Læknablaðið - 01.06.1970, Page 52
94
LÆKNABLAÐIÐ
farnast, verður átak þessara aðila að vera samstillt, því að annars fara
tími og fé til spillis og hvort tveggja er af skornum skammti hér.
Framtíðaráætlanir um skipulag Landspítalalóðarinnar og bygg-
ingar á henni hafa verið á prjónunum í nokkur ár og lítið miðað áfram,
enda hefur nauðsynlegt landrými ekki verið til reiðu fyrr en alveg
nýlega. Nokkur samvinna hefur verið milli læknadeildarinnar og ríkis-
spítalanna um þetta mál, en þó ekki nægileg. Einnig ber að harma
einhliða ákvörðun um byggingu fæðinga- og kvensjúkdómadeildar, án
þess að leitað væri samráðs við bygginganefnd læknadeildar. Þriðji
aðilinn, sem ætti að láta bygginga- og skipulagsmál læknadeildar og
Ríkisspítala til sín taka, eru auðvitað læknsamtökin, en formlega hafa
þau ekki átt þar hlut að máli. Hlýtur þó svo að verða, þar sem sam-
tökin hlutast nú þegar á einn eða annan hátt til um alla læknisþjónustu
í landinu, og geta ekki öllu lengur látið læknakennslu afskiptalausa.