Guðmundar Magnússonar prófessors. Hinn 1. janúar 1923 var hann settur dósent í almennri sjúkdóma- fræði og réttarlæknisfræði við læknadeildina, og annaðist hann kennslu í þessum fræðum þar til í október 1926. Iiaustið 1924 tók Guðmundur Thoroddsen við emhætti Guð- niundar Magnússonar sem prófessor í handlæknisfræði og yfir- selufræði við læknadeild Háskóla Islands. Hann var rektor Há- skólans árin 1926—1927. Fram til ársins 1931, eða þar lil Landspítalinn var fullreistur, hafði Guðmundur starfsaðstöðu á Landakotsspítala, bæði til kennslu og fvrir sjúklinga sína. Er Landspitalinn tók til starfa í árslok 1930, var liann skipaður yfirlæknir handlæknisdeildar og fæðingardeildar Landspítalans og jafnframt forstöðumaður Ljós- mæðraskóla Islands. Gegndi hann þessum störfum öllum þar til i júní 1952, að hann lél af störfum sökum aldurs. Raunar hafði hann fengið lausn frá störfum að eigin ósk 1. sept. 1951, en féllst á þá ósk læknadeildar að starfa áfram til vors 1952. Hinn 1. janúar 1949 tók núverandi fæðingardeild til starfa, og var þá ráðinn til hennar deildarlæknir, sem tók að sér stjórn hennar svo og Ljós- mæðraskólans, en það lélti verulega starf Guðmundar þessi siðustu ár. Þegar Guðmundur fékk lausn frá störfum við Landspítalann, var hann aðeins 64 ára. IJann var þá i fullu fjöri og í engu farinn að tapa hæfni sinni sem skurðlæknir. Var það mönnum nokkurt undrunarefni, að hann skyldi hætta svo fljótt, en skýring hans var sú, að skurðlækningar væru kröfuhart starf, sem ekki væri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.