Læknablaðið - 01.02.1969, Blaðsíða 52
20
LÆKNABLAÐIÐ
Tafla A II
Aðsókn sjúklinga og’ úrlausn lækna.
Viðtal Viðtal og klin- ísk skoðun Rannsókn eða að- gerð eingöngu Vitjanir Erindi samtals
Nóv 201 199 39 439
Des 277 130 63 470
Jan 225 158 50 433
Febr 305 165 40 510
Marz .... 235 224 80 539
Apríl .... 167 159 136 462
Maí .... 150 171 92 413
Júní .... 64 112 63 239
Júlí .... 164 265 82 511
Ágúst 234 258 34 526
Sept 201 205 107 513
Okt 155 276 28 459
Erindi samt. 2378 Meðalt. livern 2322 814 242 5756
virkan dag 7.90 7.70 2.70 0.80 19.11
Þessi tafla er gerð eftir heimildum úr reikningsfrumbókum
og afgreiðsluhættir þvi flokkaðir eftir sömu reglum og beitt er
við verðlagningu á vinnu lækna.
1) Yiðtal: Læknisleg ákvörðun tekin, án þess að gerð sé
klínisk skoðun. Símtöl og skilaboð, sem leiddu til læknis-
legra ákvarðana, eru meðtalin. Einnig eru talin með erindi,
sem voru afgreidd með viðtali, og auk þess rannsókn sam-
kvæmt III. töflu eða aðgerð. Endurnýjun lyfseðla, sem af-
greiðslumaður í lyfjasölu annaðist, er ekki reiknuð sem
viðtal.
2) Iílínísk skoðun: Sjúklingur afklæddur að loknu viðtali og'
látinn leggjast á skoðunarbekk. Minni háttar skoðanir, svo
sem könnun á sári eða tannskemmd, eru ekki taldar með;
ekki heldur venjulegt eftirlit vegna liáþrýstings eða offitu,
þótt gerðar væru tilheyrandi mælingar. Erindi, sem voru
afgreidd með viðtali og skoðun, en auk þess rannsókn
samkvæmt III. töflu eða aðgerð, eru talin með klíniskri
skoðun.