Læknablaðið - 01.10.1970, Side 24
148
LÆKNABLAÐIÐ
2. KENNSLUSJÚKRAHÚS Á ISLANDI
1. Stjórnun
Meðal stofnana Háskóla Islands eru engin sjúkrahús, og sam-
kvæmt lögum og reglugerðum eru engin formleg tengsl milli
læknadeildar og sjúkrahúsa önnur en þau, að prófessorar í nokkr-
mn greinum eiga jafnframt að vera yfirlæknar á hlutaðeigandi
deild Landspítalans og Kleppsspítalans. Skipun flestra dósenta og
lektora læknadeildar er einnig á þann hátt, að kennarastaðan er
bundin því starfi, sem þeir hafa við sjúkrahús eða aðrar heil-
hrigðisstofnanir. Kennslusjúkrahús læknadeildar geta þvi talizt
vera Landspítalinn, Kleppsspítalinn, Heilsuhælið á Vífilsstöðum
og Borgarspítalinn.
Þessi grein mun ekki fjalla um, hvort svona rekstrarfyrir-
komulag með nær algjörum aðskilnaði stjórnunar sjúkrahúsanna
og læknadeildarinnar hafi verið heppilegt til þessa. Virðist þó
auðsætt, að læknadeildin ætti að eiga fulltrúa í stjórnum þeirra
sjúkrahúsa, sem kennsla fer fram á.
Nú mun vera á döfinni reglugerð fyrir ríkisspítalana, og er
enn óljóst, liver hlutur læknadeildar verður í stjórninni, en hætt
er við, að hann verði ætíð síðri en skyldi á stofnunum, þar sem
læknadeildin hefur ekki viðurkennda stjórnunaraðild. Áætlanir
hafa verið gerðar um sameiginlegar byggingar fyi'ir Háskólann
og Landspítalann, og virðist augljóst, að frekari stjómunarleg
samvinna en hefur verið fram til þessa verði nauðsynleg, þegar
kemur til byggingaframkvæmda og reksturs stofnana, sem eiga
að verða sameiginlegar þjónustu-, kennslu- og vísindastofnanir
fyrir læknadeildina og rikisspítalana.
2. Stærð og f jöldi kennslusjúkrahúsa
Á fundi í yfirlæknaráði Landspítalans h. 27/1 1967 var sam-
þykkt, að stefna skyldi að því, að á Landspítalanum yrðu 650—
750 rúm og sú fjölgun rúma ætti að eiga sér stað á næstu 20 árum.
Yfirlæknaráðið tók þá jafnframt undir það sjónarmið lækna-
deildar Háskóla Islands, að „stefna bæri að því að skapa rúm og
starfsskilyrði á Landspítalanum fyrir allar klínískar sérgreinar,
sem kennsla færi fram í og að sérdeildir væru starfræktar fyrir
aðrar greinar, eftir því sem talið væri æskilegt“. Þetta sjónarmið
átti vafalaust einhvern rétt á sér, en óvíst er, hvort það nær loka-
stigi. Viðhorfin geta hreylzt á 20 áruni og eru e. t. v. önnur í dag
en þegar læknadeild og yfirlæknaráð tóku sínar ákvarðanir.
Þannig hefur starfsemi Borgarspitalans og Landakotsspítalans