Læknablaðið - 01.08.1970, Blaðsíða 17
LÆKNABLAÐIÐ
L/ÍKNAFÉLAG ÍSLANDS OG
L/ÍKNAFÉLAG REYKJAVÍKUR
Aðalritstjórí: Ólafur Jensson.
Meðritstjórar: Karl Strand og Þorkell Jóhannesson (L.Í.),
Ásmundur Brekkan og Sævar Halldórsson (L.R.)
56. ÁRG. ÁGÚST 1970 4. HEFTI
Snorri P. Snorrason
RAFLOST VIÐ HJARTSLÁTTAR-
TRUFLUN *
A undanförnum árum hefur rutt sér til rúms ný aðferð til að
ráða bót á ýmsum hjartsláttartruflunum. Aðferðin er fólgin í því,
í:ð hleypt er rafstraumi í gegnum brjóstholið og hjartað aflilaðið
með þeim hætti. Nota má riðstraum eða jafnstraum, en nú er
oftast notaður jafnstraumur.
Þessi aðferð, sem hér er nefnd raflost við hjartsláttartruflun
(Direct current counter shock), er gagnleg í ýmsum tilvikum,
þegar lyfjameðferð er áhættusöm eða kemur ekki að tilætluðu
gagni.
Aðferðinni er einkum heitt gegn eftirfarandi lijartsláttartrufl-
unum: l'ibrillatio atriorum, fluctuatio atriorum, tachycardia
ventricularis, fibrillatio ventriculorum, tachycardia atrialis.
Hér verður einkum rætt um meðferð á íibrillatio atriorum.
Sögulegt yfirlit
Tilraunir með rafstraum gegn hjartsláttartruflunum hófust
fyrir síðastliðin aldamót. Arið 1899 heittu Prevost og Battelly
* Frá lyflækningadeild Landspítalans. Yfirlæknir Sigurður Samúelsson prófessor.