Læknablaðið - 01.04.1969, Qupperneq 47
Við bólgu og ígerðum í öndunarvegi
Mjög mikil og víðtæk bakteríudrepandi verkun.
PENBRITIN hefur áberandi mikla verkun gegn helztu bakteríum, sem
valda bólgum í öndunarvegi. Auk þess hefur það verkun á fjölda gram-
jákvæðra og gram-neikvæðra baktería, sem geta komið fyrir við ígerðir í
öndunarvegi án þess að vera beinlínis valdar að ígerð. Sérstaklega ber að
benda á, að PENBRITIN verkar mjög kröftuglega á inflúenzubakteríuna
(H. Influenza), sem oft veldur örðugum bólgum í öndunarvegi. Tilraunir
með 8 sýklalyf, sem oft eru notuð við ígerðir í öndunarvegi, hafa leitt í
ljós, að PENBRITIN hafði kröftugasta verkun þeirra allra á þá 100 stofna
af inflúenzubakteríunni, sem reyndir voru.1
PENBRITIN hefur bakteríudrepandi verkun, en það er mikilvægt, einkum
við ígerðir í gömlu fólki og börnum, sem geta verið sérstaklega næm
fyrir ígerðum í öndunarvegi.
PENBRITIN er penicillínafbrigði. Þess vegna er unnt að haga skömmtum
allt eftir því, hve alvarleg bólgan er, án þess að eiga á hættu verulegar
aukaverkanir. Reynslan sýnir þó, að flestar ígerðir í öndunarvegi má lækna
með einstökum skömmtum af venjulegri stærð (0.25—0.5g). Með
Ieinstökum skömmtum af þessari stærð má þannig fá fram magn í blóði,
sem er vel umfram það magn, sem heftir vöxt næmra baktería.
I Umboðsmaður er reiðubúinn að láta í té allar frekari upplýsingar, ef þess
er óskað.
Frábending: penicillín ofnæmi.
Aukaverkanir: eins og við önnur penicillínafbrigði.
1. Khan, W., Koss, S., & Zarembo, A. E.: Antimicrobial Agents & Chemotherapy (1966),
p. 393.
*Vörumerki. ,
G. Olafsson h.f.
AÐALSTRÆTI 4 SÍMI 2441B