Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.04.1969, Side 51

Læknablaðið - 01.04.1969, Side 51
LÆKNABLAÐIÐ 59 heilbrigðisskýrslum (efst á myndinni). Talan ofan við strikið táknar f jölda skráðra tilfella í Hvammstangahéraði, en talan neðan við strikið táknar fjöldann í öllu landinu. Sjúkdómseinkenni Eins og sést af III. töflu, har mest á slappleika, hósta, nef- rennsli, hálsbólgu og höfuðverk. Einnig var berkjubólga alllíð, og augnslímhimnubólgu fékk nálega þriðjungur þeirra, sem veikt- ust. Ljósfælnir voru 15, og þrjú börn fengu lungnabólgueinkenni. Sennilega hefur væg lungnabólga verið algengari en fram kemur i töflunum, þar eð einkenni (berkjuöndun og slímhljóð) stóðu slutt. Sama máli gegnir um berkjuhólgu, sem var greind, ef ronchi heyrðust við lilustun. Aðeins sjö fengu fleiðrutak (pleurodynia), en þess ber að geta, að faraldurinn var orðinn vægari, þegar hann barst til Hvainms- tanga. í upphafi faraldursins, þ. e. vestan Hrútafjarðar, var hiti yfirleitt hærri og fleiðrutak tíðari kvörtun. Greining Þegar sóttin byrjaði í Hrútafirðinum, vaknaði fljótlega grunur um, að Coxsackie B veira væri á ferðinni, einmitt vegna þess, hve fleiðrutak var algengt. Nokkru eftir að faraldurinn hófst, fékk tilraunastöðin að Keld- um nokkur sýni til veirugreiningar. Voru tekin saursýni og/eða hálsskolvötn á 1. til 5. sjúkdómsdegi og einnig hlóð til mótefna- mælinga, hæði frá fólki á Hvammstanga og víðar í héraðinu. Coxsackie B5 veira ræktaðist frá fimm sjúklingum af sama hæ. Hækkandi mótefni gegn sömu veiru fundust hjá tveim öðrum sjúklingum í afturbata, en það voru einu sjúklingarnir, sem samanburðarþynning (titer) var mæld hjá. Aðrar veirur ræktuð- ust ekki í neinu sýnanna, og hækkandi mótefni gegn öðrum sótt- kveikjum fundust elcki. Alvarleg sjúkdómseinkenni í þessum faraldri sáum við sjúklinga með mvocarditis, pericar- ditis, encephalilis og pneumonia. Fer hér á eftir stutt lýsing á þessum tilfellum. 1. G. J. S, 65 ára. Pleuro-pericarditis. Slæmur af A. R. í mörg ár; fékk skyndilega takverk undir bringubein, og núningshljóð heyrðust frá gollurshúsi; fékk

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.