Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.1969, Page 38

Læknablaðið - 01.04.1969, Page 38
50 LÆKNABLAÐIÐ Hinn brottnumdi ósæðarhluti. kviðarhol hefur verið opnað, er farið með hönd upp að þind og þrýst þar á meginæð upp að hryggsúlu, þar til hlóðþrýstingur er orðinn að minsta kosti 100 mm Hg. Síðan er losað um meginæð fyrir ofan ósæðarhnútinn og sett töng þar á. Er þá hægt að sleppa blóðrás aftur á æðarnar til innýflanna. Síðan fer aðgerðin fram, eins og hnúturinn hefði ekki verið sprunginn. Á Sjúkrahúsi Akraness liöfum við haft einn sjúkling með a. a. a. á síðastliðnu ári. Var ósæðarhnúturinn numinn hrott og sett dacron-gerviæð í staðinn. Sjúklingurinn er 58 ára gömul kona, sem fimm árum áður hafði verið hér vegna æðakölkunar og ein- kenna frá vinstra l'æti. Var þá gerð sympatectomia lumbalis sin. með allgóðum árangri í fyrstu, þannig, að sjúklingurinn gat tekið upp sitt fyrra starf og smáfleiður á tá og jarka greru strax. Dreifðar æðakölkunarhreytingar voru á slagæðum til vinstra gang- lims, en livergi alveg lokað og ekki talið ráðlegt að gera neitt frekar við æðarnar. Árið 1965 fékk sjúklingurinn tvisvar hráða æðasegabólgu (thromhoplilebitis), sitt skiptið i hvorn fót. Var þá sett á sega- vörn, og var sjúklingurinn á henni í tvö ár með ágætum árangri. Hann hætti í maí 1967 og fór þá versnandi í fótum með vaxandi helti (claudicatio), og er hægri fótur nú verri en hinn vinstri. Þá

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.