Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.10.1973, Qupperneq 41

Læknablaðið - 01.10.1973, Qupperneq 41
LÆKNABLAÐIO 205 LÆKNABLAÐIÐ TME ICELANDIC MEDICAL JOURNAL f Læknafclag Islands og Læknafclag Rcykjavikur 59. ÁRG. — SEPT.-OKT. 1973 ÚRBÓTA ÞÖRF i HEIMILISLÆKNINGUM í REYKJAVÍK Margar þjóðir hafa átt í vaxandi erfiðleik- um við að halda uppi viðunandi heimilis- læknaþjónustu. Hér á íslandi hafa menn ekki farið varhluta af þessum vanda. Svo virðist sem hér í Reykjavík sé um vaxandi erfiðleika að ræða í þessum efnum. Samfara hraðri fólksfjölgun fer heimilislæknum fækk- andi. Starfsaðstaða þeirra hefur lítið sem ekkert batnað og er ófullnægjandi.Vinnuálag er allt of mikið og starfið því úr hófi lýjandi Við síðustu samninga varð hlutur heimilis- lækna í Reykjavík minni en lækna við flesl önnur störf. Ástandið í þessum efnum er því þannig, að það laðar ekki unga lækna til starfa í heimilislækningum. Ef ekki verður ráðin bót á, munu Reyk- víkingar verða að búa við síversnandi lækn- isþjónustu á þessu sviði. Nú þegar hefur fjölmennur hópur Reykvíkinga engan heim- ilislækni og á þess ekki kost. Almenningur kvartar sáran um, hve erfitt sé að ná til læknis á Reykjavíkursvæðinu. Hvað er til úrbóta? Með heilbrigðislögunum nýju er stefnt að því að skapa bætta aðstöðu til læknisþjón- ustu með stofnun heilsugæzlustöðva, sem reistar verða að mestum hluta fyrir fé úr ríkissjóði. Strjálbýlið verður vafalaust, að öðru jöfnu, látið sitja fyrir við stofnun slíkra stöðva. Þess er því ekki að vænta, að í þessu efni komi að Reykjavík fyrr en seint og síðarmeir. Eftir því er ekki hægt að bíða. Stofnun heilsugæzlustöðva á Reykjavíkur- svæðinu þolir enga bið. Fyrirhuguð heilsu- gæslustöð í Breiðholti virðist vera svo stór og dýr, að þess verði langt að bíða, að hún komi í gagnið. Fljótvirkari aðgerðir verða að koma til, ef takast á að laða unga lækna til starfsins, nú, þegar mikil fjölgun er fyrirsjáanleg í stéttinni. Einnig er aðkallandi að skapn kennsluaðstöðu í heimilislækningum í Reykjavík, svo að stofnun kennslustóls í heimilislækningum við Háskóla íslands komi að tilætluðu gagni. Það má því ekki dragast lengur, að lækn- ingamiðstöð í heimilislækningum verði kom- ið á í Reykjavík. Tvær lækningamiðstöðvar fyrir 4 til 6 lækna, hvor með nægjanlegu að- stoðarliði og nokkurri rannsóknaraðstöðu, mundu bæta úr brýnustu þörfinni. í þessu skyni verður að taka í notkun bráðabirgðahúsnæði, t. d. hæðir í stórhýs- um, eða sérstaklega hannaðar byggingar, sem nú þegar eru á markaði á Norðurlönd- um. Borgaryfirvöld verða að finna leið til að fjármagna slíkar framkvæmdir. Sjúkrasamlag Reykjavíkur hlýtur að hafa áhuga á málinu og ætti að leggja sitt af mörkum. Síðast en ekki síst verða læknar að sýna málinu áhuga og fylgja því fast eftir. Væri það í samræmi við yfirlýsingar Læknafélags íslands um að það sé þjóðarhagslega hag- kvæmt að efla sem mest læknisþjónustu utan sjúkrahúsa. S. P. S.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.