Læknablaðið - 01.04.1969, Page 32
46
LÆKNABLAÐIB
%
O— -O tala lifandi með a. a. a.
O-----O tala lifandi af sambærilegu fólki úr þjóðlífinu.
I. tafla
greinum.6 75% voru dánir innan sex mánaða og 80% innan eins
árs. Wright fann, að 29.4% sjúldinga lifðu eftir tvö ár.7 Hjá
Roberts voru 50% dánir innan tveggja ára, og eftir fimm ár lifðu
11% sjúklinganna.8 Shapiro aihugaði 87 krufningartilfelli, og
liafði tæplega helmingur dáið vegna sprungu.9 Ekki virtist aldur,
kyn, háþrýstingur (ofvöxtur á vinstri ventriculus notað sem
merki um h. þ.) hafa áhrif á afdrif. Enginn ósæðarhnútur, minni
en finnn cm í þvermál, sprakk. Niðurstaða rannsóknarinnar var
sú, að skurðaðgerð skvldi gera á yngri sjúklingum með a. a. a.
finnn cm i þvermál eða meira. Hins vegar mætti fylgjast með
eldri sjúklingum, en á öðrum, sem hafa einkenni frá ósæðarhnút-
inum, beri að gera aðgerð, enda fundu Crawley et.al.,10 að 63%