Læknablaðið - 01.04.1969, Blaðsíða 52
60
LÆKNABLAÐIÐ
ítroðslu (tamponade), og náðust 90 ml af blóðugum gollurs-
Iiússvökva. Veirur ræktuðust ekki frá þessum vökva, og
þynningarmælingar voru ekki gerðar. Sjúklingur lá lengi
mikið veikur á Landspítalanum með pleuropneumonia; hefur
fengið einkenni um hjartabilun tvisvar til þrisvar eftir þessi
veikindi.
2. B. A. $ , 33 ára. Myocarditis.
Kvartaði um svima og hjartsláttaróþægindi. E. Iv. G. sýndi
fyrst Wenckebach’s fyrirbrigði, en síðar reglulegan takt, PQ
bil 0.28 sek. og dreifðar S-T breytingar. I desember 1967 er
PQ enu þá lengt og S-T stykki eru söðullaga. Hækkandi mót-
efni gegn Coxsackie B5 mældust í þessum veikindum.
3. G. S. S , 21 árs. Pericarditis acuta.
Yeiktist með liita, liðverkjum og kverkabólgu; fékk sam-
tímis takverk undir bringubein. Núningsldjóð frá gollursliúsi
heyrðust einu sinni. Hjartsláttartruflun, sem stóð stutt og
náðist ekki á E. K. G. AST 50 ein. Sjúklingur náði sér fljótt.
Engin varanleg eftirköst.
4. E. J. s , 41 árs. Pleuropericarditis.
Fékk köldu, háan hita og takverk hægra megin i brjóst.
Öndun var veikluð yfir neðanverðu hægra lunga, og núnings-
hljóð heyrðust frá gollurshúsi. Batnaði á nokkrum dögum,
og er ekki vitað um eftirköst. E. K. G. innan eðlilegra marka.
5. S. B. S, 11 ára. Encephalitis.
Höfuðverkjaköst með ógleði, uppköstum, þokusýn og roða í
andliti og augum. Vöðvaviðbrögð mjög mikið aukin í köst-
unum. Hafði hyperæsthesiur. Sendur á barnadeild Land-
spítalans. Auldnn frumufjöldi í mænuvökva, en eggjahvítu-
efni 46 mg %. E. E. G. óeðlilegt. Veikur í u. þ. b. tvo mánuði.
Sækist nú illa nám, en sæmilega áður.
6. Á. G. 2,32 ára. Ccirditis.
Veiktist í faraldrinum í janúar. I marzmánuði byrjaði skyndi-
lega takverkur undir bringubeini, leiddi upp í háls og út í
vinstra handlegg. Núningshljóð heyrðust aldrei, en E. K. G.
sýndi merki um myocarditis. í nóvember 1967 eru enn þá
lágir T-takkar í öllum brjóstleiðslum og bnykkt (notched)
S í leiðslu III og AVF, en þessar breytingar þurfa elcki að
tákna hjartasjúkdóm. Samanburðarrit ekki til frá fvrri tíma.
7. S. L. s , 29 ára. Pleuropneumonia.
Veiktist í nóvember 1965 með háum hita, taki og eymslum
yfir nýrnasvæðum. Vægur hósti. Rtg.-mynd sýndi dreifðar