Læknablaðið - 01.08.1970, Side 24
116
LÆKNABLAÐIÐ
Tachycardia ventricularis (t.v.): Raflostmeðferð er mjög ár-
angursrík við t.v. (Lotwn10). Hjá allt að 97% sjúklinga kemst á
sinusrhythmi.
Þegar sjúklingar með t.v. eru í losti eða eru að öðru leyti alvar-
lega veikir, er raflostmeðferðin fljótvirkust og áhrifaríkust, og
ber að nota hana í þeim tilvikum. Hjá þeim sjúklingum, sem þola
hinn hraða hjartslátt vel, má fyrst reyna lyfjameðferð: Lidocain
allt að 100 mg i.v. eða procainamid allt að 500 mg i.v. Ef þessi
meðferð ber ekki árangur, er hættuminna að gefa raflost en að
halda áfram með stóra skannnta af framangreindum lyfjum.
Raflostmeðferð á lyflækningadeild Landspítalans
Á lyflækningadeild Landspítalans hefur hjartaraflostmeðferð
verið notuð síðan í ársbyrjun 1966. Aðferðinni hefur verið beitt
gegn margvíslegum hjartsláttartruflunum, en þó langoftast við
endurlífgun sjúklinga með fibrillatio ventriculorum, einnig við
tachycardia ventricularis, fluctuatio atriorum, tachycardia atrialis
og fibrillatio atriorum.
Hér verður nánari grein gerð fyrir bjartaraflostmeðferð og
árangri hennar á 20 sjúklingum með fibrillatio atriorum, sem
lágu á lyflækningadeild Landspítalans á árunum 1966 til 1968.
Alls var aðgerðin framkvæmd á 22 sjúklingum með f.a. á þessu
tímabili, en vitað er um árangúr hjá 20. Hér er um að ræða 17
karlmenn og þrjár konur mcð margvíslega hjartasjúkdóma, svo
sem nánar verður skýrt frá.
Áður en aðgerðin var framkvæmd, var sjúklingurinn lagður
inn á deildina til sjúkdómsgreiningar og til undirbúnings undir
aðgerð. Undirbúningurinn var fólginn í því að draga úr digitalis-
gjöf, ef sjúklingurinn hafði áður verið á fullri digitalisgjöf eða
hafði tekið of mikið af digitalis. Þeim sjúklingum, sem höfðu
ekki áður notað lyfið, var gefið digitalis í vægum skömmtum.
öllum sjúklingunum var gefið kínídín til reynslu í einn til tvo
daga fyrir raflostmeðferð. Þetta var gert til að ganga úr skugga
um, að sjúklingarnir þyldu kínídín með langvarandi kinídíneftir-
meðferð í huga. Gefin voru 200 mg fjórum sinnum á dag. Fyrir
kom, að sinusrhytbmi kæmist á, eftir að byrjað var á kínidín-
gjöfinni, og þannig komust nokkrir sjúklingar hjá raflostmeðferð.
Allir sjúklingarnir voru svæfðir skammvinnri svæfingu fyrir
aðgerð með svæfingarlyfi i æð. Framkvæmdu læknar svæfingar-
deildar Landspítalans svæfinguna í öllum tilfellum. Lyfjaforgjöf
var ekki viðhöfð.