Læknablaðið - 01.04.1969, Blaðsíða 40
LÆKNABLAÐIÐ
52
neðri endinn saumaður við art. iliaca og blóðstraum hleypt á hægri
ganglim og að lokum á sama hátt við vinstri art. iliaea. Lítið
hlæddi úr saumum, og ekkert blóðþrýstingsfall varð við að taka
æðatengur af. Sjúklingur fékk heparin einn ml í slagæð í hvorn
ganglim, áður cn hlóðrás var stöðvuð, og samsvarandi magn af
protamin var gefið, rétt áður en hlóð var sett í gerviæðina. Var
hlóðrás stöðvuð i 95 mín., en alls tók aðgerðin um sex klukku-
stundir.
Eftir að öruggt var, að blóðrásin væri í lagi, var skina saumuð
vandlega yfir gerviæðina. Sjúklingur fékk 2.5 1 af blóði, meðan á
aðgerð stóð, auk tveggja 1 af glucosu, 5%.
Sjúklingi heilsaðist vel eftir aðgerðina. Þvagútskilnaður var í
góðu lagi, og hlóðrás til ganglima var verulega hetri og gangþol
aukið. Væg þvagfærasýking tafði afturbata nokkuð, en sjúklingur
útskrifaðist af sjúkrahúsinu 26. ágúst 1967.
Sjúklingi heilsaðist vel, þar til síðastliðið vor, að aftur fór að
bera á einkennum frá fótum, og sýndi myndataka með skuggaefni
(aortografi), að aorta-gerviæðin starfaði vel, svo og iliaca-æðar,
en staðbundin lokun var i femoralis superfic. Ilinn 24. maí var
gerð thromberndarterectomia á sjö cm löngu svæði, og batnaði
blóðstreymi verulega við ]>að. Mánuði eftir aðgerð hafði gangþol
fjórfaldazt lrá því fyrir liana.
Samandregið
Gerð er grein fyrir horfum og afdrifum sjúklinga með ósæða-
hnút (aneurysma aortae abdominalis) og þeim möguleikum, sem
nú eru lil róttækra aðgerða, síðan farið var að nota gerviæðar
sem slagæðar. Skýrt er frá slikri aðgerð á 58 ára gamalli konu
á Sjúkrahúsi Akraness, sem mun vera fyrsta aðgerð á ósæðar-
hnút ú Islandi.
Heimildir:
1. Gross et al.: N. Engl. J. Med. 239:578, 1948.
2. Dubast et al.: Arch. Surg. 64:405, 1952.
3. Estes: Circulation 2:268, 1950.
4. Kampmeier: Am. J. Med. Sc. 192:97, 1936.
5. Brindley: Am. J. Path., 32:67, 1956.
6. Gliedmann: Annal. Surg., 146:207, 1957.
7. Wright: Circulation, 13:754, 1956.
8. Roberts: Circulation, 15:483, 1957.
9. Shapiro: Cal. Med., 87:155, 1957.
10. Cranley, A. M. A.: Arch Surg. 69:185, 1954.
11. Sommerville et al.: Medicine 38:207, 1959.